Fréttablaðið - 25.08.2011, Side 66
25. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR42
folk@frettabladid.is
Kántrísöngkonunni LeAnn Rimes brá heldur í brún
þegar gestur veitingahúss vatt sér að henni og skammaði
hana fyrir að vera of mjó. Rimes, sem sat að snæðingi
ásamt eiginmanni sínum, leikaranum Eddie Cibrian, var
mjög brugðið og skrifaði svo reiðilestur til konunnar á
samskiptavefnum Twitter þegar heim var komið.
„Hvernig vogaði hún sér að koma upp að borðinu
mínu og segja mér að borða meira? Er ekki allt í lagi
með fólk? Á meðan ég þarf að borða meira þarf hún
að læra mannasiði.“
Holdafar Rimes hefur verið í kastljósi fjölmiðla
en hún þykir vera of mjó og hafa grennst hratt
síðustu mánuði.
Þykir of mjó
REIÐ Á VEITINGAHÚSI Söngkonan LeAnn Rimes fékk að
heyra það frá veitingahúsagesti sem hvatti hana til að
borða meira. NORDICPHOTO/GETTY
2
Friðrika Hjördís Geirs-
dóttir hefur eytt öllu sumr-
inu í að undirbúa nýjan
matarþátt fyrir Stöð 2. Sam-
kvæmt síðustu tölum hefur
hún líka selt tuttugu þús-
und eintök af tveimur mat-
reiðslubókum sem komu út
á þessu ári.
„Þetta er bara búið að vera enn ein
meðgangan,“ segir Friðrika Hjör-
dís Geirsdóttir sjónvarpskona.
Hún hefur selt, samkvæmt síð-
ustu tölum, tuttugu þúsund ein-
tök af matreiðslubókunum sínum
tveimur sem komið hafa út á síð-
astliðnum níu mánuðum; annars
vegar Léttir réttir og hins vegar
Bollakökubókin. Friðrika segir
þetta vera skemmtilegar tölur.
„Maður er auðvitað þakklátur
fyrir þessar viðtökur og ég hafði
ekki alveg gert mér grein fyrir
þessu.“
Friðrika er síður en svo hætt
allri útgáfustarfsemi því í októ-
ber kemur út þriðja bókin sem
unnin er í tengslum við nýja mat-
reiðsluþætti á Stöð 2. Hún gæti því
mögulega náð hálfgerðri Arnald-
ar Indriða-stöðu hvað sölu varðar
þótt sjónvarpskonan geri lítið úr
þeim samanburði. „Hann verður
alltaf á toppnum.“
Friðrika hefur því átt lítið
sumar frí, hún hefur eytt því í að
undirbúa þáttaröðina enda segir
hún að kyrrseta eigi ekki við sig.
„Þarna fær athyglis-
bresturinn að njóta
sín til fullnustu.“
Hún segist jafn-
framt njóta þess að
vinna við matar-
gerðarþætti enda
reyni hún alltaf að
finna eitthvað nýtt
til að gera. „Núna
ætlum við til að
mynda að ferðast
um heiminn án
þess að stíga fæti
út úr eldhúsinu.
Eitt land í einu
verður tekið
fyrir í hverjum
þætti og kynnt-
ir til leiks réttir
sem fólk tengir
við það.“
freyrgigja@
frettabladid.is
HEFUR SELT 20
ÞÚSUND BÆKUR
GÓÐUR ÁRANGUR Friðrika Hjördís
Geirsdóttir hefur selt tuttugu
þúsund eintök af tveimur mat-
reiðslubókum sínum á aðeins níu
mánuðum.
MILLJÓNIR MANNA borguðu sig inn á vefsíðu sem sýnir gamalt kynlífsmyndband Kim Kardashian og
rapparans Ray J um svipað leyti og raunveruleikastjarnan gekk að eiga Kris Humphries. Venjulega er vefsíðan með
300 þúsund gesti. Google greinir frá því að írskir karlmenn voru duglegastir við að hala niður myndbandinu.
Það munar
miklu að vera
í Námunni
Náman er vildarþjónusta fyrir alla námsmenn, 16 ára og
eldri. Lögð er áhersla á þjónustu sem sniðin er að þörfum
hvers og eins, betri kjör og fjölbreytt fríðindi.
Þú færð Auntsdesign
bolinn til styrktar
Neistanum á eftirtöldum
útsölustöðum:
Rita Bæjarlind 6 og Eddufelli 2.
Nordic Store, Lækjargata 2.
Neistinn, Síðumúla 6.
Auntsdesign-Studio, Hlíðasmára 8.
Kúnígúnd Kringlunni og Laugarveg 53.
Hús Handanna, Egilstöðum.
Fríhöfnin - Rammagerðin.
Álafoss, Kvosinni Mosfellsbær.
Hrím Hönnunarverslun, Hofi
Menningarhúsi og Kaupvangsstræti 10,
600 Akureyri.
Baðhúsið, Brautarholti 20.
www.auntsdesign.is
Íslensk hönnun