Frjáls verslun - 01.08.2003, Blaðsíða 113
í þessum breytingum hefur verið horft til nútímalegrar skilgreining-
ar á útflutningi, í Ijósi þess að vægi þjónustuútflutnings hefur aukist
stöðugt á undanförnum árum. í samræmi við þetta hefur verið kallað
til samráðs við nýja aðila, meðal annars Samtök hugbúnaðarframleið-
enda og Bandalag íslenskra listamanna, enda eru menning og menn-
ingarafunðir útflutningsafurð í sívaxandi mæli. Pá mun Ferðamálaráð
eiga þar fulltrúa, þar sem ferðaþjónustan gegnir vaxandi hlutverki í
gjaldeyrissköpun. Mikilvægt er að útrás íslensks viðskiptalífs í öllum
greinum útflutnings sé í auknum mæli samræmd og verkefnatengd.
Útflutningsráð veitir aðgang að viðskiptafulltrúum
utanríkisþjónustunnar
Útflutningsráð mun meðal annars sinna markaðssetningu og sölu á
aðstoð og sérfræðivinnu viðskiptafulltrúa og annarra útsendra starfs-
manna utanríkisþjónustunnar til fyrirtækja hér á landi og fyrirtækja í
íslenskri eigu erlendis. Útflutningsráð mun jafnframt leggja fé til sér-
stakra átaksverkefna með viðskiptaþjónustunni. Meðal þeirra verk-
efna sem þar er horft til er tímabundin ráðning manna til starfa í
sendiráðum eða hjá ræðismönnum íslands á mikilvægum mörkuðum
þar sem við höfum ekki sendiráð.
Skipulagsbreytingar innan utanríkisþjónustunnar
Samhliða þessu hefur utanríkisráðherra ákveðið skipulagsbreytingar
innan utanríkisþjónustunnar, sem miða að því að efla enn frekar þátt
viðskiptaaðstoðar í starfi sendiráða og ræðismanna. Viðskiptaþjón-
ustan hefur gert samninga við öll sendiráð um þjónustu þá sem stað-
arráðnir viðskiptafulltrúar og útsendir starfsmenn þjónustunnar muni
selja til atvinnulífsins. 011 sendiráð munu skilgreina viðskiptatengd
markmið og stefnt er að því að tiltekinn hluti fjárveitinga til hvers
sendiráðs verði háður því að markmið þessi náist. Allir starfsmenn
utanrikisþjónustunnar á erlendri grundu munu því vinna að verkefnum
I þágu útflutningsaðstoðar með þessum hætti.
Sendiráðin árangursmetin
I sendiráðum er reynt að þjóna atvinnulífinu með enn markvissari og
betri hætti en hingað til hefur tíðkast. Samkvæmt verkefnasamningun-
um eiga sendiráðin að kortleggja starfsemi og möguleika íslenskra
fyrirtækja í umdæmisríkjum sínum. Þetta krefst þess að þau setji sig
í samband við lykilaðila í atvinnulífi á viðkomandi stöðum, verslunarráð,
fjárfestingastofur o.s.frv. Utanríkisþjónustunni og sendiráðum berast
fjölmargar viðskiptafyrirspurnir á degi hverjum. Stefnt er að því að skrá
þær með markvissari hætti en áður hefur tíðkast þannig að aðgengi-
legur þekkingarbrunnur myndist með tímanum. Sendiráðin verða síð-
an árangursmetin árlega m.t.t. til starfs þeirra að viðskiptamálum.
Með verkefnasamningunum er verið skipuleggja betur starfsemi
sendiráðanna að viðskiptamálum.
Ein heild gagnuart
atvinnulífinu
Ein meginhugmyndin að baki sam-
komulaginu er að Útflutningsráð og
VUR bjóði upp á samfellda aðstoð í
þágu fyrirtækja í útrás, allt frá sér-
verkefnum um gerð útflutningsáætl-
ana til markvissrar aðstoðar á er-
Frá ferð til Póllands árið 2000, þar sem haldin uar uiðskiptaráðstefna
og sýning á íslenskum uörum. Halldór flsgrímsson á tali uið starfsfólk
Lýsis hf.
lendum mörkuðum. Samkvæmt samkomulaginu er gert ráð fyrir að
þjónusta VUR og Útflutningsráðs sé gegnsæ og miðuð að þörfum út-
flutningsfyrirtækja jafnt hér heima sem á útflutningsmörkuðum.
Öflugri og samstilltari þjónusta við útrás
„Samstarfssamningurinn við Útflutningsráð mun styrkja og efla bæði
viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins og Útflutningsráð og vonandi
leiða til betri og heildstæðari þjónustu sem við getum veitt fyrirtækjum
í útrás," segir Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs.
„Utanríkisráðuneytið hefur ákaflega gott net erlendis og hér heima
hefur Útflutningsráð góð tengsl við atvinnulífið," segir Martin Eyjólfsson,
nýr forstöðumaður viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins (VUR).
„Það var metið svo að með því að tengja þetta saman fengjust
kjöraðstæður fyrir þá sem hygðu á útflutning eða væru þegar í útflutn-
ingi á vörum og þjónustu. Á þennan hátt opnast oft dyr og leiðir til
þess að fyrirtækin svo geti haldið áfram starfinu. Ætlunin er að
Útflutningsráð og VUR komi fram sem ein heild út á við og myndi
heildstæða þjónustu, frá námskeiðum um fyrstu skref í útflutningi til
sölu á fjarlægum mörkuðum."
Þjónusta við atvinnulífið meginhlutverk utanríkis-
þjónustunnar
„Meginhlutverk utanrfkisþjónustunnar á tímum alþjóðavæðingar er
að mínu mati að þjóna atvinnulífinu. Hlutverk okkar er að treysta og
styrkja þann lagaramma sem íslensk fyrirtæki styðja sig við í sinni
útrás með gerð fríverslunar-, loftferða-, fjárfestinga- og tvískött-
unarsamningum. Einnig erum við öryggisnet fyrír þau fyrirtæki sem
lenda í vandræðum í samskiptum sínum við hið opinbera erlendis
eða verða fyrir einhverjum viðskiptahindrunum. Þar höfum við leiðir,
styrk og aðgang til þess að taka málin upp við viðeigandi stjórnvöld
og ýta á réttu takkana. Þá veitir einhvers konar aðkoma eða
nærvera sendiráðs ákveðinn trauststimpil þegar íslensk fyrirtæki
eru f fjárfestaleit á fjarlægum markaði. Viðskiptafulltrúar okkar veita
fyrirtækjum oft innsýn í erlenda markaði og aðstoða þau við að fóta
sig þar. Auk þess er svokölluð
viðskiptaþróun rekin innan VUR, en
hlutverk hennar er að aðstoða fyrir-
tæki í útrás í þróunarríkjum og
nýfrjálsum rfkjum.
Það hlýtur að vera mikið kappsmál
fyrir þjóð sem byggir nánast alla
afkomu sína á útflutningi að búa yfir
öflugu hjálpartæki á erlendri grundu
sem heitir utanríkisþjónusta." [E
ÚTFLUTNINGSRÁÐ ÍSLANDS
TRADE COUNCIL OF ICELAND
KYNNING
113