Fréttablaðið - 25.08.2011, Page 42

Fréttablaðið - 25.08.2011, Page 42
25. ÁGÚST 2011 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● skólar og námskeið Í dag opnar sýningin Leikandi lestrarhestar í Ráðhúsinu. Þar má sjá myndskreytingar Lindu D. Ólafsdóttur úr Lestrarlandinu, nýútkominni lestrarbók Námsgagnastofnunar sem kennd verður fyrstu bekkjum grunnskóla landsins í vetur. „Það er mikill heiður að fá að skapa myndir í lestrarkennslu- bók komandi kynslóða. Áhugi minn á myndskreytingum kvikn- aði þegar ég sjálf lærði að lesa og lá yfir myndunum í Við lesum, á milli þess sem ég klóraði mig fram úr orðunum,“ segir Linda sem var farin að teikna um leið og hún hafði vald á blaði og blý- anti og stefndi barnung að því að starfa við myndskreytingar. „Í hverjum bekk er ávallt einn teiknari og ég var hann. Kennar- inn lét okkur myndskreyta skóla- ljóðin og ég hafði strax mikinn metnað í því. Þá fékk ég mikla hvatningu frá foreldrum mínum og endalausir staflar blaða og lita til taks heima. Það skiptir miklu fyrir þá sem langar að verða betri í teikningu; að æfa sig oft og teikna það sem er í kringum þá hverju sinni,“ segir Linda sem man eftir sér átta ára á myndlistarnámskeiði barna í MHÍ. „Í dag sé ég hvað mamma lagði mikið á sig til að ég kæmist í það sem mér þótti skemmtilegast, en hún taldi aldrei eftir sér að dröslast með mig og litlu tvíburasystkini mín í strætó eldsnemma á morgn- ana til að koma mér á námskeiðið,“ segir Linda þakklát. Linda útskrifaðist með BFA- gráðu frá Listaháskóla Íslands 2001 og MFA-gráðu í myndskreyt- ingum frá Academy of Art Univer- sity í San Francisco 2009. „Ég nýt þess að myndskreyta barnabækur því ég hef svo gaman af fallegum sögum og að sjá þær myndrænt fyrir mér. Myndskreyt- ingar barnabóka eru ekki síður fyrir fullorðna, því foreldrar eru líka gagnrýnendur þegar þeir lesa með börnum sínum. Á sama tíma þurfa myndskreytingar fyrir börn að vera raunsæjar og útilokað að plata þau. Þau rýna í minnstu smá- atriði og taka eftir því ef sögupers- óna skiptir um sokk,“ segir Linda sem teiknaði 38 myndir í Lestrar- landið frá febrúar til júní. „Ég naut þess láns að heim- sækja skólabörn í Austurbæjar- skóla, en af þeim tók ég mynd- ir sem ég studdist við svo teikn- ingarnar yrðu trúverðugri með raunverulegum stellingum barna, fatnaði og svipbrigðum við ólík- an starfa og leik. Hin raunveru- legu börn eru þó ekki í bókinni en vissulega gæti einhver kannast við andlit sitt í sögupersónum.“ Sýningin opnar í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag og stendur til 4. september. - þlg Útilokað að plata krakka Myndirnar vann Linda með akríl-, tré- og olíulitum. Á sýningunni í Ráðhúsinu má sjá áhugavert sköpunarferli myndanna og hvernig Linda vann þær stig frá stigi. Linda D. Ólafsdóttir á vinnustofu sinni þar sem hún skapar litrík ævintýr barna í hefðbundnum teiknistíl og þar sem handbragð listamannsins nýtur sín hvað best. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.