Fréttablaðið - 25.08.2011, Blaðsíða 22
22 25. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR
Undanfarið hafa fjölmiðla-konurnar Ellý Ármanns og
Tobba Marinós fengið töluverða
gagnrýni vegna orða sem Ellý lét
falla í Fréttatímanum varðandi
sjónvarpsþátt sem þær stöllur
fara í loftið með á SkjáEinum
nú í haust. Þar sagði Ellý þær
ætla að fjalla um allt það sem
mæðir á konum og taldi svo upp
örfá dæmi. Sú upptalning hennar
hefur farið fyrir brjóstið á mörg-
um enda engan veginn tæmandi
að þeirra mati, eðlilega ekki,
kannski.
Eðlilega ekki, segi ég enda
efast ég um að hún hafi ætlað að
telja upp umfjöllunarefni næstu
mánaða í örstuttu blaðaviðtali.
Flest slík viðtöl eru tekin í gegn-
um síma og viðmæl-
andi hefur stuttan tíma
til að íhuga hvernig
best sé að koma fyrir
sig orði. Þegar ég las
viðtalið við þær Ellý og
Tobbu staðnæmdist ég
einmitt við þetta svar
Ellýjar, ekki vegna
þess að það færi svo
fyrir brjóstið á mér
heldur hugsaði ég með
mér: „Hún verður skot-
in í kaf fyrir þetta!“
En það er einmitt þar
sem hnífurinn stendur
í kúnni, að mínu mati.
Sjálf hef ég starfað
sem blaðamaður á elsta og vin-
sælasta kvennatímariti lands-
ins, Vikunni, í fjögur ár auk þess
sem ég stjórnaði kvennaspjall-
þættinum Dyngjunni ásamt
Nadiu Katrínu Banine síðastlið-
inn vetur á SkjáEinum. Því má
segja að ég sé hokin af reynslu í
að fjalla um „allt það sem konur
tala um“. Og veit ég vel að það
sem við tölum um er ekki hægt
að koma í eina setningu og eins
að umræðuefnin eru misjöfn
okkar á milli, það hvarflar ekki
að mér að ætla öllum konum að
vera að tala um það sama og
hvað þá öllum stundum.
Á þessum árum mínum í fjöl-
miðlum hef ég fjallað um allt frá
bleiuskiptum að staðalímyndum
og allt frá því hvernig beri að
velja varalit að því hvaða end-
urmenntunarmöguleikar séu í
boði og ég er viss um að margar
konur hafi haft gaman af hvoru
tveggja en ekki endilega aðeins
öðru hvoru. Það er þó ekki aðal-
málið í mínum huga heldur sú
staðreynd að kona sem tekur
þá ákvörðun að halda uppi sjón-
varpsþætti sérstaklega miðuðum
að kynsystrum sínum í hverri
viku skuli eiga það á hættu að
vera skotin í kaf. Eða, leyfið mér
að endurorða, ekki aðeins eiga
það á hættu, heldur „gjörðu svo
vel, farðu í skotbyrgið og búðu
þig undir stórhríð“. Og það jafn-
vel áður en þátturinn fer í loftið.
Þegar við Nadia fórum af stað
með Dyngjuna síðasta vetur var
hringt í mig frá Fréttablaðinu
klukkutíma eftir að ég vissi að
ég hefði fengið starfið. Ég var
einmitt spurð að því sama og
Ellý: Um hvað við ætluðum að
fjalla. Ég svaraði eins vel og
ég gat, enda voru aðeins nokkr-
ar hugmyndir komnar á blað.
Klukkutíma síðar hafði ég svo
aftur samband við blaðamann-
inn til að fá að bæta fleiri hug-
myndum við sem höfðu ekki
komið í huga mér í flýtinum
áður. Þetta gerði ég einfaldlega
til að reyna að koma í veg fyrir
að vera „skotin í kaf“. Algjör-
lega eðlilegur og réttmætur ótti
af minni hálfu.
Það eru gömul sannindi og
ný að færri konur
birtast á sjónvarps-
skjáum okkar en karl-
ar og því hljótum við
öll að fagna breyting-
um frá þeirri stefnu.
Við þurfum ekkert
að vera á einu máli
um efnistökin, enda
aldrei svo að hægt sé
að þóknast öllum. Ég
hef voða gaman af því
að vera fín og sæt en
ég fæ samt krump-
aðar tær þegar konur
fara að tala um megr-
un og nýjustu línuna
í naglalökkun og vin-
konur mínar vita betur en að
ræða hvaða augnskuggi sé best-
ur við mig. Ég geri mér þó grein
fyrir því að margar konur hafa
einmitt sérlegan áhuga á þessu
tvennu og þær mega það alveg
mín vegna.
