Fréttablaðið - 25.08.2011, Blaðsíða 74
25. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR50
golfogveidi@frettabladid.is
FL
U
G
A
N
TILLAGA
AÐ DEILISKIPULAGI Á REYKJANESI
VEGNA FISKELDIS
Þessi útgáfa af Sunray flýtur
hátt. Sunray Tsunami hefur
verið að gera allt vitlaust undan-
farið á stórum breiðum.
UPPSKRIFT
Hnýtt á plaströr
Tvinni - Svartur UNI 6/0
Vængur - Svartlitað geitarhár og
strimlar af flashabou haus - Svart-
lituð búkhár af hjartardýri, klippt til.
Best á breiðuna
SUNRAY TSUNAMI
Ríflega 3.440 laxar voru
komnir á land í Ytri-Rangá
um miðjan dag í gær eftir
að morgunhollið skilaði af
sér 43 fiskum. Bjarki Már
Jóhannsson leiðsögumað-
ur segir veiðina hafa verið
jafna og þétta með stíganda
í sumar.
„Að undanförnu hafa veiðst á
bilinu sextíu til hundrað laxar á
dag,“ segir Bjarki Már Jóhanns-
son, leiðsögumaður í Ytri-Rangá,
sem tók á móti útsendurum Frétta-
blaðsins á morgunvaktinni í gær.
Ytri-Rangá hefur undanfarin ár
verið með aflahæstu laxveiðiám
landsins og sumarið sem nú er að
líða er engin undantekning á því.
Áður en veiðar hófust í gær höfðu
3.400 laxar verið dregnir á land.
Í hádegishléinu höfðu bæst við
43 laxar sem ánægðir veiðimenn
færðu til bókar.
Bjarki Már fór fyrst með okkur
Fréttablaðsmenn að hinum fræga
Ægissíðufossi. Áður en langt um
leið var fyrsti laxinn kominn upp
á bakka. Tveir bættust fljótlega
við úr svokölluðum Klöppum fyrir
neðan fossinn auk þess sem væn
sjóbleikja tók fluguna. Dágóður
lax sleit sig síðan lausan í fossin-
um áður en kominn var tími til að
halda á næsta stað.
Veitt er á tuttugu stangir í Ytri-
Rangá og voru flestar þeirra
mannaðar útlendingum í gær.
Óhætt er að segja að hópurinn
virtist afar ánægður með upp-
skeruna. Langalgengastir voru
laxar á bilinu fjögur til sex pund.
Tveir norskir veiðimenn sem
rætt var við segjast um miðjan
morgun hafa fengið tvo laxa á
sína stöng og Spánverja, sem var
með þeim á svæði, hafa náð fjórum
löxum. „Við fengum sjö og misst-
um sjö,“ segir Svíi á bílastæðinu
við veiðihúsið.
Bjarki Már segist hafa verið
leiðsögumaður við Rangá í þrjú
sumur. Fyrsta sumarið hafi hann
verið á eigin vegum en nú sé hann
starfsmaður Lax-ár, leigutaka
árinnar. Það er beinlínis brjálað
að gera hjá Bjarka Má sem unnið
hefur hvern einasta dag síðustu
þrjár vikur. Sjálfur er hann með
alvarlega veiðidellu.
„Þetta kemur frá pabba,“ segir
hann um veiðiáhugann. „Við
vorum mikið í sumarhúsi í Fljóts-
hlíð þegar ég var krakki og þá leið
ekki sá dagur að ég færi ekki niður
í læk að eltast við urriða. Eftir að
ég fór að vinna sjálfur fyrir pen-
ingum fór ég að færa mig meira
yfir í laxinn.“
Eins og aðrir ástríðuveiðimenn
fer Bjarki Már á stjá með stöngina
strax og færi gefst á vorin. „Ég fer
til dæmis mikið í Þingvallavatn.
Þar fékk ég 22 og 18 punda urriða
í vor og fjölmarga aðra fiska. Urr-
iðinn er alvöru fiskur sem segja
má að slái laxinn alveg út,“ segir
hann.
Eftir að hafa komið okkur í
gang í morgunsárið átti Bjarki
Már lausa stund og hélt til veiða á
svæði sem ekki var upptekið þenn-
an morgun. „Ég var að leika mér
að hitsa,“ segir Bjarki þegar við
hittum hann aftur á nýjum veiði-
stöðum við Hellisey og Tjarnar-
breiðu. Þar leiðbeindi hann okkur
og hvarf svo til annarra verka.
Við Hellisey og Tjarnarbreiðu
var það sama upp á teningnum
og var fyrir neðan Ægissíðufoss;
gnægð var af laxi og hann sýndi
sig víða. Tveir laxar bættust þar í
safnið þennan morgun.
Þegar við í vaktarlok framvís-
uðum fimm löxum til mælingar
og skráningar í veiðibókina feng-
um við hrós frá Bjarka Má. „Þetta
er bara mjög gott hjá ykkur,“ segir
leiðsögumaðurinn. Og það fannst
okkur líka.
gar@frettabladid.is
Jöfn og þétt mokveiði
heldur áfram í Rangá
BJARKI MEÐ BLEIKJU Þótt laxarnir í Ytri-Rangá séu margir eru þar einstaka silungar líka. Bjarki Már Jóhannsson leiðsögumaður
segir mælst til þess að slíkum fiskiúr náttúrulegum stofnum árinnar sé gefið líf. Þessi sjóbleikja sem Bjarki heldur á og blaða-
maður veiddi synti því sína leið eftir mælingu á bakkanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR
Uppskrift og mynd af Flugan.is
Allt sem þú þarft
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 120 stöðum um land allt. Nánari
upplýsingar á visir.is/dreifing
FARIÐ YFIR STÖÐUNA Bubbi, Guðbrandur Einarsson yfirleiðsögumaður, og Bjarki Már
ræða málin í upphafi dags við veiðihúsið. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR
TEKIÐ Á ÞVÍ Nóg var af laxi neðan Ægis-
síðufoss og renndu sumir þeirra sér
á fluguna og tóku hraustlega á móti.
FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR
326 1LAXAR og 240 sjóbirtingar höfðu veiðst á tvær stangir í sumar í Straumum
í Borgarfirði á þriðjudaginn var.
METRI er lengdin á sjö kílóa urrr-
iða sem danskur veiðimaður náði á
land í Minnivallalæk fyrr í þessum
mánuði.