Fréttablaðið - 25.08.2011, Side 12
25. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR12
Meira en 10 prósent af orku
sem notuð er í samgöngum
verða fengin með endurnýj-
anlegum orkugjöfum 2020.
Það sparar gjaldeyri og er
umhverfisvænt. Kolbeinn
Óttarsson Proppé skoðaði
þær breytingar sem eru
fram undan í orkumálum.
Orkunotkun Íslendinga mun taka
gagngerum breytingum verði áætl-
un ríkisstjórnarinnar um orkuskipti
að veruleika. Samkvæmt henni
munu meira en tíu prósent af allri
orku sem nýtt er í samgöngum koma
úr endurnýjanlegum orkugjöfum
árið 2020, eftir níu ár. Í dag kemur
eitt prósent úr slíkum orkugjöfum.
Til þess að þetta verði að veru-
leika er ljóst að umfangsmiklar
breytingar þurfa að verða á sam-
gönguflota landsins. Iðnaðar-
ráðherra hefur hleypt af stað átaki í
þessa veru, Grænu orkunni, og verk-
efnisstjórn hennar vinnur nú að til-
lögum um hvernig þetta getur orðið
að veruleika. Með því á að leiða alla
þá saman sem fást við orkuskipti í
samgöngum.
„Græna orkan mun vinna aðgerð-
ar- og framkvæmdaáætlun um verk-
efnið og tengja saman alla þá sem
fást við málaflokkinn. Með henni
skapast aðgengi að stjórnvöldum, en
frumkvæðið mun koma frá atvinnu-
lífinu,“ segir Katrín Júlíusdóttir
iðnaðarráðherra.
Úr stjórnsýslu í atvinnulífið
Sverrir Viðar Hauksson er formað-
ur verkefnastjórnar Grænu orkunn-
ar. Hann segir að verkefnið sé nú á
mikilvægum tímapunkti; hingað
til hafi það fyrst og fremst verið á
sviði stjórnsýslunnar, en nú sé það
að færast út í atvinnulífið.
Fyrrverandi verkefnisstjórn skil-
aði af sér drögum að þingsályktun-
artillögu sem lögð var fyrir Alþingi
í janúar. Hún var samþykkt sam-
hljóða í júní og í henni er að finna
yfirlýsta stefnu stjórnvalda í mála-
flokknum.
„Upphaflega hugmyndin var að
búa til stóran samstarfssamning og
skapa aukið fjármagn til að setja
effort í þetta. Síðan var ákveðið að
bíða með það og klára grunnvinn-
una fyrst,“ segir Sverrir Viðar. Sú
vinna liggur nú fyrir í stefnumótun
og fyrir verkefnisstjórninni liggur
nú að mynda framtíðargrundvöll
fyrir græna orku.
„Það er búið að skapa stefnuna, en
við eigum að koma með tillögur og
reka á eftir þeim breytingum sem
þarf að gera í regluverkinu.
Við erum að skapa samstarfsvett-
vang opinberra aðila og atvinnu-
greinanna. Ég sé fyrir mér að ein
af nauðsynlegum niðurstöðum úr
starfi verkefnisstjórnarinnar verði
að gera Grænu orkuna að verkefni
til lengri tíma. Það þarf að tryggja
þessu fjárhagslegan grunn og skapa
aðila sem atvinnulífið getur leitað
til,“ segir Sverrir.
Hann er ánægður með nálgun
iðnaðarráðherra, að draga einka-
geirann að verkefninu. „Það er
mjög klókt hvernig hún stendur að
þessu. Hún treystir einkageiranum
ekki jafnvel og ég, sem hefði viljað
ganga lengra fram í þá átt, en loka-
takmarkið er það sama; það á að
reka þetta án þess að þetta verði
miðlægt, ríkislægt lobbí.“
Miklir fjárfestingarmöguleikar
Sverrir segir orkuskiptin munu
hafa í för með sér mikla fjárfest-
ingarmöguleika fyrir marga. Ný
atvinnugrein hafi myndast í bíla-
breytingum og miklir möguleikar
séu í orkuframleiðslunni.
