Fréttablaðið - 25.08.2011, Side 64

Fréttablaðið - 25.08.2011, Side 64
25. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR40 bio@frettabladid.is > STILLER FÆR CHAPLIN Ben Stiller fær hin virtu Charlie Chaplin-verðlaun Bafta-sam- takanna í Los Angeles. Þetta var tilkynnt á þriðjudag. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn 30. nóvember. Á fyrstu árum níunda ára- tugar síðustu aldar fylgd- ust sjónvarpsáhorfendur (aðallega konur) með þátt- unum Húsið á sléttunni. Þar steig sín fyrstu skref ungur strákur sem hefur tekið sér sinn tíma til að komast á toppinn. Jason Bateman leikur aðalhlut- verkið í kvikmyndinni Change- Up á móti Ryan Reynolds. Bate- man leikur fjölskylduföður sem er öfundsjúkur út í vin sinn, leikinn af Reynolds, en hann hefur vart undan að sofa hjá föngulegu kven- fólki. Eitt kvöld skipta þeir hins vegar um líkama og fá að upplifa líf hvors annars með kostulegum uppákomum. Bateman steig sín fyrstu skref í leiklist hjá frægri bandarískri sjónvarpsfjölskyldu, hinni hjarta- góðu Ingalls-ætt í Walnut Grove í Minnesota. Bateman fór þar með hlutverk James Cooper Ingalls sem Ingalls-fjölskyldan ættleiddi eftir sviplegt fráfall foreldra hans. Hlutverkið varaði í 21 þátt en framtíð hins tíu ára gamla leik- ara var ráðin. Jason Kent Bateman, eins og hann heitir fullu nafni, er fæddur 1969. Hann er sonur Kents Bate- man sem var áhrifamaður í Holly- wood, og flugfreyju. Ingalls-hlut- verkið gerði það að verkum að leikarinn fékk mörg hlutverk í misgóðum sjónvarpsseríum auk þess sem hann birtist af og til í b- myndum sem aldrei skiluðu neinu bitastæðu til baka. Það var því ekki fyrr en sjón- varpsframleiðandinn og hand- ritshöfundurinn Mitchell Hur- witz kom með hlutverk til hans sem var klæðskerasniðið fyrir sérstakan gamanleik og jafnvel hreim Batemans; gamanþáttaröð- ina Arrested Development. Sögu- þráðurinn og persónurnar voru ólíkar öllu því sem bandarískir áhorfendur áttu að venjast, gagn- rýnendur elskuðu þá og þættirnir voru tilnefndir til fjölda Emmy og Golden Globe-verðlauna og hlaut Bateman meðal annars þau síðar- nefndu fyrir leik sinn í þáttunum. En í bandarískum sjónvarpsiðnaði gildir aðeins eitt lögmál: áhorfs- tölur og Arrested Development náði aldrei neinu flugi á því sviði. Fox-sjónvarpsstöðin ákvað því að hætta framleiðslu þeirra eftir aðeins þrjú ár. Hins vegar er nú unnið að handriti fyrir bíómynd um Bluth-fjölskylduna. Bateman naut engu að síður góðs af þáttunum. Hann fékk loks hlutverk í kvikmyndum á borð við Juno, State of Play og Up in the Air eftir Jason Reitman. Bateman hefur síðan haft í nægu að snúast á þessu ári en auk The Change-Up lék hann í kvikmyndunum Paul og Horrible Bosses. freyrgigja@frettabladid.is Ingalls-krakki á nýrri braut Á UPPLEIÐ Þrátt fyrir að hafa verið lengi að í Hollywood má kannski segja að ferill Jasons Bateman stefni upp um þessar mundir. Hann leikur aðalhlutverkið í gamanmyndinni Change-Up. Ben Affleck hefur samkvæmt fréttum vestanhafs samþykkt að leika aðalhlutverkið og leikstýra nýrri hasarmynd frá Joel Silver, framleiðanda Lethal Weapon- myndanna og Die Hard. Myndinni hefur verið gefið vinnuheitið Line of Sight og verð- ur nokkuð óvenjuleg í sniðum því hún mun segja söguna frá sjónar- hóli eins manns og verður tekin upp líkt og fyrstu persónu skot- leikur í tölvum. Peter O‘Brien, sem skrifaði handritið að tölvu- leiknum Halo: Reach, hefur verið beðinn um að skrifa handritið að myndinni. Nýlega var frá því greint að Affleck og eiginkona hans, Jenni- fer Garner, ættu von á sínu þriðja barni og því er í mörg horn að líta hjá Hollywood-stjörnunni. Næsta mynd sem hann leikur í er hins vegar kvikmyndin Argo og sögu- þráður hennar lofar nokkuð góðu. Hún fjallar um hóp CIA-njósnara sem smygla sér inn í Íran í líki sci- fi kvikmyndagerðarmanna. Meðal mótleikara Afflecks