Fréttablaðið - 25.08.2011, Page 80
DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
Sárabót frá Doktornum
Tónlistarfræðingurinn Dr. Gunni
stefnir að því að láta geisladisk
fylgja með popp- og rokkbók
sinni sem kemur út á næsta ári.
Bókin, sem hefur borið vinnuheitið
Stuð stuð stuð – Íslenskt popp
og rokk 1950-2010, átti að koma
út fyrir þessi jól en útgáfunni var
frestað eins og kom fram í Frétta-
blaðinu í gær. Á diskinum verður
óútgefið, sjaldheyrt efni með
mörgum af vinsælustu
hljómsveitum Íslands-
sögunnar og geta
tónlistaráhugamenn
því hugsað sér gott til
glóðarinnar þegar
bókin lítur
dagsins ljós.
Hárið heldur áfram
Uppsetning leikhópsins Silfurtungls
á Hárinu virðist ætla að ganga
jafnvel í Reykjavík og í höfuðstað
Norðurlands. Á Akureyri var upp-
selt á fimmtán sýningar og var því
ákveðið að fara með sýninguna í
tónlistarhúsið Hörpu, þar sem sýnt
hefur verið í sumar. Fyrir helgina
voru lokasýningar, eða svo var sagt.
Nú hefur verið ákveðið að bæta við
sjö sýningum í september. Upphaf-
lega átti bara að sýna verkið í júlí,
en svo virðist sem Íslendingar fái
ekki nóg af Jóni Gunnari Þórðarsyni
leikstjóra og hans fólki.
Göngu-
götunni á
Akureyri kvenfatavers lun
FORSÍÐA VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
ÞÚ ERT MEÐ
FRÆGA FÓLKIÐ
Í VASANUM
MEÐ VÍSI
m.visir.is
Fáðu Vísií símann!
Góður gestur á Airwaves
Bandaríski tónlistarmaðurinn,
plötusnúðurinn og útgefandinn
James Murphy, hefur boðað
komu sína á Iceland Airwaves-tón-
listarhátíðina í október. Hann er
einn stofnenda DFA-útgáfunnar
en frægastur er hann fyrir sólóferil
sinn og eins manns sveitina LCD
Soundsystem sem sendi frá sér
þrjár plötur sem hlutu
fádæma góðar viðtökur.
Óhætt er að fullyrða
að dansfúsir munu
fjölmenna á hátíðina
þegar Murphy
treður upp.
- fb, þeb, hdm
1 Nakin Nigella hneykslar
nágranna sína
2 Opna í Háskólanum í
Reykjavík
3 Barnið átti grunlausan
blóðföður á Íslandi
4 Eru ekki að skilja
5 Fundu hafstraum sem gæti
breytt loftslagskenningum