Fréttablaðið - 25.08.2011, Side 24
25. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR
AkureyrarAkademían – Félag sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi
er fimm ára. Því er ástæða til þess að rýna
aðeins í vaxtarmöguleika félagsins og hvetja
hvern þann sem tök hefur að styðja við starf-
semi félagsins. AkureyrarAkademían hefur
gert félögum sínum kleift að vinna að sínum
fræðum í skapandi og hvetjandi umhverfi,
þar sem fólk styður hvert annað bæði fræði-
lega og í gegnum hversdagsleg samskipti.
Hún skapar þannig ný atvinnutækifæri og
stuðlar að nýrri þekkingu. Hún laðar til bæj-
arins fræðafólk til lengri og skemmri tíma,
bæði erlendis frá og frá höfuðborgarsvæð-
inu. Hún er mikilvægur stuðningur við vax-
andi menningarlíf í þessum bæ, við Háskól-
ann, félagasamtök, stofnanir og einstaklinga.
AkureyrarAkademían sem vinnustaður
er komin til að vera. Þegar rætt er við fólk
sem hefur nýtt sér vinnuaðstöðuna í húsinu
verður ljóst hversu mikilvæg aðstaðan hefur
verið fyrir flest þeirra. Það að geta setið í ró
og næði og stundað fræðistörf er dýrmætt.
En það er samfélagið í húsinu, þverfaglegt
samtal, samstarf og félagsskapur af fólki
með ólíkan bakgrunn sem gerir vinnuaðstöð-
una í húsinu ómetanlega. Sá góði andi sem
ríkir í húsinu, næðið sem fólk hefur þar og
öll aðstaða gerir að verkum að fólki vinnst
vel. Allnokkrir félagar í meistara- eða dokt-
orsnámi við Háskóla Íslands eða háskóla
erlendis hafa eða hafa haft vinnuaðstöðu í
húsinu. Ljóst er, að ef þessi aðstaða væri ekki
fyrir hendi hefðu sum þeirra jafnvel tekið
ákvörðun um að flytja búferlum.
Félag sjálfstætt starfandi fræðimanna á
Norðurlandi er komið til að vera. Þegar rætt
er við félagsfólk um mikilvægi þess að hér
fyrir norðan sé starfandi slíkur félagsskapur
eru margir á þeirri skoðun að áfram þurfi að
vinna að því að efla og styrkja starf félags-
ins sem nær til fólks á öllum aldri, með fjöl-
breyttan bakgrunn úr akademíu og skóla
lífsins, fólks sem býr yfir fjölbreyttri þekk-
ingu sem gildir að virkja.
Viðburðir AkureyrarAkademíunnar hafa
skapað sér fastan sess í fræða- og menning-
arlífi Akureyrarbæjar og Norðurlands alls.
Sérstaklega verða hin ýmsu þing Akademí-
unnar þar sem teflt hefur verið saman fólki
úr ýmsum atvinnugreinum, fræðum og list-
um að teljast vel heppnuð og gefa þau fyrir-
heit um það sem koma skal. Einnig hefur það
verið aðalsmerki Akademíunnar að fræða-
fólk úr ýmsum áttum hefur kvatt sér hljóðs
á vettvangi Akademíunnar og þarf svo að
vera, því enginn annar vettvangur er til stað-
ar á Norðurlandi þar sem jafn fjölbreyttur
og breiður hópur hefur möguleika á því að
tjá sig á opinberum vettvangi um hin ýmsu
fræði, stærri og minni.
Umfang þeirrar starfsemi sem Akur-
eyrarAkademían mun sinna í náinni fram-
tíð ræðst af því hvernig ríki, bæjarfélög og
aðrir aðilar sjá sér fært að styrkja félagið til
athafna. Fyrir stjórn og félagsfólk allt er það
eitt helsta verkefnið að leita leiða til þess að
fjármagna starf félagsins. Ljóst er að félagið
hefur einhverja möguleika til að sækja um
minni styrki fyrir staka viðburði, en áríð-
andi er að opinberir aðilar tryggi að dagleg-
um rekstri félagsins sé borgið.
Vaxtarmöguleikar AkureyrarAkademí-
unnar tengjast einnig ákvörðunum um hús-
næðið í gamla Húsmæðraskólanum við Þór-
unnarstræti 99. Húsið myndi sóma sér vel
sem fræðasetur á Akureyri, sem fólkvangur
þar sem áhugafólk og fræðafólk af vettvangi
lista, menningar og hvers kyns vísinda hefði
áfram tök á því að bera saman bækur sínar,
sinna samtali og þverfaglegri gagnrýni, sem
væri til þess fallin að hvetja einstaklinga til
að hugsa út fyrir ramma eigin sérgreinar
í átt að nýsköpun og framtíð sem byggir á
gagnkvæmri virðingu og forvitni þess sem
vill vita meira.