Ég meira að segja fjalla um
þetta og margt annað sem vekur
ekkert endilega áhuga minn,
enda er ég blaðamaður en ekki
bloggari og skrifa ekki bara um
hugðarefni mín eða bara fyrir
mig.
Þó svo að ég geti verið sam-
mála ýmsu í gagnrýninni sem
komið hefur upp í þessari
umræðu og ég sé sammála því
að við eigum ekki að ýta undir
stöðluð hlutverk kynjanna og
það sé gott að vera alltaf aðeins
á tánum þá held ég að með því að
ráðast hverjar á aðra á þennan
hátt færum við einmitt kvenrétt-
indabaráttuna aftur um áratugi.
Umræða er af því góða en
orrahríð og illindi ekki. Leyfum
röddum kvenna að hljóma, alls
konar röddum, og hættum að
keppa um hver sé mesti femínist-
inn – við erum það allar: Konur
eru konum bestar!
Með nýrri menntastefnu og menntalögum sem samþykkt
voru á Alþingi árið 2008 hafa orðið
breytingar í leik-, grunn- og fram-
haldsskólum. Aukin áhersla er á
velferð nemenda og að nemend-
ur læri um lýðræði í lýðræðislegu
skólasamfélagi. Hlutverk fræðslu-
yfirvalda og samtaka foreldra er
að útfæra nýju lögin og upplýsa
almenning um þær breytingar
sem orðið hafa með nýjum lögum
og aðalnámsskrá. Auka þarf
fræðslu til starfsfólks í skólum
og ekki hvað síst upplýsa foreldra
og nemendur um nýjar áherslur í
skólastarfinu.
Skólaráð eru nú starfandi í
grunnskólum sem allir hagsmuna-
aðilar innan skólans eiga aðild
að. Ráðið er samráðsvettvang-
ur skólastjóra og skólasamfélags
um skólahaldið. Skólaráð fylgist
almennt með öryggi, aðbúnaði og
almennri velferð nemenda. Skóla-
stjóri stýrir starfi skólaráðs sem
skipað er níu aðilum sem kosnir
eru til tveggja ára í senn. Þar eiga
foreldrar og nemendur tvo full-
trúa hvor ásamt kennurum, öðru
starfsfólki skóla og einum aðila úr
grenndarsamfélaginu.
Bæði nemenda- og foreldrafé-
lög skulu samkvæmt grunnskóla-
lögum setja sér starfsreglur um
kosningu fulltrúa í skólaráð og
hafa flest foreldrafélög samþykkt
slíkar reglur. Í grunnskólalögum
er kveðið á um réttindi nemenda
til að koma sjónarmiðum sínum
á framfæri varðandi námsum-
hverfi, námstilhögun og fyrir-
komulag skólastarfs, s.s. með
setu í skólaráðum. Nokkuð ber
á því að nemendafélög fái ekki
þann undirbúning sem þau þurfa
til að nemendur geti með góðu
móti orðið virkir þátttakendur í
skólaráðum. Í skýrslu um mann-
réttindafræðslu hefur starfshópur
á vegum mennta- og menningar-
málaráðuneytisins sett fram til-
lögur sem ætlað er að vera hug-
myndagefandi fyrir skóla fyrir
þann mikilvæga þátt í menntun
barna að stuðla að virkri þátt-
töku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi.
Þar kemur fram að átt hefur sér
stað vitundarvakning á undan-
förnum árum um mikilvægi þess
að nemendur fái tækifæri til að
styrkja sjálfa sig og undirbúa sig
betur undir áskoranir daglegs lífs
í síbreytilegum heimi. Markmið-
ið með tillögunum er að auðvelda
skólum að styrkja þennan þátt
í menntun barna og ungmenna.
Hægt er að nálgast skýrsluna á vef
ráðuneytisins: http://www.mennta-
malaraduneyti.is/frettir/Forsidu-
greinar/nr/4786. Þar er einnig bent
á leiðir til að innleiða markmiðin
í kennslu. Má nærri geta að tillög-
ur þessar eru fagnaðarefni fyrir
kennara og foreldra sem vinna
saman að útfærslu 2. greinar
nýrra grunnskólalaga.
Menntakerfið gegnir mikilvægu
hlutverki í að vekja nemendur til
umhugsunar, uppfræða þá og
hvetja þá til lýðræðislegrar þátt-
töku. Til að okkur takist það þarf
skólastarfið að fela í sér jákvæða
afstöðu til lýðræðis og standa vörð
um lýðræðisleg gildi og mann-
réttindi. Virk mannréttindavernd
byggir á því að fólk þekki rétt sinn
og virði réttindi annarra. Útfærsla
nýrra menntalaga er m.a. á hendi
fræðslunefnda á hverjum stað
en foreldrar og almenningur eru
helsta eftirlitið og aðhald á að
lögum sé framfylgt. Skólar geta
ekki haft eftirlit með sjálfum
sér og mikilvægt að borgararnir
láti sig varða hvernig á er haldið
og hvernig verklag og útfærsla á
skólastefnu sveitarfélaga fer fram.
