Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2001, Page 67

Frjáls verslun - 01.03.2001, Page 67
Fyrst eftir að þið byrjið skuluð þið gera eins og til er ætlast af ykkur en reynið að fmna leiðir til að bæta verðmætum við og láta taka eftir ykkur. Með hugkvæmni, sveigjanleika og með því að benda á það sem mestu máli skiptir auk- ið þið verulega líkurnar á því að eftir ykkur verði tekið. Munið: „Fólk fagnar breytingu ef þið sýnið fram á að það hafi hag af henni.“ Stjörnandi jiarf umfram allt að vera skilningsríkur gagnvart starfsmönn- unum en hann þarf líka að taka erf- iðar ákvarðanir. Ef einhver neitar að verða við fyrirmælum ykkar þarf að grípa til formlegrar refs- ingar í fullu samráði við jdirmann- inn. Endirinn á ósamlyndinu gæti orðið sá að þið þyrftuð í fyrsta sinn að reka einhvern. Hafið þið búið ykkur undir slíkt? ÞÚtt fundurinn sé leiðinlegasta samkunda sem þið hafið nokkru sinni setið megið þið alls ekki láta á því bera. Ef þið geispið, lítið á klukkuna, klór- ið ykkur í kollinum (eða á enn verri stöðum) og gónið út um gluggann verður aldrei litið á ykkur öðruvísi en sem að- skotadýr. Það getur komið mönnum í koll að væla á kránni út af starfmu, yfirmanninum, fyrir- tækinu eða undirmönnunum. Gá- laust tal getur hæglega varpað skugga á einlægni ykkar og hollustu í starfi. reynið þannig að fá vel grundaða mynd af þvi á hvaða braut fyrirtækið ykkar er. Vinnuhópar starfa því aðeins af krafti að hver maður í hópnum skilji fyllilega hvert hans hlutverk og markmið er. Ef ykkur grunar að misbrestur sé á þessu í hópnum sem þið stýrið, verðið þið að ganga úr skugga um það sem allra fyrst. Ykkar hlutverk í hópnum er vandasamt því þið viljið ekki missa dugandi fólk. Þið þurfið líka að halda jafnvægi milli breytinga í hópvinnunni og breytinga í vinnu einstaklinganna. Bókinni er fyrst og fremst ætlað að hjálpa þeim sem ekki hafa mikla reynslu af stjórnunarstörfum en að sjálfsögðu getur hún nýst öllum stjórnendum. Verið Sjálfum ykkur samkvæm. Fólk þarf að vita nákvæmlega hvar það hefur ykkur til að vera visst um að viðmiðin sem þið hafið sett og starfsfólkið verður sjálft dæmt eftir, breytist ekki. Hreyfið ekki við markmiðunum. Verið ákveðin, ekki frek Verið ákveðin. Það er auðvitað gömul tugga að segja: Verið ákveðin, ekki frek, en hún er alveg hárrátt. Standið fast á því sem þið teijið rétt og hvikið hvergi og látið fyrir hvern mun ekki aðra ráðskast með ykkur. 67

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.