Frjáls verslun - 01.08.2003, Blaðsíða 92
300
STÆRSTU
„Hröð atburðarás í fjárfestingum og aukið
vægi Samkeppnisstofiiunar í viðskiptalífinu
hefiir komið á óvart“
- Hídfjór Hafsteinsson, forstjóri flugfélagsins Atianta
HAFÞÚR HAFSTEINSSON,
FORSTJÓRI FLUGFÉLAGSINS ATLANTA
Mest á óvart í viðskiptalííinu á árinu? „Mikil umskipti og
átök, þá sérstaklega hröð atburðarás í fjárfestingum og aukið
vægi Samkeppnisstofnunar í viðskiptalífinu.“
Forgangsverkefni forstjóra í vetur? „Vera meðvitaðir um
hlutverk sitt og ábyrgð, virða viðskiptasiðareglur í breyttu
umhveríi. Standast þær kröfur sem eru nauðsynlegar í alþjóða-
væðingu íslensks viðskiptalifs. Standa undir væntingum hlut-
hafa um aukna arðsemi og búa starfsfólki gott starfsumhverii
til að ná þeim árangri.“
Skaða hreíhuveiðarnar íslenskt viðskiptalíf? ,Já, til
skemmri tíma litið og þá sérstaklega ferðaþjónustuna og
útflutning til þeirra landa sem mest eru meðvituð um
umhverlismál, t.d. Bandaríkjanna og Evrópulanda."
Finnur fvrirtæki þitt fyrir aukiimi þenslu á vinnumarkaði?
„Ekki svo mikið í okkar geira, enda ennþá niðursveifla á
alþjóðamarkaði í flugrekstri en horfur eru betri á næsta ári. Við
erum hins vegar í útrás öfugt við marga aðra í flugrekstri og
því verður þensla hjá okkur á næstu mánuðum og þá sérstak-
lega á næsta ári.“
Hvað hefur einkennt rekstur fyrirtækis þíns á þessu ári og
mun það ná setturn markmiðum? „Eftirmálar hryðju-
verka, stríðs í Irak og bráðalungnabólgu sem hefur breytt
okkar rekstrarumhverfi til frambúðar og þær breytingar seni
við höfum þurft að gera í beinu framhaldi, en þeim er rejmdar
ekki lokið. Við stefnum að settum markmiðum. Það mun
verða erfitt að ná þeim í ár, en vonandi verðum við nálægt
þeim.“ m
HALLDOR JÚN KRISTJÁNSSON,
BANKASTJÓRI LANDSBANKANS
Mest á óvart í viðskiptalífinu á árinu? „Miklar eignabreyt-
ingar á markaði nú í lok september, með þeirri einföldun á
verkaskiptingu og einbeittari rekstri, sem þeim fylgja, marka
tímamót í umbreytingum á innlendum markaði. Hröð verklok
varðandi sölu stórs eignarhlutar í Landsbankanum til Sam-
sonar eignarhaldsfélags og örugg tilfærsla á kjölfestuhlut og
góðar viðtökur við þessari breytingu bæði á innlendum og
erlendum mörkuðum voru sérstaklega ánægjulcg."
Forgangsverkefni forstjóra í vetur? „Að halda áfram að
skapa stærri og arðbærari rekstrareiningar, fyrst og fremst þar
sem það getur stuðlað að uppbyggingu vel samkeppnishæfra
alþjóðlegra fyrirtækja. Þetta á við í innlendri smásölu, ijöl-
miðlun, ijármálaþjónustu - þ.m.t. líftryggingar og trygginga-
starfsemi - alþjóðlegri verslun með sjávarfang og framleiðslu
sjávarafurða, hótelrekstri, samgöngufyrirtækjum, fiskveiðum
og vinnslu, svo það helsta sé nefnt.“
Alhliða
fjármálaþjónusta
fyrir þig og þína
S*Kef
Sparlsjóðurlnn í Keflavík
www.spkef.is
Keflavík • Njarðvík • Garður • Grindavík • Vogar
92
J