í myndinni eru John Goodman og Alan Arkin. Affleck í nýrri hasarmynd Eftir mögur ár í Hollywood hefur Antonio Banderas snúið aftur í arma spænska leikstjórans Pedros Almodóv- ar því kvikmyndin La piel que habito er fyrsta kvikmynd þeirra tveggja í 21 ár. Myndin var frumsýnd í Cannes fyrr á þessu ári og fékk afbragðsgóða dóma. Almodóvar reynir sig við vísinda- skáldskap í fyrsta sinn en höfuðein- kenni hans eru aldrei langt undan. Myndin er byggð á skáldsögunni Tar- antula eftir Thierry Jonquet og segir frá lýtalækninum Robert Ledgard sem segist hafa fundið upp fullkomið skinn. Hann tekur jafnframt fram að hann hafi eingöngu prófað skinnið á tilrauna- músum en það er ekki alveg sannleik- anum samkvæmt. Banderas hefur ekki átt sjö dagana sæla á hvíta tjaldinu í Hollywood og hefur helst alið manninn í arfaslökum B-myndum. Það er því ekkert skrýtið að hann skuli leita aftur á náðir Almodóvars en spænski kvikmyndarisinn á einna helst heiðurinn af glæstum ferli Band- eras. Hann gaf leikaranum sitt fyrsta tækifæri í Laberinto de pas- iones sem frumsýnd var 1982 og tveimur árum seinna var Band eras á allra vörum fyrir frammistöðu sína í La ley del deseo. Það var svo með kvik- myndunum Konur á barmi taugaáfalls og Bittu mig, elskaðu mig, báðar eftir Almodóvar, að Banderas fór vestur um haf til Hollywood. Banderas snýr aftur til Almodóvars Íslensku kvikmyndinni Á annan veg hefur verið boðið að keppa á San Sebastian-kvikmyndahátíðinni á Spáni. Leikstjóri er Hafsteinn Gunnar Sigurðsson en hátíðin fer fram 16.-24. september. Myndin keppir í New Directors Award- flokknum en hann er tileinkaður fyrstu eða annarri mynd leikstjóra. Til mikils er að vinna því fyrstu verðlaun eru 90 þúsund evrur sem skiptast jafnt á milli leikstjóra og spænskra dreifingaraðila. Á annan veg fjallar um tvo vega- vinnukarla á 9. áratug síðustu aldar sem vinna við afskekkta fjallvegi. Þeim kemur ákaflega illa saman til að byrja með en þegar lífið tekur óvænta stefnu læra þeir að meta félagsskap hvor annars. Með aðalhlutverkin í myndinni fara þeir Sveinn Ólafur Gunnars- son, Hilmar Guðjónsson og Þor- steinn Bachmann. Keppir á Spáni KOMINN HEIM Antonio Band- eras er kominn aftur heim og leikur að nýju undir stjórn Pedros Almodóvar í kvikmynd- inni La piel que habito. TIL SPÁNAR Mynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, Á annan veg, keppir á San Sebastian-kvikmyndahátíðinni. NÝ TEGUND AF HASAR Ben Affleck hefur tekið að sér aðalhlutverkið í kvikmyndinni Line of Sight. Sambíóin ætla að blása til Kvik- myndadaga í Kringlunni og sýna kvikmyndir sem farið hafa sigur- för um heiminn. Opnunarmynd hátíðarinnar verður Tree of Life eftir Terence Malick en hluti hennar var tekinn hér á landi. Með aðalhlutverkin fara þeir Brad Pitt og Sean Penn. Myndin vann Gull pálmann á Cannes á þessu ári. Þá verður dýrasta kvikmynd Asíu, Red Cliff, einnig sýnd á hátíðinni en hún er eftir John Woo sem hefur getið sér gott orð fyrir hasarmyndir sínar í Hollywood. Sambíóin ætla einnig að sýna Beaver, kvikmynd Mels Gibson í leikstjórn Jodie Foster en hún er fyrsta kvikmynd ástralska leikarans eftir stöðug vandamál í einkalífinu. Þá verður myndin Fair Game sýnd en hún skart- ar Sean Penn og Naomi Watts í aðalhlutverkum. Veisla í Sambíóunum CANNES-MYND Tree of Life með Sean Penn og Brad Pitt í aðalhlutverkum verður frumsýnd á Kvikmynda- dögum Sambíóanna sem hefjast á föstudaginn. Ný fjölmiðlakönnun Capacent Gallup staðfestir vinsældir Fréttablaðsins. Rúmlega 72% íbúa höfuðborgarsvæðisins á aldrinum 18-49 lesa að meðaltali hvert tölublað Fréttablaðsins - nær þrefalt fleiri en lesa næsta dagblað þar á eftir. Fólkið í landinu les Fréttablaðið Allt sem þú þarft... Prentmiðlakönnun Capacent Gallup. Apríl til júní 2011, meðallestur á tölublað.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.