„Þetta getur haft í för
með sér óheyrilega mikla
fjárfestingu fyrir þessa
aðila. Það er að mynd-
ast ný atvinnugrein með
bílabreytingum, sem
eru samt sem áður mjög
frjálslegar í dag. Eitt af
þeim viðfangsefnum sem
við erum í er að reyna að
reglubinda aðeins fram-
kvæmdina og eftirlitið
– að það sé verið að gera
þetta vel.“
Iðnaðarráðherra leggur
einnig áherslu á þennan
þátt, atvinnusköpunina.
Með verkefninu skapist
fjölmörg störf í nýsköpun,
þegar fjölbreyttir orku-
gjafar verða nýttir til að
knýja samgöngutækin.
Sverrir segir Ísland
hafa tækifæri til að vera
í forystuhlutverki hvað
samgöngur varðar. „Það
sem æpir á mann í orkumálum er
það að við erum að keyra 70 prósent
endurnýjanlega orku í samfélaginu í
heild, en við erum með rosalega lágt
hlutfall í samgöngum.
Tækifærin eru til staðar varðandi
það að á einn eða annan hátt mun
rafmagn verða stór hluti af þessum
framtíðarorkugjöfum, hvort sem
rafmagnið er notað til þess að búa
til eitthvað annað eða með beinum
hætti. Það verður notað þannig í
svo og svo miklum mæli, en líka
til að búa til aðra orkugjafa. Þar
eigum við ofboðslega mikil tæki-
færi. Við getum kannski ekki verið
í forystuhlutverki í orku-
skiptum, það er eitthvað
sem ekki er raunhæft, en
forystuhlutverk í notk-
un á endurnýjanlegri
orku, það er skynsamleg
stefna.“
Hagrænir hvatar
Fjölmargir möguleikar
eru uppi þegar kemur að
vistvænum orkugjöfum.
Metan, rafmagn, lífdísill,
vetni og metanolía, svo
eitthvað sé nefnt. Sverr-
ir segir tækninýjungar
örar í þessum geira og
peningum og hugviti sé
veitt til hans. „Við verð-
um að hlaupa hratt til að
ná þessu öllu.“
Innan stjórnkerfis-
ins er nú unnið að þeim
breytingum sem nauð-
synlegar eru í reglu-
verkinu til að samræma
vinnuna. Katrín segir að það sé víð-
feðmt verkefni, því í raun sé fátt
óviðkomandi Grænu orkunni.
Meðal þess sem verkefnis-
stjórnin skoðar er hvernig hægt
er að beita hagrænum hvötum
til að stuðla að skiptum yfir í
umhverfisvænni bíla.
Sverrir tekur dæmi af bensínbíl
og dísilbíl. „Dísilbílar skila sama
krafti með 20 prósentum minna
eldsneyti. Ef gjaldaumhverfið væri
þannig að dísilolía væri ódýrari en
bensín myndaðist hvati til að kaupa
dísilbíla, þeir eru að öllu jöfnu
aðeins dýrari, en ef eldsneytið er
orðið ódýrara ná menn að reikna
sig upp í hver sparnaðurinn verð-
ur. Það auðveldar fólki valið og um
leið þarf þá að flytja minna inn af
eldsneyti.“
Ekki veðjað á einn hest
Katrín segir mikilvægt að stjórn-
völd leggi ekki línurnar varðandi
orkugjafa. Þeirra sé að styðja
atvinnulífið í þeim leiðum sem það
velur, hvaða orkugjafi sem verður
fyrir valinu.
Sverrir tekur undir það; mark-
aðurinn verði að ráða hvaða leið
verður farin. Þess vegna sé mikil-
vægt að notast við mælikvarðann
um innflutning jarðefnaeldsneyt-
is, hvaða orkugjafi komi svo í stað-
inn fyrir það sé minna mál, sé hann
endurnýjanlegur.
