Fréttablaðið - 25.08.2011, Side 26
25. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR26
timamot@frettabladid.is
Þeir eru líkari unglömbum en öldung-
um tvíburabræðurnir Ármann og Sig-
dór Sigurðssynir sem eru níræðir í dag.
Þeir eru einmitt að ræða um hvernig
verja eigi deginum þegar blaðamann
ber að. „Ég er búinn að finna gjótu hér
fyrir utan Hafnarfjörð sem ég get falið
mig í,“ segir Sigdór grallaralegur. „Já,
við Sigga verðum ekkert heima heldur,“
segir Ármann en tekur fram að þeir
bræður ætli að halda upp á afmælið á
laugardaginn. Bökunarilmurinn úr eld-
húsinu hjá Sigríði Hrólfsdóttur, konu
hans, gefur til kynna að þar verði gott
með kaffinu.
Fleiri fagnaðarefni eru í fjölskyld-
unni því Sigdór og kona hans, Ída
Heiður Jónsdóttir, eiga gullbrúð-
kaupsafmæli á morgun. „Jú, jú, það
er margheilagt,“ viðurkennir Sigdór.
„Heilmikill pakki.“
Bræðurnir eru fæddir í Neskaup-
stað og uppaldir í Norðfirði hvor á
sínu heimili. „Ég var orðinn níu ára
þegar ég sá þennan mann fyrst,“ segir
Ármann og bendir á Sigdór. „Móðir
okkar dó þegar við vorum mánaðar-
gamlir og við systkinin fimm fórum
hvert í sína áttina.“ Sigdór tekur við.
„Ég var tekinn í fóstur á bæ í sveitinni
sem hét Vindheimar en Ármann var hjá
fólki í þorpinu. Okkur var báðum sagt
að við ættum tvíburabróður en höfðum
engan sérstakan áhuga á að hittast.“
Ármann tekur undir það. „Fóstra
mín sagðist hafa farið með mig að
Vindheimum en þá fór þessi heiðurs-
maður til fjalls og faldi sig. Þannig að
við hittumst fyrst í skóla níu ára gaml-
ir.“ „Við áttum samt ekki sömu leik-
félaga og urðum ekki vinir fyrr en um
fimmtán ára aldur. Þá urðum við sam-
lokur,“ botnar Sigdór.
Ármann og Sigdór eru eineggja tví-
burar og nauðalíkir enda segja þeir
fólk hafa ruglað þeim saman í 90 ár.
Sigdór nefnir dæmi. „Það var einn
asskoti góður verkstjóri á Norðfirði
sem sagði alltaf: „Ert þetta þú eða
bróðir þinn?“ þegar ég kom til hans
með hjólbörur að sækja kol.“ „Ég var
um tíma togaraskipstjóri og Sigdór
stýrimaður,“ rifjar Ármann upp. „Við
komum til Reykjavíkur og þurftum
að sinna ansi mörgum erindum. Þá
fór Sigdór á suma staðina og skrifaði
nafnið mitt, þannig gátum við nýtt tím-
ann betur!“ Sigdór kveðst þrisvar hafa
verið rekinn úr kennslustofu í Stýri-
mannaskólanum því kennarinn hafi
talið að hann væri Ármann. „Þú átt
ekki að sitja hér. Þú ert í hinum bekkn-
um, það veistu,“ sagði kennarinn. „Ég
sá mér leik á borði, greip töskuna og
ætlaði í frí en fávitarnir í bekknum
gátu ekki þagað!“
Bræðurnir byrjuðu á sjó sextán og
sautján ára. „Viðhorfið austur í Nes-
kaupstað var þannig að annaðhvort
kom maður sér út á sjó eða hélt áfram í
beitningarskúrum. Það var ekki margt
að gera,“ segja þeir og rifja upp að oft
hafi þeir siglt með aflann, hvor á sínum
bát, á stríðsárunum. Á seinni árum
hafa þeir átt stangveiði að áhugamáli.
Báðir hafa bræðurnir búið í Hafnar-
firði frá 1955 og haldið þar hvor með
sínu íþróttaliði til að geta verið ósam-
mála. Rígurinn er þó ekki meiri en
það að þeir ætla að halda veisluna á
laugardaginn í Haukaheimilinu. „Það
var Sigdór, sem stakk upp á því þótt
hann haldi með FH,“ bendir Ármann
á. „Já, afmælið verður frá 12 til 15
og allir vinir okkar eru velkomnir ef
þeir nenna,“ segir Sigdór. Snýr sér að
Ármanni. „En ef enginn mætir, hvað
gerum við þá?“ „Þá kaupum við frysti-
hús fyrir kökurnar,“ svarar Ármann að
bragði. gun@frettabladid.is
TVÍBURARNIR ÁRMANN OG SIGDÓR SIGURÐSSYNIR: ERU NÍRÆÐIR Í DAG
Ert þetta þú eða bróðir þinn?
