Fréttablaðið - 25.08.2011, Side 12

Fréttablaðið - 25.08.2011, Side 12
25. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR12 Meira en 10 prósent af orku sem notuð er í samgöngum verða fengin með endurnýj- anlegum orkugjöfum 2020. Það sparar gjaldeyri og er umhverfisvænt. Kolbeinn Óttarsson Proppé skoðaði þær breytingar sem eru fram undan í orkumálum. Orkunotkun Íslendinga mun taka gagngerum breytingum verði áætl- un ríkisstjórnarinnar um orkuskipti að veruleika. Samkvæmt henni munu meira en tíu prósent af allri orku sem nýtt er í samgöngum koma úr endurnýjanlegum orkugjöfum árið 2020, eftir níu ár. Í dag kemur eitt prósent úr slíkum orkugjöfum. Til þess að þetta verði að veru- leika er ljóst að umfangsmiklar breytingar þurfa að verða á sam- gönguflota landsins. Iðnaðar- ráðherra hefur hleypt af stað átaki í þessa veru, Grænu orkunni, og verk- efnisstjórn hennar vinnur nú að til- lögum um hvernig þetta getur orðið að veruleika. Með því á að leiða alla þá saman sem fást við orkuskipti í samgöngum. „Græna orkan mun vinna aðgerð- ar- og framkvæmdaáætlun um verk- efnið og tengja saman alla þá sem fást við málaflokkinn. Með henni skapast aðgengi að stjórnvöldum, en frumkvæðið mun koma frá atvinnu- lífinu,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. Úr stjórnsýslu í atvinnulífið Sverrir Viðar Hauksson er formað- ur verkefnastjórnar Grænu orkunn- ar. Hann segir að verkefnið sé nú á mikilvægum tímapunkti; hingað til hafi það fyrst og fremst verið á sviði stjórnsýslunnar, en nú sé það að færast út í atvinnulífið. Fyrrverandi verkefnisstjórn skil- aði af sér drögum að þingsályktun- artillögu sem lögð var fyrir Alþingi í janúar. Hún var samþykkt sam- hljóða í júní og í henni er að finna yfirlýsta stefnu stjórnvalda í mála- flokknum. „Upphaflega hugmyndin var að búa til stóran samstarfssamning og skapa aukið fjármagn til að setja effort í þetta. Síðan var ákveðið að bíða með það og klára grunnvinn- una fyrst,“ segir Sverrir Viðar. Sú vinna liggur nú fyrir í stefnumótun og fyrir verkefnisstjórninni liggur nú að mynda framtíðargrundvöll fyrir græna orku. „Það er búið að skapa stefnuna, en við eigum að koma með tillögur og reka á eftir þeim breytingum sem þarf að gera í regluverkinu. Við erum að skapa samstarfsvett- vang opinberra aðila og atvinnu- greinanna. Ég sé fyrir mér að ein af nauðsynlegum niðurstöðum úr starfi verkefnisstjórnarinnar verði að gera Grænu orkuna að verkefni til lengri tíma. Það þarf að tryggja þessu fjárhagslegan grunn og skapa aðila sem atvinnulífið getur leitað til,“ segir Sverrir. Hann er ánægður með nálgun iðnaðarráðherra, að draga einka- geirann að verkefninu. „Það er mjög klókt hvernig hún stendur að þessu. Hún treystir einkageiranum ekki jafnvel og ég, sem hefði viljað ganga lengra fram í þá átt, en loka- takmarkið er það sama; það á að reka þetta án þess að þetta verði miðlægt, ríkislægt lobbí.“ Miklir fjárfestingarmöguleikar Sverrir segir orkuskiptin munu hafa í för með sér mikla fjárfest- ingarmöguleika fyrir marga. Ný atvinnugrein hafi myndast í bíla- breytingum og miklir möguleikar séu í orkuframleiðslunni. „Þetta getur haft í för með sér óheyrilega mikla fjárfestingu fyrir þessa aðila. Það er að mynd- ast ný atvinnugrein með bílabreytingum, sem eru samt sem áður mjög frjálslegar í dag. Eitt af þeim viðfangsefnum sem við erum í er að reyna að reglubinda aðeins fram- kvæmdina og eftirlitið – að það sé verið að gera þetta vel.