Fréttablaðið - 25.08.2011, Síða 60
25. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR36
Tónlist ★★★
Sumartónleikar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
Auður Gunnarsdóttir og Jónas Ingimundarson
Byrjaði vel
Sumartónleikar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, sem eru haldnir á
þriðjudagskvöldum, eru notalegar stundir. Tónleikasalurinn er ekki mikið
stærri en rúmgóð stofa, og það myndast þægileg nálægð við flytjendur.
Tónleikarnir taka klukkustund og það er ekkert hlé. Svo er hægt að fá sér
kaffi og kruðerí á kaffistofu safnsins á eftir. Þar er útsýnið yfir sundin ein-
staklega fagurt. Það er í rauninni synd að ekki séu haldnir þarna tónleikar
allt árið um kring.
Á þriðjudagskvöldið síðasta komu þar fram Auður Gunnarsdóttir sópran
og Jónas Ingimundarson píanóleikari. Fyrst fluttu þau þrettán íslensk
þjóðlög í útsetningum Þorkels Sigurbjörnssonar. Það eru skemmtilegar
útsetningar. Píanóröddin
er hugvitsamleg og
myndar litríkt mótvægi
við sönginn. Hún
er frjálsleg, jafnvel
fantasíukennd, en samt
alltaf í anda laganna.
Tónleikarnir byrjuðu
vel. Fyrsta lagið,
Nátttröllið var stór-
skemmtilegt í meðförum
Auðar. Hún söng með
tilþrifum, lék tröllið
af svo mikilli innlifun
að maður skellihló. Mörg önnur laganna voru líka kostuleg, eins og t.d.
Gimbillinn mælti – sem kveinkar sér yfir því að verið er að mjólka móður
hans og hann fær ekkert að drekka. Lagið var svo raunalegt í túlkun
Auðar, og píanóleikurinn svo angurvær, að það fór langt yfir strikið og varð
drepfyndið.
Þrjú lög eftir Tryggva Baldvinsson voru næst, Þú ein, Krummi og Gömul
ljósmynd. Þau voru fallega rómantísk og prýðilega mótuð. Helst mátti
finna að því síðasta, en þar voru efstu söngtónarnir ekki alveg hreinir.
Síðust á efnisskránni voru nokkur lög eftir sjálfan píanóleikarann, sem
eru tiltölulega nýkomin út. Þau eru nokkuð misjöfn, laglínurnar fremur
fálmkenndar og ekki grípandi. Píanóröddin skapar alls konar myndir til að
undirstrika það sem sungið er um. Það er í rómantískum anda, þægilegt
áheyrnar, en jaðrar við að vera klisjukennt.
Hér varð maður ekki var við mikinn sannfæringarkraft hjá Auði. Ég hafði
á tilfinningunni að hún hefði lagt minnstu vinnuna í þessi lög, samanborið
við hin. Auðvitað þarf svo ekki að vera. En útkoman var alltént ekki krass-
andi. Óneitanlega fremur óspennandi endir á annars ágætum tónleikum.
Jónas Sen
Niðurstaða: Oftast prýðilegur flutningur. En lögin sjálf voru misbitastæð.
Nýtt sýningarár er að ganga í garð
hjá Íslenska dansflokknum. Fjögur
verk eru á dagskrá Íslenska dans-
flokksins auk annarra viðburða og
sýninga erlendis. Þekktir erlendir
danshöfundar leggja dansflokkn-
um lið, þar á meðal hinn ísraelski
Ohad Narin.
Starfsárinu verður hleypt af
stokkunum í september með haust-
sýningunni Fullkominn dagur til
drauma eftir Anthon Lacky, félaga
úr danshópnum Les Slovaks sem
sýndi hér á Listahátíð í vor. Full-
komnum degi til drauma er lýst
sem óði til dansins, þar sem Lacky
leitast við að draga fram sérkenni
hvers dansara og flétta saman við
sinn persónulega stíl, undir tónlist
Verdis.
Dúettinn Svanurinn eftir Láru
Stefánsdóttur verður fluttur aftur
í nóvember. Sýningin var frum-
flutt 2008 en verður sett upp
aftur í haust í kjölfar velgengni á
danshátíð í Austurríki í sumar.
Einn af hápunktum ársins verð-
ur án efa sýningin Minus 16 eftir
Ísraelann Ohad Narin í febrúar.
Narin er einn rómaðasti danshöf-
undur heims en Íslenski dansflokk-
urinn fékk styrk frá Auroru vel-
gerðasjóði til að setja verkið upp.
Sama kvöld verður Grossstadt-
safari eftir Jo Strömgren flutt
aftur en bæði verkin verða einnig
flutt í Hofi á Akureyri í mars.
Í apríl býður Dansflokkurinn
upp á óhefðbundið verkefni sem
nefnist Ferðalag. Nýjar íslensk-
ar dansmyndir verða frumsýnd-
ar og leikið með listformið á
óvenjulegum vettvangi.