EIGA GULLBRÚÐKAUP Á MORGUN Sigdór og
kona hans, Ída Heiða Jónsdóttir.
SIGDÓR OG ÁRMANN „Þegar við vorum á fraktskipunum vorum við alltaf svartir. Síðan er nóg að spáð sé sólskini,“ segja þeir þegar haft er orð á
að þeir séu útiteknir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MOSAIK
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Hjördísar Lovísu
Pálmadóttur.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Gjörgæsludeild-
ar Sjúkrahúss Akureyrar. Einnig viljum við þakka þeim
innilega, sem hafa gefið til líknarfélaga í hennar
minningu.
Pétur Haraldsson
Fanney Bergþóra Pétursdóttir - Hafsteinn Lúðvíksson
Haraldur Már Pétursson - Silja Einarsdóttir
Úrsúla Nótt Siljudóttir - Helga Dís Hafsteinsdóttir
Illugi Dagur Haraldsson - Ríkharður Pétur Hafsteinsson
Ástkær eiginmaður minn, sonur,
bróðir, tengdasonur, mágur og frændi,
Ragnar Heiðar
Kristinsson
húsasmíðameistari, Bæjarbrekku 10,
Álftanesi,
sem varð bráðkvaddur á heimili sínu fimmtudaginn
18. ágúst, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju
þriðjudaginn 30. ágúst kl. 13.
Ragnheiður Katrín Thorarensen
Ingibjörg Magnúsdóttir
Hulda Björk Ingibergsdóttir
Kristín Þorvaldsdóttir
Þorvaldur Jón Kristinsson
Ólafur Kristinsson Þorbjörg Inga Jónsdóttir
Oddur C.S. Thorarensen Unnur L. Thorarensen
Elín Thorarensen Úlfar Örn Friðriksson
Alma Thorarensen Sindri Sveinbjörnsson
og frændsystkin
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og stuðning við andlát
og útför
Stefaníu Ármannsdóttur
Aðalstræti 62, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í Hlíð og heimaþjónustu
Akureyrarbæjar, og annarra sem aðstoðuðu í
veikindum hennar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Baldur Sigurðsson.
Ástkær eiginkona mín og besti vinur,
móðir, tengdamóðir, amma og systir,
Jóhanna M.
Aðalsteinsdóttir
Hjallahlíð 19b, Mosfellsbæ,
andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 23. ágúst.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en bendum á
Minningarsjóð Karitas í síma 5515606 milli kl. 08.30
og 10.00 eða netfangið karitas@karitas.is
Útförin verður auglýst síðar.
Björn Júlíusson
Unnur Björnsdóttir Ágúst Helgi Jóhannesson
Erla Björnsdóttir Guðmundur Þór Reynisson
Birna Björnsdóttir Sigursteinn Norðfjörð
Kristjánsson
Anna Lilja Björnsdóttir Hallgrímur Jónas Ingvason
Sædís, Örvar, Tómas, Reynir Þór, Björn Emil, Jóhanna
Iðunn.
Anna Björk Aðalsteinsdóttir Lárus S. Aðalsteinsson
Útför okkar ástkæra
Hjálmars Vilhjálmssonar Dr. Philos.
fiskifræðings,
Ásvallagötu 18, Reykjavík,
sem lést laugardaginn 20. ágúst, verður gerð frá
Hallgrímskirkju mánudaginn 29. ágúst kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Kolbrún Sigurðardóttir
Vilhjálmur Hjálmarsson
Sigurður Stefán Hjálmarsson Jóhanna Erlingsdóttir
Kristín Anna Hjálmarsdóttir Jón Þór Geirsson
Ína Björg Hjálmarsdóttir Sigurður Þór Jónsson
Vilhjálmur Hjálmarsson yngri
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Kristján G. Sveinsson
fyrrverandi bifreiðarstjóri,
Sóleyjarima 9, Reykjavík.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju í dag fimmtudag-
inn 25. ágúst kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Margrét Zúber Sveinsdóttir
Guðbjörg Lóní Kristjánsdóttir
Anna Lísa Kristjánsdóttir Leó E. Löve
Aníta Margrét Aradóttir
Kristján Jóhann Arason
Anna Margrét Leósdóttir
ÞÓRUNN ERLU-VALDIMARSDÓTTIR
sagnfræðingur og rithöfundur er 57 ára í dag.
„Ást manna og lands hlýtur að vera gagnkvæm.“
57