Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2001, Blaðsíða 20

Frjáls verslun - 01.03.2001, Blaðsíða 20
Foreldrar Baltasars Kormáks, Baltasar Samþer og Kristjana Samþer ásamt Lilju Pálmadóttur, eiginkonu og meðeiganda Baltasars Kormáks í framleiðslu- og umboðsfyrirtœkinu Sögn ehf. leikhús einu sinni á ári eða ríflega það því að heildaraðsókn í Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið og Loftkastalann jafngildir höfðatölu þjóðarinnar. Þá eru hinir leikhóparnir ótaldir. Aðsókn- in hjá sjálfstæðu leikhópunum hefur aukist gríðarlega og á Leik- félag íslands þar stærstan hlut. Framleiðsla leiksýninga hjá sjálf- stæðu leikhúsunum kostar 5-10 milljónir og allt upp í 25 milljón- ir króna. Um 10 þúsund áhorfendur teljast mjög góð aðsókn en frábært er að fá 40 þúsund áhorfendur. Sé miðað við 2.000 króna meðalmiðaverð getur veltan numið frá 20 milljónum króna upp í 80 milljónir og er það varlega áætlað. Baltasar vitnar í orð kvik- myndaframleiðenda í Holljwood. „Enginn veit neitt á þessum markaði. Framlegð af leikriti getur orðið veruleg en tapið getur líka orðið mjög stórt. Þetta er mikil áhætta,“ segir hann og bætir við: „Hver hefði td. reiknað með velgengni Hellisbúans, þar sem óþekktur leikari stóð einn á sviðinu, nánast án umgjarðar?“ Kostnaðurinn við kvikmyndagerðina er gríðarlegur og stundum gengur illa að íjármagna myndirnar. Framleiðslan á 101 Reykjavík, frumraun Baltasars í kvikmyndaleikstjórninni, er dæmi um það. Hún kostaði 150 milljónir króna í framleiðslu, þar af tók 101 Reykjavík ehf. áhættu upp á 100 milljónir króna. Baltasar ber sig vel og segir að áhættan virðist ætla að borga sig og vonandi gott betur. „Eg lit íyrst og fremst á þetta sem ijárfestingu í framtíðinni. Þetta er auðvitað ákveðinn fórnar- kostnaður. Núna gengur mér t.d. miklu betur að fjármagna Hafið sem þó er enn íslenskari mynd en 101 Reykjavík. I þeirri mynd var ég að kynna sjálfan mig í fyrsta skipti sem kvik- myndaleikstjóra og nú hafa menn meiri áhuga á minni vinnu erlendis þannig að ég tel að þetta muni skila sér til lengri tíma litið. Eg er þegar farinn að fá tilboð frá Ameríku sem hljóða upp á ágætis pening,“ segir hann. - Hvað kallarðu ágætís pening? „Eg vil ekki tala um það þvi að það er svo mikil öfund í samfélaginu í sam- bandi við peninga. Iistamenn mega aldrei bera neitt úr býtum. Þá verður allt öfugsnúið. En það sem fæst fyrir að leikstýra og skrifa handrit erlend- is getur verið það sama og menn fá út úr Kvikmyndasjóði hér heima til að búa til kvikmyndina," svarar hann. Hægt að hagnast á kvikmyndum Baltasar telur að markaðurinn fyrir íslenska kvikmyndagerð erlendis sé ekki mikill en bendir á að 101 Reykja- vík sé sennilega sú mynd sem hvað víðast muni fara. „Eg held að mér sé óhætt að segja að hún stefni í að verða mest sótta myndin erlendis því að það er búið að kaupa sýningarrétt- inn á henni það víða og fyrstu tölur frá þeim löndum, þar sem hún hefur verið sýnd, eru hærri en áður hefur sést á íslenskri mynd. Ut úr þessu fást ekki miklir peningar, ekki ennþá, en við erum að brjóta ákveðinn ís,“ segir hann og telur mögulegt að hagnast á kvikmyndum. „Það er hægt að flármagna kvikmyndir með styrkjum langleiðina upp í kostnað, aígangurinn er tekjur en því miður hefur íslendingum ekki tekist að hagnast mikið á kvikmyndum. Spurningin er hvað er skilgreint sem ís- lensk kvikmynd. Kvikmynd, sem er tekin á ensku, getur verið ís- lensk. Ef við skilgreinum íslenskar kvikmyndir sem bara þær myndir sem eru á íslensku þá verður mjög erfitt að markaðssetja þær erlendis en það er þó ekki ómögulegt," segir hann. - Hvaða þýðingu telur þú að Sigurjón Sighvatsson, Friðrik Þór Friðriksson og aðrir kvikmyndaframleiðendur hafi fyrir íslenska kvikmyndagerð? „Sigurjón hefur ekki beitt sér mikið í íslenskri kvikmyndagerð því að hann hefur fyrst og fremst verið í Hollywood. Eg veit ekki um þýðingu þess. Hann getur kannski opnað tækifæri ef hann kærir sig um en ég held að hann sé ekki þar til að bjarga ís- lensku þjóðinni. Hann er í viðskiptum til að vinna fyrir sinni fjöl- skyldu og byggja upp sitt fyrirtæki. Svo skemmtilega vill til að við Sigurjón erum að fara að vinna saman. Önnur fyrirtæki höfðu áhuga á að vinna með mér að þessu verkefni en mér fannst ákveðið öryggi felast í því fyrir sjálfan mig að vinna með honum þannig að hans fyrirtæki varð fyrir valinu. Þýðing Friðriks Þórs er fyrst og fremst sú að hann hefur skap- að sambönd erlendis til að fá fjármagn inn í íslenskar kvikmynd- ir. Það er mjög jákvætt og getur dregið vagninn langt í kynningu en svo stendur maður alltaf einn þegar á hólminn er komið. Eg held að 101 Reykjavík gangi ekkert endilega vel af því að Friðriki Þór hefur gengið vel. Hins vegar hefur reynslan sýnt að ef það Með Pina Colada? „Ég sá ekki framtíðina á sundlaugarbarmi með Pina Colada í annarri hendinni en ég vil hins vegar hafa bæði sambönd og möguleika erlendis. Það er ekkert sem segir að ekki sá hægt að hafa skrifstofu f Reykjavík en starfa erlendis.“ 20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.