Frjáls verslun - 01.08.2003, Blaðsíða 68
300
STÆRSTU
GRANDI KRISTJÁN Þ. DAVÍÐSSON
GRANDI FIKRAR SIG
AFRAM í FISKELDINU
Eitt sterkasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins hefur fengið nýjan forstjóra,
Kristján Þ. Davíðsson. Hann segir efst á dagskrá Granda að hagræða í
vinnslunni og einnig að fyrirtækið sé að fikra sig áfram í fiskeldinu.
Efdr Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Arið 2002 var mjög gott. Það var metafkoma í sögu fyrir-
tækisins og má segja að flest ytri skilyrði hafi verið til-
tölulega hagstæð. Verð á mörkuðum var nálægt sögu-
legu hámarki. Aðstæður á þessu ári hafa frekar verið að
þyngjast. Gengið hefur verið að styrkjast lengi framan af ári
þó að sú þróun sé reyndar nú að snúast við að nokkru leyti
að minnsta kosti, þótt spár um framhaldið séu flestar fremur
dökkar; það er að segja að gengið styrkist sé litið til lengri
tíma. Verð á mörkuðum hefur verið að gefa eftir þannig að
við sjáum fram á harðari tíma. Við erum að mæta aukinni
samkeppni á mörkuðum og þurfum að snúa við öllum
steinum og leita leiða til að snúa við þeirri þróun. Við erum
að skoða alla möguleika," segir Kristján Þ. Davíðsson,
forstjóri Granda, en hann tók við því starfi í sumar. „Við
skoðum hagræðingarmöguleika í vinnslunni, bæði á sjó og
í landi, tæknistig og vöruþróun, vinnslumynstur, alla þætti
sem máli skipta.“
Fikrar Siy áfram í eldinu Grandi er útgerðar- og fiskvinnslu-
fyrirtæki sem gerir út þijá frystitogara með fullvinnslu um
borð. I frystihúsinu á Norðurgarði er sérhæfing í vinnslu á
karfa og ufsa. Tveir ferskfisktogarar sinna hráefnisöflun fyrir
Norðurgarð auk þess sem hráefni er sótt á markað að því leyti
sem það er hagkvæmt. Grandi rekur einnig uppsjávarveiðar og
-vinnslu. Veiðiskipið Faxi getur bæði verið á trolli og nót og það
veiðir um 70 þúsund tonn á þessu ári af uppsjávar-
fiski sem fer til vinnslu í annarri af tveimur fiski-
mjölsverksmiðjum fyrirtækisins, annaðhvort í
Reykjavík eða Þorlákshöfn. Auk þessa er Grandi
hluthafi í röð fyrirtækja. Grandi á 20% í útgerðar-,
fiskvinnslu- og fiskeldisfyrirtækinu Deris í Chile.
Grandi hefur reyndar átt hlut í því fyrirtækið í 10 ár
og tekið virkan þátt í uppbyggingu þess. Síðan á
Grandi hluti í öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum;
Eskju, Þorbirni Fiskanesi, Hraðfrystihúsinu Gunnvöru og
Isfélagi Vestmannaeyja. Þessi sjávarútvegsfyrirtæki eru í
annars konar sérhæfingu en Grandi. Hvað fiskeldið varðar þá
er Grandi stærsti hluthafinn í Stofnfiski með rúmlega 30% hlut.
Grandi á einnig hlut í Fiskeldi Eyjafjarðar þar sem er stundað
lúðueldi og keypti í sumar 70% í fiskeldisfyrirtækinu Salar
Islandica á Djúpavogi. „Við erum að fikra okkur áfram í upp-
byggingu á eldi,“ segir Kristján.
Eitt sterkasta félagið Rekstur Granda stendur mjög vel og
bendir Kristján á að Grandi sé með sterkustu félögunum í
íslenskum sjávarútvegi, eiginfjárhlutfallið sé 43% sem sé með
því hæsta meðal sjávarútvegsfyrirtækjanna. Hagnaður Granda
á fyrri árshelmingi 2003 var 750 milljónir króna. Eigið fé í lok
júní nam rétt rúmum 6 milljörðum efúr greiðslu á arði upp á
206 milljónir. Á sama tímabili í fyrra var hagnaðurinn tæpar
1.200 milljónir og eigið fé nam tæpum 5,5 milljörðum. Eigið fé
hafði því styrkst um 500 milljónir króna.
Þegar hann er spurður að því hvað standi upp úr starfsem-
inni á þessu ári nefnir hann strax umræðuna um kvótakerfið í
kringum síðustu kosningar. „Ég tel að kvótakerfið sé komið til
að vera. Það er ekki fullkomið en það hefur sýnt sig að það er
besta lausnin sem við höfum ef takmarkið er að hámarka
afraksturinn af auðlindum hafsins. Ekki er búið að ganga
endanlega frá málum því að ennþá er smábátakerfið að nokkru
leyti opið þannig að það er ekki konúð
heildar fiskveiðistjórnunarkerfi sem hefur
fast og endanlegt form enda verður það
kannski aldrei þannig. En það þarf að ná utan
um fiskveiðistjórnunina á smábátaflotanum.
Ég held að þetta kerfi sé komið til að vera.“
Viðskiptalífið kraftmikið Hjá Granda er upi>
bygging fyrirtækisins innan fiskeldisins ofar-
„íslenskt við-
skiptalíf er mjög
kraftmikið, það
sést gjörla á
atburðum
síðustu vikna.“
68