Þar gegna foreldrafélög lykilhlut-
verki. Allt miðar þetta að aukinni
velferð okkar, betri líðan nemenda
og auknum gæðum menntunar.
Í grunnskólalögum er kveðið á um rétt-
indi nemenda til að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri …
… hættum
að keppa um
hver sé mesti
femínistinn -
við erum það
allar: Konur
eru konum
bestar!
Nemendafélög í grunnskólum „Ég er meiri
femínisti en þú!“
Menntamál
Helga Margrét
Guðmundsdóttir
tómstunda- og
félagsmálafræðingur Kvenréttinda-
barátta
Björk Eiðsdóttir
blaðamaður
AF NETINU
Afturför í verslun
Ég hef áður skrifað um hvað „handabandið“ má kosta, ekki síst þegar maður
heldur sjálfur í bensíndæluna og þarf að afgreiða sig sjálfur. Um leið og
maður lætur blekkjast að það sé gert í boði olíufélganna til að þú sparir. Hið
rétta er auðvitað að þetta er gert til að eigendurnir sjálfir græði meira innan
dyra. Afgreiðsla á rándýru eldfimu eldsneyti, jafnvel upp á tugþúsundir
króna í hvert skipti, getur aldrei talist ódýr verslunarvara sem ekki verð-
skuldar góða þjónustu. Þegar þú ætlast til að þjónustan sé til fyrir þig, en
ekki öfugt.
Myndastyttur af konum
Sammála Jóni Gnarr um, að við þurfum styttu af Björk við Hörpuna, helzt
mjög stóra. Samt ekki með ljósasjóvi, það er of gróft. Þurfum að skapa fleiri
myndafæri fyrir ferðamenn. Björk er frægasti Íslendingurinn nú um stundir
og gæti haft sama aðdráttarafl og Hallgrímskirkja. Þar er alltaf krökkt af
ferðamönnum. Ég styð líka plebejíska eftirlíkingu af sögualdar-sverðinu á
kafi í Melatorgi. Einkum vantar þó myndastyttu af Vigdísi Finnbogadóttur,
sem markaði þáttaskil í samspili kynjanna. Ekki dugar, að bara séu til styttur
af körlum. Björk og Vigdís eru kjörnar til að brjóta ísinn.
http://jonas.is
Jónas Kristjánsson
Mánudaginn 12. september 2011 verða hlutabréf í Skeljungi hf. tekin til rafrænnar skráningar
hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. í samræmi við ákvörðun stjórnar Skeljungs hf. þar að lútandi.
Þar af leiðandi verður ekki tekið við tilkynningum um eigendaskipti á bréfum félagsins 9.-11.
september 2011. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í félaginu í samræmi við ákvæði
laga og reglugerðar um rafræna eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Skeljungi hf. tekin til rafrænnar skráningar en þau eru öll í
einum flokki og gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags er getið á hverju bréfi. Við rafræna útgáfu
hlutabréfanna er nafnverð hvers hlutar ákveðið ein króna.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa leika á
að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Skeljungs hf. að staðreyna skráninguna
með fyrirspurn til hlutaskrár Skeljungs hf. að Hólmaslóð 8, 101 Reykjavík, eða í síma /
tölvupóstfangi 444-3000 / iak@skeljungur.is. Komi í ljós við slíka könnun að eigendaskipti
hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir nefndan
dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra
hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri fyrir skráningardag við fullgilda
reikningsstofnun, þ.e. banka, verðbréfafyrirtæki eða sparisjóð sem gert hefur
aðildarsamning við Verðbréfaskráningu Íslands hf.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og
því er ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á að ferli rafrænnar
skráningar hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að
undanskildum framangreindum takmörkunum á tilkynningum um eigendaskipti 9.-11. september
2011.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun umsjón með eignarhlut
sínum í félaginu til að geta framselt hluti sína, svo sem vegna sölu eða skipta. Reikningsstofnun
stofnar í þessu skyni VS-reikning í nafni viðkomandi hluthafa.
Hluthöfum félagsins er kynnt framangreint bréfleiðis.
Stjórn Skeljungs hf.
INNKÖLLUN VEGNA RAFRÆNNAR
SKRÁNINGAR HLUTABRÉFA
Í SKELJUNGI HF.