“ Iðnaðarráðherra leggur einnig áherslu á þennan þátt, atvinnusköpunina. Með verkefninu skapist fjölmörg störf í nýsköpun, þegar fjölbreyttir orku- gjafar verða nýttir til að knýja samgöngutækin. Sverrir segir Ísland hafa tækifæri til að vera í forystuhlutverki hvað samgöngur varðar. „Það sem æpir á mann í orkumálum er það að við erum að keyra 70 prósent endurnýjanlega orku í samfélaginu í heild, en við erum með rosalega lágt hlutfall í samgöngum. Tækifærin eru til staðar varðandi það að á einn eða annan hátt mun rafmagn verða stór hluti af þessum framtíðarorkugjöfum, hvort sem rafmagnið er notað til þess að búa til eitthvað annað eða með beinum hætti. Það verður notað þannig í svo og svo miklum mæli, en líka til að búa til aðra orkugjafa. Þar eigum við ofboðslega mikil tæki- færi. Við getum kannski ekki verið í forystuhlutverki í orku- skiptum, það er eitthvað sem ekki er raunhæft, en forystuhlutverk í notk- un á endurnýjanlegri orku, það er skynsamleg stefna.“ Hagrænir hvatar Fjölmargir möguleikar eru uppi þegar kemur að vistvænum orkugjöfum. Metan, rafmagn, lífdísill, vetni og metanolía, svo eitthvað sé nefnt. Sverr- ir segir tækninýjungar örar í þessum geira og peningum og hugviti sé veitt til hans. „Við verð- um að hlaupa hratt til að ná þessu öllu.“ Innan stjórnkerfis- ins er nú unnið að þeim breytingum sem nauð- synlegar eru í reglu- verkinu til að samræma vinnuna. Katrín segir að það sé víð- feðmt verkefni, því í raun sé fátt óviðkomandi Grænu orkunni. Meðal þess sem verkefnis- stjórnin skoðar er hvernig hægt er að beita hagrænum hvötum til að stuðla að skiptum yfir í umhverfisvænni bíla. Sverrir tekur dæmi af bensínbíl og dísilbíl. „Dísilbílar skila sama krafti með 20 prósentum minna eldsneyti. Ef gjaldaumhverfið væri þannig að dísilolía væri ódýrari en bensín myndaðist hvati til að kaupa dísilbíla, þeir eru að öllu jöfnu aðeins dýrari, en ef eldsneytið er orðið ódýrara ná menn að reikna sig upp í hver sparnaðurinn verð- ur. Það auðveldar fólki valið og um leið þarf þá að flytja minna inn af eldsneyti.“ Ekki veðjað á einn hest Katrín segir mikilvægt að stjórn- völd leggi ekki línurnar varðandi orkugjafa. Þeirra sé að styðja atvinnulífið í þeim leiðum sem það velur, hvaða orkugjafi sem verður fyrir valinu. Sverrir tekur undir það; mark- aðurinn verði að ráða hvaða leið verður farin. Þess vegna sé mikil- vægt að notast við mælikvarðann um innflutning jarðefnaeldsneyt- is, hvaða orkugjafi komi svo í stað- inn fyrir það sé minna mál, sé hann endurnýjanlegur. Á morgun verður litið nánar á mismunandi orkugjafa og hvað þarf til að þeir nái útbreiðslu. Við erum að keyra 70 prósent endurnýjan- lega orku í samfélaginu í heild, en við erum með rosalega lágt hlutfall í sam- göngum. SVERRIR VIÐAR HAUKSSON FORMAÐUR VERKEFNASTJÓRNAR GRÆNU ORKUNNAR Þegar þú vilt fá það besta út úr lífinu! Faxafeni 14 www.heilsuborg.is Ætlar þú að breyta um lífsstíl? 16-25 ára Heilsulausn 1 - Hentar ungu fólki, 16-25 ára, sem glímir við ofþyngd, offitu og/eða einkenni frá stoðkerfi. Átta vikna hópþjálfun 3x í viku. Hefst 29. ágúst. Mán, mið og föst kl. 18.30. Fræðsla um næringu, heilbrigðan lífsstíl ofl. Heildarverð 49.800 kr. (24.900 kr. á mán) Að námskeiðinu standa íþróttafræðingur, hjúkrunarfræðingur, næringarfræðingur, læknir og sálfræðingar. Skráðu þig núna í síma 560 1010 eða á heilsuborg@heilsuborg.is Endurnýjanlegir orkugjafar í öndvegi 1. Markmið. Að því skal stefnt að Ísland verði í forystu við notkun á endur- nýjanlegri orku í samgöngum. Nú er hlutfall endurnýjanlegrar orku í samgöngum á Íslandi töluvert lægra en annars staðar eða minna en 1%. Markmiðið innan ESB er 10% fyrir árið 2020. 2. Mikilvægi. Unnið verði markvisst og eins hratt og kostur er að því að draga úr innflutningi á jarðefnaeldsneyti með því að hvetja til orkusparnaðar og skapa hagrænar forsendur fyrir notkun ökutækja sem nota endurnýjanlega orkugjafa. Stefnt skal að því að hefja framleiðslu og notkun á endurnýjanlegum orkugjöfum sem leiða til minni losunar gróðurhúsaloft- tegunda, gjaldeyrissparnaðar og meira orkuöryggis. 3. Skattaumhverfi. Skattaumhverfi verði þróað áfram til að það hvetji bæði neytendur og fyrirtæki til orkuskipta í samgöngum og til framleiðslu á endurnýjanlegum orkugjöfum til samgangna. Jafnframt felist hvati til orkusparnaðar í skattkerfinu. 