Ekki má líta framhjá því að auk þess að
vera fræðilegur aflvaki er Akademían ekki
síður mikilvæg atvinnusköpun í nærsam-
félagi sínu. Á þeim fimm árum sem liðin
eru frá stofnun hennar hefur Akademí-
an beint og óbeint stuðlað að atvinnusköp-
un og nýsköpun á svæðinu. Innan veggja
Akademíunnar hafa þannig verið unnin
rannsóknarverkefni, skrifaðar bækur, unnið
að menningarviðburðum, og listsköpun.
Fræðimennska er atvinnugrein þeirra sem
hana stunda og þótt Akademían sé ekki
atvinnurekandi í beinum skilningi er hún
mikilvægur grundvöllur þeirra starfa sem
Akademónar vinna. Hún er skjólshús fjöl-
margra sjálfstætt starfandi fræðimanna og
skapar þeim frjóan vettvang sem ekki síst
hvetur til þverfaglegs samtals og samvinnu.
Sem slík eflir Akademían fræðilegan fjöl-
breytileika á Akureyri og eykur möguleika
og víðsýni ungs fræðafólks á svæðinu þegar
kemur að starfsmöguleikum.
Árlegur beinn stuðningur skatt-greiðenda við sauðfjárfram-
leiðslu er um fjórir milljarðar
króna. Um tveir milljarðar eru í
formi svokallaðra beingreiðslna,
ríflega milljarður er í formi gæða-
stýringarálags sem svo er kall-
að, afgangurinn er í formi ullar-
nýtingarframlags, framlags til
markaðsstarfs (m.a. erlendis!) og
í formi framlags til Lífeyrissjóðs
bænda. Fjórir milljarðar eru mikið
fé. Til samanburðar kostar rekstur
allra sendiráða og sendiskrifstofa
Íslands erlendis um þrjá milljarða
og rekstur Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri kostar um fjóra millj-
arða króna. Auk greiðslna til sauð-
fjárbænda senda skattgreiðendur
einnig kúabændum og grænmetis-
bændum glaðning. Allt í allt eru
heildartilfærslur frá skattgreið-
endum til bænda um 11 milljarð-
ar króna á ári. Það er geipimik-
ið fé. Ellefu milljarðar króna eru
tæplega 37 þúsund krónur á hvert
mannsbarn í landinu eða um 150
þúsund krónur á hverja fjögurra
manna fjölskyldu.
Beingreiðslurnar eru byggð-
ar á samningi milli Bændasam-
takanna og ríkisstjórnar Íslands.
Samningurinn skuldbindur ríkis-
sjóð til að afhenda sauðfjárbænd-
um alla þessa fjármuni á ákveðn-
um dögum. Venjan er sú að þegar
tveir aðilar gera með sér samning
felst í samningnum gagnkvæm-
ar skuldbindingar. Óljóst er hver
skuldbinding bænda er. Ég tel að
samningurinn og þeir ofurtollar
sem landbúnaðarráðuneyti leggur
á innfluttar kjötafurðir skuldbindi
bændur siðferðilega til að selja
stærstan hluta framleiðslu sinnar
á innlendum markaði. Kjörnir tals-
menn bænda og ráðnir embættis-
menn þeirra benda á hinn bóginn
á að ekki sé bókstafur í undirrit-
uðum samningnum er lúti í þessa
átt. Bændum sé frjálst að ráðstafa
sínum sláturafurðum eins og þeim
sýnist þrátt fyrir að bændur hafi
þegið fjóra milljarða „að gjöf“ frá
skattgreiðendum. Löglegt? Vissu-
lega. Siðlaust? Já, að mínu viti.
Beingreiðslur og gæðastýr-
ingarálag dreifist á sauðfjárbænd-
ur í samræmi við greiðslumark
hvers býlis auk fjölda sauðfjár sem
talið er fram á búfjárskýrslum.
Greiðslumark ræðst af fjölda
ærgilda sem skráð er á hvert býli.
Greiðsla á hvert ærgildi nam ríf-
lega 5.700 krónum á árinu 2010.
Meðalgæðastýringarálag var um
helmingur þeirrar fjárhæðar.
Taflan hér fyrir ofan sýnir meðal-
upphæð beingreiðslna og gæða-
stýringarálags á býli eftir stærð
býlanna. Stærðin er mæld í ærgild-
um.
