Fréttablaðið - 25.08.2011, Blaðsíða 29
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512-5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512
Victoria Beckham er þekkt fyrir fínpússað útlit sem hún full-
komnar með himinháum hælum. Nú þarf dívan hins vegar að
breyta til því eftir aðgerð á baki hafa læknar fyrirskipað henni
að klæðast flatbotna skóm. Það verður því forvitnilegt
að líta skóbúnað Victoríu þegar hún kynnir nýja línu
sína á tískuvikunni í New York eftir hálfan mánuð.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rakel Sólrós Jóhannsdóttir fatahönnuður segir fatastíl sinn klassískan og áberandi.
Freistar gæfunnar í London
Þ
etta er Anna Sui-kjóll sem kærastinn minn, Alexander Dan,
gaf mér þegar ég var í starfsnámi hjá Anna Sui. Mér þykir
mjög vænt um kjólinn. Hann minnir mig á skemmtilega
tíma,“ segir Rakel Sólrós Jóhannsdóttir fatahönnuður,
þegar Fréttablaðið forvitnast um eftirlætisflíkina hennar.
Rakel lýsir kjólnum sem klassískum en áberandi. „Kannski er
það bara minn stíll,“ segir hún hlæjandi. „Mér finnst þægilegt að
vera í einhverju klassísku en poppa það upp. Ég er til dæmis í lit-
ríkum Kronkron-skóm og með silkiklút sem ég keypti í Marokkó
við kjólinn en í klassískum svörtum jakka yfir. Jakkann hannaði
ég sjálf.“
Undanfarið ár hefur Rakel unnið hjá Farmers Market og
sinnt eigin hönnun á kvöldin. Nú er hún á leiðinni til London að
freista gæfunnar. „Ég ætla að reyna að komast í starfsnám
hjá hönnuði, vera í ár og sjá svo til. Ég hef alltaf
verið á leiðinni að prófa eitthvað nýtt og taka
áhættuna og nú er komið að því.“
Ytra ætlar Rakel að nota frítímann til að
sinna eigin hönnun og hennar fyrsta verk verð-
ur að kaupa sér notaða saumvél. „Annars er ég
alveg handalaus.“ heida@frettabladid.is
Opnum með nýja haustvöru
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18
Hlaupainnlegg
Minnka álag á ökkla, hné og bak
Stuðningur fyrir fætur
Aukin dempun
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18.
Lokað á laugardögum í sumar.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vertu vinur
Þ E S S I S TÆ K K A R Þ I G U M N Ú M E R
teg 42026 - vel fylltur og flottur, fæst í BC skálum
á kr. 4.600,- buxur í stíl á kr. 1.990,-
Listh