Frjáls verslun - 01.08.2003, Blaðsíða 74
300
STÆRSTU
ÖSSUR JÓN SIGURÐSSON
ÚVÆNT OG HÖRB
VERBSAHIKEPPNI
/
Ovænt og hörð verðsamkeppni með allt að 50% undirboðum
hefur höggvið í eða stöðvað vöxtinn hjá Össuri en Jón Sigurðs-
son, forstjóri Össurar, er bjartsýnn á horfurnar. Spennandi nýj-
ungar eru framundan og sókn á nýjan markað.
Efdr Guðrúnu Helgu Sigiirðardóttur
Arið 2002 var mjög gott fyrir fyrirtækið og vöxturinn var
mikill. Við bundum lokahnút á öll okkar sameiningar-
mál, við höfðum keypt mörg fyrirtæki og lukum alveg
þessari sameiningarvinnu. Árið var að mörgu leyti mjög gott
hvað varðar vöxt og markaðshlutdeild. Við náðum því að
verða annar stærsti á þessum markaði. Markaðurinn tók á sig
þá mynd að nú eru tvö stór fyrirtæki og svo mörg minni. Þetta
var mjög annasamt ár enda mikið að gerast. Ytri skilyrði voru
nokkuð góð og ekkert hægt að kvarta yfir því enda sýndi
árangurinn það. Þegar tók að líða á árið eða í lok ársins fóru
að koma þlikur á loft. Við höfðum náð í mikla markaðshlut-
deild undanfarin ár og það fór að bera á mikilli og fastri sam-
keppni, fastari andstöðu en áður og þetta hefur haldið áfram
og aukist mjög. Almennt efnahagsástand hefur líka verið
slæmt og það hefur orðið til þess að það hefur þrengst um á
mörkuðum okkar og líklega aukið þessa miklu verðsam-
keppni sem hingað til hefur ekki einkennt þennan markað.
Síðan hafa verið miklar umræður um gagngerar endurbætur
á heilbrigðiskerfinu í Bandaríkjunum og það hefur haft áhrif
til truflunar," segir Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar.
Tölvustýrður hnjáliður Árið 2003 hefur verið
Össuri erfitt það sem af er og sama þróunin hefur
haldið áffarn. „Það hefur orðið nokkurt hlé á því
að koma með nýjungar vegna þess að þannig
stendur á hjá okkur hvað verkefnastöðuna varðar
í augnablikinu. Við erum í nokkrum stórum verk-
efhum og um síðustu mánaðamót voru reyndar
fyrstu vörurnar að koma út í einu af okkar stærri
verkefnum. Við höfum verið að vinna að þessum
verkefnum og það hefur ekki skilað tekjum það
sem af er árinu. En verkefnastaða okkar er þannig
að fram á mitt næsta ár verðum við með spennandi verkefni og
munum kynna á markaði spennandi nýjungar, t.d. tölvu-
stýrðan hnjálið, þannig að við horfum bjartsýn fram á veginn.
Við ætlum okkur sókn inn á nýjan markað, stuðningstækja-
markaðinn þar sem fyrst og fremst er um alls konar spelkur
að ræða. Þetta er markaður sem við höfum ekki verið á. Við
höfum líka verið að leita að fyrirtækjum til kaups á þessum
markaði. Það er mikið framundan hjá okkur. Sem betur fer
erum við farin að sjá fyrir endann á ýmsum verkefnum, t.d.
tölvustýrðum hnjálið sem kemur á markað á fýrsta ársfjórð-
ungi næsta árs. Við erum líka með verkefni sem gæti verið
mjög spennandi, en þar nýtum við kjarnaþekkingu okkar á
silikoni og samspili þess við líkamann til að þróa sáraumbúðir
fyrir seingróin og illvíg sár.“
Meginmarkmið Jóns á næsta ári verður að fylgja þessum
nýjungum eftír og hjálpa fyrirtækinu að feta sig út á þessar
brautir. „Við erum ennþá að leita að fýrirtækjum til að kaupa
og vinnum markvisst að því. Mín verkefni eru bundin annars
vegar i þessum vextí, að sjá til þess að fyrirtækið vaxi og dafni.
Eg held að það sé tiltölulega fátt í innri starfsemi félagsins sem
þarf gagngerra endurbóta við. Þetta
skipulag og það verklag, sem er við lýði
núna, hæfir fýrirtækinu ágætlega en auð-
vitað þarf alltaf að laga fyrirtækið að
aðstæðum á hveijum tíma.“
„Við erum ennþá
að leita að fyrir-
tækjum til að
kaupa og vinnum
markvisst að
því.“
Ekhi Ijarað hratt undan okkur Hvað
horfurnar varðar þá segir Jón að hin nfikla
verðsamkeppni hafi konfið Össuri á óvart.
„Þessi miklu undirboð koma okkur á
óvart. Þau eru sjálfsagt skilgetin afkvænfi
þess að við höfum tekið mjög mikla
74