Taflan ber með sér að 1.926 býli
fengu beingreiðslur árið 2010. Að
meðaltali fær hvert býli 1,1 millj-
ón króna árlega. Sé gæðastýring-
argreiðslunum bætt við er greiðsla
á býli ríflega 1,6 milljónir króna á
ári. Til samanburðar eru grunnat-
vinnuleysisbætur 1,9 milljónir á
ári. Um 750 býli eru með greiðslu-
mark undir 100 ærgildum. Þau
tæplega 1.200 býli sem eru með
hærra greiðslumark en 100 ærgildi
fá sendar frá tveimur og upp í ell-
efu milljónir króna í umslagi frá
ríkisféhirði árlega. Eig-
endur 128 býla fá frá 5 til
11/12 milljónir á ári, eða
frá 400 þúsund krónum
og upp í um eina millj-
ón króna mánaðarlega.
Þetta jafngildir fullum
atvinnuleysisbótum 2ja
til sex karla eða kvenna
allan ársins hring! Það
verður ekki annað sagt
en ríkisvaldið og skatt-
greiðendur séu að gera
afar vel við ábúendur á
þessum 128 býlum.
Þó þversagnarkennt
sé þá er afkoma all-
margra bænda slæm
þrátt fyrir miklar til-
færslur fjármuna frá skattgreið-
endum. Ástæðan er óhagkvæm
stærð búanna og óþarflega mikið
umfang greinarinnar allrar. Ætla
mætti að ríkisvaldið reyndi að
nota þá miklu fjármuni sem til
landbúnaðarstarfseminnar renn-
ur til að koma rekstrinum á heil-
brigt og sjálfbært stig. Það er ekki
gert heldur afhendir landbúnaðar-
ráðherra sauðfjárbændum þessa
fjóra milljarða króna án skuldbind-
inga og skilyrða. Slík skilyrðislaus
afhending fjár viðgengst ekki einu
sinni í hinu „vonda“ Evrópusam-
bandi. Evrópusambandsbændur
þurfa að sækja um beingreiðslur
og fá þær ekki nema þeim takist að
sýna fram á að starfsemi þeirra sé
sjálfbær, að landnýting
stuðli ekki að rányrkju,
að notkun aukaefna sé
innan viðurkenndra
marka o.s.frv. Eðli-
legt væri hér á landi að
binda beingreiðslur við
skilyrði um lágmarks
sölumagn dilkakjöts á
innanlandsmarkaði, að
búskapur styrkþegans
sé sjálfbær og stuðli
ekki að uppblæstri, að
fé sé í beitarhólfum og
ekki í vegköntum eða
uppblásnum heiðarlönd-
um. Atvinnulaus maður
þarf að leggja fram alls
konar vottorð áður en
hann fær sínar bætur. Atvinnulaus
maður þarf að sækja námskeið og
leita sér vinnu til að halda bótum
sínum. Beingreiðslur streyma hins
vegar án umsóknar og án nokkurra
skilyrða frá ríkisféhirði til hand-
hafa greiðslumarks.
Að lokum þetta: Skilyrðislaust
peningaaustur úr ríkissjóði til
sauðfjárbænda viðheldur halla-
rekstri margra sauðfjárbúa, tefur
eða kæfir eðlilega þróun greinar-
innar, skilar neytendum dýru kjöti
og skattgreiðendum ómældum
útgjöldum. Það er erfitt að skilja að
nokkur aðili sem starfar að fram-
leiðslumálum og styrkjamálum
sauðfjárbúskaparins geti unað við
óbreytt ástand.
Ekki má líta framhjá því að auk þess að vera fræðilegur
aflvaki er Akademían ekki síður mikilvæg atvinnusköpun í
nærsamfélagi sínu.
Eðlilegt væri
hér á landi að
binda bein-
greiðslur við
skilyrði um
lágmarks
sölumagn
dilkakjöts …
Beint í vasa sauðfjárbænda
AkureyrarAkademían:
Hluti af fræðasamfélagi Norðurlands
Landbúnaður
Þórólfur
Matthíasson
prófessor í hagfræði
Fræðasamfélag
Pétur Björgvin
Þorsteinsson
djákni
Beingreiðslur og gæðastýringarálag á býli eftir stærð býla
Ærgildi Fjöldi býla Beingreiðslur á býli, Beingreiðslur og gæðastýringarálag
krónur á ári á býli, krónur á ári
0-50 495 92.535 138.803
50-100 273 425.227 637.841
100–200 380 821.030 1.231.545
200–300 333 1.431.356 2.147.034
300–400 203 1.983.191 2.974.787
400–500 116 2.543.994 3.815.990
500–600 57 3.165.991 4.748.986
600–700 30 3.663.240 5.494.859
700–800 26 4.266.235 6.399.353
800–900 8 4.884.943 7.327.415
900–1.000 2 5.493.132 8.239.698
1.001–1.100 3 7.337.611 11.006.417
Alls 1926 1.101.545 1.652.317
Fyrir haglabyssur eða riffla.
Sjónauki og taska fylgir.
Tvífótur. 9-13”.