Frjáls verslun - 01.03.2001, Síða 82
KOSTIR VIÐBÓTARLÍFEYRISSPARNAÐAR
Hjá Landsbanka íslands eru nú á annan tug þúsunda
manna og kvenna sem nýta sér þjónustu varðandi lífeyris-
sparnað. Leiðir þeirra sem vilja nota sér viðbótarlífeyrs-
sparnaðinn eru margar, eða 13 ávöxtunarleiðir og þannig
tryggt að hver og einn finni það sem honum hentar.
„Við kynnum viðskiptavinum okkar þjónustuna fyrst og
fremst í útibúum bankans þar sem þjónustufulltrúar okkar
spyrja gjarnan að því hvort viðkomandi hafi nýtt sér hana og
segjum honum frá kostum sparnaðarins,“ segir Guðrún Olafs-
dóttir, sérfræðingur í einstaklingsviðskiptum hjá Landsbanka
Islands. „Einnig förum við í heimsóknir í fyrirtæki til að kynna
þessa þjónustu og hefur henni verið afburða vel tekið. Við höf-
um þétt dreifinet og tryggjum með því launafólki ákveðið ör-
yggi, en það er það m.a. sem fólk væntir þegar um lífeyris-
sparnað er að ræða.“
Eftir lagabreytingarnar sem gerðar voru á árinu 2000 eiga
launþegar þess kost að leggja fyrir allt að 4% af launum sínum
í viðbótarlífeyrissparnað og fá á móti framlag frá ríkissjóði í
gegnum launagreiðanda sem stendur skil á framlaginu gagn-
vart launþega.
Meðal þeirra launþegasamtaka sem samið hafa um aukið
mótframlag launagreiðanda, eru VR, LÍV, VMSÍ, SAMIÐN,
Rafiðnaðarsambandið, LANDIÐN, Flóabandalagið, BHM,
BSRB, Kennarasamband Islands og fleiri.
Skattahagræðið og ávinningurinn er augljós að sögn Guð-
rúnar. „Við getum tekið sem dæmi hjón sem hafa hvort um sig
170.000 kr. í laun á mánuði. Eiginkonan leggur fyrir í viðbótar-
lífeyrissparnað og nýtir öll réttindi sín, en eiginmaðurinn ekki.
Þannig er hún að leggja fyrir 9.180 kr. á mánuði miðað við 1,4%
mótframlag, en útborguð laun hennar lækka aðeins um 4.164
kr. Reyndar hefur eiginmaðurinn 4.164 kr. meira til ráðstöfun-
ar en á móti tapar hann 2.380 kr. mótframlögum frá ríkissjóði
og launagreiðanda, leggur ekkert fyrir og nýtur ekki tekju-
skattsfrestunar líkt og eiginkonan."
Þóra Katrín Gunnarsdóttir, lifeyrisráðgjafi hjá Landsbréfum,
segir launþegum og launagreiðendum einnig frjálst að gera
einstaklingsbundna samninga sín á milli um aukið mótframlag
í viðbótarlífeyrissparnað. Sífellt færist í vöxt að launagreiðend-
ur greiði hærra mótframlag og getur það í mörgum tilfellum
verið hagstætt fyrir báða aðila. Sjálfstæðir atvinnurekendur
geta einnig skilað hærra mótframlagi til eigin sparnaðar.
„Þess þarf svo að gæta hvar best er að setja sparnaðinn,"
segir Þóra Katrín. „Sé söfnunartíminn skemmri en 10 ár, er
skynsamlegra að setja þá í öruggari ávöxtunarleiðir þar sem
sveiflur í ávöxtun eru minni. Þeir sem eiga meira en 10 ár af
söfnunartíma sínum eftir eru oftast betur í stakk búnir til að
taka áhættu og standa af sér hugsanlegar sveiflur sem geta
orðið í ávöxtun áhættusæknari leiða.“ S!1
Einnig förum við í heimsóknir í fyrirtæki til að kynna þessa þjónustu og hefur henni verið afburða vel tekið.
82