Á morgun verður litið nánar á
mismunandi orkugjafa og hvað
þarf til að þeir nái útbreiðslu.
Við erum
að keyra
70 prósent
endurnýjan-
lega orku í
samfélaginu í
heild, en við
erum með
rosalega lágt
hlutfall í sam-
göngum.
SVERRIR VIÐAR
HAUKSSON
FORMAÐUR
VERKEFNASTJÓRNAR
GRÆNU ORKUNNAR
Þegar þú vilt fá það besta út úr lífinu!
Faxafeni 14 www.heilsuborg.is
Ætlar þú að breyta um lífsstíl?
16-25 ára
Heilsulausn 1 - Hentar ungu fólki, 16-25 ára, sem glímir við ofþyngd,
offitu og/eða einkenni frá stoðkerfi.
Átta vikna hópþjálfun 3x í viku.
Hefst 29. ágúst. Mán, mið og föst kl. 18.30.
Fræðsla um næringu, heilbrigðan lífsstíl ofl.
Heildarverð 49.800 kr. (24.900 kr. á mán)
Að námskeiðinu standa íþróttafræðingur, hjúkrunarfræðingur,
næringarfræðingur, læknir og sálfræðingar.
Skráðu þig núna í síma 560 1010 eða á heilsuborg@heilsuborg.is
Endurnýjanlegir orkugjafar í öndvegi
1. Markmið.
Að því skal stefnt að Ísland verði í forystu við notkun á endur-
nýjanlegri orku í samgöngum. Nú er hlutfall endurnýjanlegrar
orku í samgöngum á Íslandi töluvert lægra en annars staðar
eða minna en 1%. Markmiðið innan ESB er 10% fyrir árið
2020.
2. Mikilvægi.
Unnið verði markvisst og eins hratt og kostur er að því að
draga úr innflutningi á jarðefnaeldsneyti með því að hvetja
til orkusparnaðar og skapa hagrænar forsendur fyrir notkun
ökutækja sem nota endurnýjanlega orkugjafa. Stefnt skal
að því að hefja framleiðslu og notkun á endurnýjanlegum
orkugjöfum sem leiða til minni losunar gróðurhúsaloft-
tegunda, gjaldeyrissparnaðar og meira orkuöryggis.
3. Skattaumhverfi.
Skattaumhverfi verði þróað áfram til að það hvetji bæði
neytendur og fyrirtæki til orkuskipta í samgöngum og til
framleiðslu á endurnýjanlegum orkugjöfum til samgangna.
Jafnframt felist hvati til orkusparnaðar í skattkerfinu.
4. Orkusparnaður.
Markvisst verði hvatt til orkusparnaðar í samgöngum, m.a.
með miðlun upplýsinga til almennings, umhverfismiðuðu
svæðaskipulagi, breyttu skattkerfi, eflingu almenningssam-
gangna og fleira í samvinnu við þá aðila sem nú þegar vinna
að þessum málum, svo sem Orkusetur og sveitarstjórnir.
5. Samstarf.
Lykilaðgerðir sem grípa þarf til verði skipulagðar og samstaða
sköpuð um þær, m.a. með klasasamstarfi með þátttöku
atvinnulífs, sveitarfélaga og ríkis.
6. Rannsóknir og þróun.
Stuðla skal að rannsóknum, tækniþróun, nýsköpun og
atvinnuþróun tengdri endurnýjanlegum orkugjöfum.
Menntun og fræðsla á þessu sviði skal einnig efld.
7. Ísland sem tilraunavettvangur.
Ísland er ákjósanlegur vettvangur til að reyna ýmsar nýjungar
í notkun á endurnýjanlegum orkugjöfum í samgöngum. Efla
skal þátttöku í erlendu samstarfi í því skyni að laða að þekk-
ingu og fjármagn.
8.Stuðningsumhverfi fyrir nýsköpun.
