Búfræðingurinn - 01.01.1939, Síða 102
Nokkur orð um plægingar.
Höfundur greinar þessarar er búfræðingur frá Hólum og gagnfræðingur
af Möðruvallaskóla. Hann hefir lengi verið barnakennari á vetrum, en
unnið mest að jarðabótum að sumrinu með hestum sínum. Hann hefir
reynzt góður maöur og dugandi við störf þessi og því eftirsóttur.
Vorið 1904 var hann í gróðrarstöðinni á Akureyri við verklegt nám í
átta vikur. Þó vann hann aðeins eina viku með hestum og voru 24 klst.
af vikunni notaðar til plæginga. En oft sá hann aðra vinna að plægingum
um vorið og kom það honum að góðu liði. Árið eftir keypti Björn dráttar-
hesta og jarðvinnsluverkfæri. Tók hann þá að vinna að jarðabótum.
Verkið sóttist ekki sem bezt í fyrstu og kaupið var lítið. Hér var því
ekki um arðsama atvinnu að ræða. En Björn sá þörfina á því að milda
moldina og uppgafst ekki. Hann hefir síðan unnið að plægingu og
herfingu á hverju sumri, og síðan 1920 hefir hann plægt að jafnaði 60
—80 dagsláttur yfir sumarið og oft unnið auk þess mikið að herfingu.
Björn er vanur þvi að plægja um dagsláttu á dag, þegar um sæmilegt
land er að ræða. Fram um 1916 var dagkaup hans kr. 7,50, og var þá
miðað við 10 stunda vinnudag. Nú um allmörg ár hefir dagkaup hans
verið 15 kr. Leggur hann þá til 4—6 hesta og öll þau áhöld, er hann þarf
að nota. Björn flytur alltaf hesta sína og verkfæri einn á milli vinnu-
staða og reiknar aldrei kaup fyrir þau störf sín. Þó er þetta all erfitt
verk og tímafrekt, því að víða er um vegleysur að fara. Björn er vanur því
að flytja plóg sinn á reiðingshesti, ef ekki er um fleiri verkfæri að
ræða. En stundum flytur hann eitt eða tvö herfi auk plógsins, og notar
þá sleða, er hann beitir þremur hestum fyrir. Ber þá oft við, að hann
þarf að aka yfir rótlitlar mýrar, ár og annað torleiði, Þó telur hann, að
flutningstæki þetta hafi reynzt sér vel.
Mörgum mönnum hefir Björn kennt plægingar, en fáir þykir honum
þeir hafa lagt þá rækt við þá atvinnu sem skyldi, eftir að þeir höfðu
lært verkið.
Björn hefir plægt mikið á annað þúsund dagsláttur á þeim 33 árum,
sem liðin eru frá því að hann hóf jarðræktarstörf sín. Auk þessa hefir
hann unnið mikið að herfingu. Björn er maður vandur að öllum verkum
sínum, enda leysir hann plægingar sínar svo af hendi, að fáir gera það
eins vel og hann. Sumir halda, að Björn sé sá maður á íslandi, sem