Loks má geta að verkið Tran-
saqunia – Into Thin air eftir
Ernu Ómarsdóttur verður sýnt
í tengslum við Bókamessuna í
Frankfurt í haust.
Nýtt sýningarár hjá Íslenska dansflokknum
ÚR GROSSSTADTSAFARI Verk Jo Strömgren verður flutt aftur í vetur, í þetta sinn á
Stóra sviðinu og í Hofi á Akureyri.
Byltingin var gagnslaus!!!
nefnist fjórða samsýning
Hlyns Hallssonar og Jónu
Hlífar Halldórsdóttur, sem
opnuð verður á Akureyri
á laugardag. Sýningin er
lokahnykkur á þríleiknum
Áfram með smjörlíkið frá
því í fyrra, þar sem rýnt
var í hrunið og eftirmál
þess.
Myndlistarmennirnir Hlynur Halls-
son og Jóna Hlíf Halldórsdóttir
héldu þrjár samsýningar í fyrra
undir heitinu Áfram með smjör líkið,
þar sem fjallað var um góðærið,
hrunið og afleiðingar þess. Á síð-
ustu sýningunni, sem haldin var í
Listasafni ASÍ, var gestum boðið að
skrifa hugmyndir fyrir Nýja Ísland
á smjörpappír, sem síðan var fleygt
í ruslafötu. Hlynur og Jóna Hlíf
hafa nú unnið bókverk í níu bind-
um úr smjörpappírnum og verður
það þungmiðjan í sýningunni Bylt-
ingin var gagnslaus!!! sem opnar í
GalleríBox á Akureyri á laugardag.
„Upphaflega áttu þetta bara að
vera þessar þrjár sýningar,“ segir
Jóna Hlíf, „en við ákváðum að bæta
þeirri fjórðu við sem eins konar
samantekt.“
Auk bókverksins verða á sýn-
ingunni textainnsetningar og ljós-
myndir en yfirskrift sýningarinn-
ar er sótt í veggjakrot fyrir aftan
Hallgrímskirkju og prýðir mynd
af því plakat sýningarinnar. Jóna
Hlíf segir titilinn, sem og annan
texta í verkinu, fyrst og fremst ætl-
aðan til að vekja upp spurningar og
hugleiðingar. Sama tilgangi þjón-
ar textaverk eftir Hjálmar Stefán
Brynjólfsson, sem er skrifað í anda
upphrópunarkenndra bloggkom-
menta og Facebook-færslna. Gest-
ir geta bæði lesið textann í heild
sinni og eins vinnur Jóna Hlíf út frá
honum í innsetningum sínum.
Bókverkið á sýningunni er aðeins
til í einu eintaki en Jóna Hlíf segir
þau Hlyn vera að ræða hugmyndir
um að koma verkinu í aðgengilegt
form til frambúðar.
Byltingin er gagnlaus!!! er liður
af Akureyrarvöku. Sýningin stend-
ur til 11. september.
bergsteinn@frettabladid.is
SMJÖRPAPPÍRSBYLTINGIN
Fjórar aukasýningar á sýn-
ingu Charlotte Bøving „Þetta
er lífið … og om lidt er kaffen
klar“ verða í Iðnó í september.
Sýningin er óður til lífsins;
hugleiðingar, sögur og söngur í
flutningi Charlotte.
Kabarettinn gekk fyrir fullu
húsi í Iðnó allan síðasta vetur
og var Charlotte tilnefnd til
Grímuverðlauna sem besta
söngkonan. Í sýningunni segir
Charlotte frá á íslensku á milli
þess sem hún syngur á dönsku
kvæði eftir Benny Andersen,
Piet Hein, Tove Ditlevse, Half-
dan Rasmussen, Jóhann Sigur-
jónsson og fleiri.
Undirleik annast Pálmi
Sigur hjartarson og Agnar
Már Magnússon.
Þetta er lífið
áfram í Iðnó
JÓNA HLÍF OG HLYNUR Sýna bókverk í níu bindum sem samanstendur af hugmyndum fyrir nýtt Ísland sem gestir á fyrri sýningu
skrifuðu á smjörpappír.
Hjartans
þakkir:
Á allra vörum safnar fyrir nýju barnahjartasónartæki
í samstarfi við Neistann og á morgun verður söfnunar-
og skemmtiþáttur á SkjáEinum. Þátturinn hefst
kl. 21:00 og kemur fjöldi frábærra listamanna fram.
Taktu kvöldið frá og leggðu hjartveikum börnum lið!
70 lítil
hjörtu þurfa
lækningu á
hverju ári
SÖFNUNARÞÁTTUR
Í OPINNI DAGSKRÁ
Á SKJÁEINUM Á MORGUN
Hringdu núna til að styðja söfnunina:
903 3000 903 4000
og þú gefur 1.000 kr. og þú gefur 3.000 kr.
903 1000
og þú gefur 4.000 kr. Fí
t
o
n
/
S
Í
A