Efla skal stuðningsumhverfi fyrir nýsköpun í tengslum við
orkuskipti í samgöngum og stefnt skal að sérstakri fjár-
mögnun verkefna á þessu sviði. Fé til verkefna sem tengjast
orkuskiptum í samgöngum verði aukið.
9. Alþjóðasamstarf.
Ísland uppfylli allar þær skyldur og kröfur sem alþjóðasam-
þykktir gera til landsins varðandi losun gróðurhúsalofttegunda
frá samgöngum, orkusparnað og hlutfall endurnýjanlegra
orkugjafa í samgöngum. Jafnframt taki Ísland þátt í alþjóð-
legum verkefnum á þessu sviði eftir því sem efni þykja til.
Markmið ríkistjórnarinnar varðandi orkuskipti
„Það sem er erfiðast gagnvart skattaumhverfinu er að tekjumódel íslenska
ríkissjóðsins er með þeim hætti að samgöngum er ætlað að skila óheyrilega
miklu í ríkiskassann og hefur alltaf verið. Innflutningsgjöld sem eru með því
hæsta í heiminum, ofurtollar eru á bílum og við höfum
gríðarlega há eldsneytisgjöld. Þá eru bifreiðagjöldin og
vaskurinn af öllu sem í tengslum við þetta er ótalin.
Samgöngur eru mjög þungt skattlagðar og er stór hluti
af skatttekjum ríkissjóðs,“ segir Sverrir.
Hann segir að ef eigi að gefa verulega eftir hvað
skatta varðar þurfi að draga úr ríkisútgjöldum, eða afla
tekna annars staðar. Þá sé viðbúið að það sem nú
er gefið eftir, varðandi umhverfisvænni orkugjafa, sé
tímabundið.
„Allt sem er gefið eftir núna, er tímabundið, einhvers
staðar munu þeir alltaf sækja aftur tekjurnar, eða þá að
þeir fara einhverjar aðrar leiðir sem mér finnst ólíklegt. Það er flækjustig í að
nýta skattumhverfið sem hvata nema bara mjög tímabundið.
Metanið er ódýrara en jarðefnaeldsneytið, en hefur ekki sama skatthlut-
fall, en það mun verða skattlagt. Rafmagn í samgöngur er ekki skattlagt, ef
allt væri orðið rafbílavætt hérna væri farið að skattleggja það, nema ríkis-
sjóður taki sig til og finni aðra tekjustofna.
Það er eitt af því sem við erum líka að reyna að horfa til, er hægt að
tímasetja það? Það er vont að geta ekki gert plön fram í tímann. Okkar hlut-
verk er að tímasetja, niðurfelling eða lægri gjöld að lágmarki ákveðinn tíma,
eða eitthvað í þeim dúr. Eins er með rafmagnsbílana, það þarf að reikna út
hvað það muni kosta að vask-urinn sé felldur niður á rafmagnsbílum og í
hve langan tíma? Þá þarf að skoða hvort einhverjir aðrir hvatar séu til sem
hægt er að nota.“
Tímabundnir hvatar
SVERRIR VIÐAR
HAUKSSON
Heildarsala eldsneytis á ökutæki í lítrum
Bensín (95 og 98 oktan) Olía
2008 205.450.331 134.391.509
2009 205.207.947 135.012.972
2010* 197.000.000 128.000.000
*Áætlað
FRÉTTASKÝRING: Orkuskipti í samgöngum 1. grein af 3
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Bílafloti landsmanna og eldsneytið sem knýr hann
BENSÍN 73,433%
DÍSILL 26,053%
BENSÍN/RAFMAGN 0,290%
BENSÍN/METAN 0,131%
METAN 0,079%
VETNI 0,008%
RAFMAGN 0,005%
ETANÓL 0,001%
bensín
143.719 bílar
dísill
50.990 bílar
bensín/metan
256 bílar
bensín/rafmagn
568 bílar
etanól
1 bíll
metan
155 bílar
rafmagn
10 bílar
vetni
16 bílar
Heimild: Umferðarstofa