4. Orkusparnaður. Markvisst verði hvatt til orkusparnaðar í samgöngum, m.a. með miðlun upplýsinga til almennings, umhverfismiðuðu svæðaskipulagi, breyttu skattkerfi, eflingu almenningssam- gangna og fleira í samvinnu við þá aðila sem nú þegar vinna að þessum málum, svo sem Orkusetur og sveitarstjórnir. 5. Samstarf. Lykilaðgerðir sem grípa þarf til verði skipulagðar og samstaða sköpuð um þær, m.a. með klasasamstarfi með þátttöku atvinnulífs, sveitarfélaga og ríkis. 6. Rannsóknir og þróun. Stuðla skal að rannsóknum, tækniþróun, nýsköpun og atvinnuþróun tengdri endurnýjanlegum orkugjöfum. Menntun og fræðsla á þessu sviði skal einnig efld. 7. Ísland sem tilraunavettvangur. Ísland er ákjósanlegur vettvangur til að reyna ýmsar nýjungar í notkun á endurnýjanlegum orkugjöfum í samgöngum. Efla skal þátttöku í erlendu samstarfi í því skyni að laða að þekk- ingu og fjármagn. 8.Stuðningsumhverfi fyrir nýsköpun. Efla skal stuðningsumhverfi fyrir nýsköpun í tengslum við orkuskipti í samgöngum og stefnt skal að sérstakri fjár- mögnun verkefna á þessu sviði. Fé til verkefna sem tengjast orkuskiptum í samgöngum verði aukið. 9. Alþjóðasamstarf. Ísland uppfylli allar þær skyldur og kröfur sem alþjóðasam- þykktir gera til landsins varðandi losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum, orkusparnað og hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum. Jafnframt taki Ísland þátt í alþjóð- legum verkefnum á þessu sviði eftir því sem efni þykja til. Markmið ríkistjórnarinnar varðandi orkuskipti „Það sem er erfiðast gagnvart skattaumhverfinu er að tekjumódel íslenska ríkissjóðsins er með þeim hætti að samgöngum er ætlað að skila óheyrilega miklu í ríkiskassann og hefur alltaf verið. Innflutningsgjöld sem eru með því hæsta í heiminum, ofurtollar eru á bílum og við höfum gríðarlega há eldsneytisgjöld. Þá eru bifreiðagjöldin og vaskurinn af öllu sem í tengslum við þetta er ótalin. Samgöngur eru mjög þungt skattlagðar og er stór hluti af skatttekjum ríkissjóðs,“ segir Sverrir. Hann segir að ef eigi að gefa verulega eftir hvað skatta varðar þurfi að draga úr ríkisútgjöldum, eða afla tekna annars staðar. Þá sé viðbúið að það sem nú er gefið eftir, varðandi umhverfisvænni orkugjafa, sé tímabundið. „Allt sem er gefið eftir núna, er tímabundið, einhvers staðar munu þeir alltaf sækja aftur tekjurnar, eða þá að þeir fara einhverjar aðrar leiðir sem mér finnst ólíklegt. Það er flækjustig í að nýta skattumhverfið sem hvata nema bara mjög tímabundið. Metanið er ódýrara en jarðefnaeldsneytið, en hefur ekki sama skatthlut- fall, en það mun verða skattlagt. Rafmagn í samgöngur er ekki skattlagt, ef allt væri orðið rafbílavætt hérna væri farið að skattleggja það, nema ríkis- sjóður taki sig til og finni aðra tekjustofna. Það er eitt af því sem við erum líka að reyna að horfa til, er hægt að tímasetja það? Það er vont að geta ekki gert plön fram í tímann. Okkar hlut- verk er að tímasetja, niðurfelling eða lægri gjöld að lágmarki ákveðinn tíma, eða eitthvað í þeim dúr. Eins er með rafmagnsbílana, það þarf að reikna út hvað það muni kosta að vask-urinn sé felldur niður á rafmagnsbílum og í hve langan tíma? Þá þarf að skoða hvort einhverjir aðrir hvatar séu til sem hægt er að nota.“ Tímabundnir hvatar SVERRIR VIÐAR HAUKSSON Heildarsala eldsneytis á ökutæki í lítrum Bensín (95 og 98 oktan) Olía 2008 205.450.331 134.391.509 2009 205.207.947 135.012.972 2010* 197.000.000 128.000.000 *Áætlað FRÉTTASKÝRING: Orkuskipti í samgöngum 1. grein af 3 Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is Bílafloti landsmanna og eldsneytið sem knýr hann BENSÍN 73,433% DÍSILL 26,053% BENSÍN/RAFMAGN 0,290% BENSÍN/METAN 0,131% METAN 0,079% VETNI 0,008% RAFMAGN 0,005% ETANÓL 0,001% bensín 143.719 bílar dísill 50.990 bílar bensín/metan 256 bílar bensín/rafmagn 568 bílar etanól 1 bíll metan 155 bílar rafmagn 10 bílar vetni 16 bílar Heimild: Umferðarstofa

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.