Frjáls verslun - 01.08.2003, Blaðsíða 10
RITSTJÓRNARGREIN
Excel-kynslóðin
Halda má því fram að það séu þijár kynslóðir
stjórnenda í íslensku viðskiptalífi og að þær séu
afar ólíkar þegar betur er að gáð. Þær eru allar
mjög markaðar af uppeldi sínu og endurspegla
mismunandi tíma í verðmætasköpun; verðmæta-
sköpun vinnuafls, verðmætasköpun tækni og
verðmætasköpun peninga. Sú yngsta gengur
stundum undir heitinu „Excel-kynslóðin“ og er
afsprengi ‘68 kynslóðarinnar. Þetta er fólk á aldr-
inum 25 til 40 ára sem ólst upp við tækninýjungar
og tækifæri og mjög svo vaxandi auðlegð þjóðar-
innar. Síðan er það eftirstríðskynslóðin, fólk á aldrinum 45 til 60
ára, sem ólst í bernsku upp við nokkurn skort á lífsnauðsynjum
en þó hratt vaxandi velmegun. Elsta kynslóð stjórnenda er á
aldrinum 65 til 70 ára og er meira og minna að draga sig út úr
erli viðskiptanna. Um þessa kynslóð verður sagt að hún man
einfaldlega tímana tvenna, hún ólst upp á krepputímum þegar
vinna var ekki vis og biti á borðið ekki sjálfgefinn.
„Excel-kynslóðín “ rnjög Víð SÖgu Það er í raun ágætt að hafa
þessar þijár kynslóðir stjórnenda og bakgrunn þeirra í huga
þegar rökrætt er um þær miklu sviptingar sem orðið hafa í
íslensku viðskiptalífi að undanförnu og náðu hámarki 18. sept-
ember sl. þegar Landsbanki og íslandsbanki skiptu Eimskipa-
félaginu upp á milli sín. Jafnframt samdi Islandsbanki um yfir-
töku á Sjóvá-Almennum og keypti auk þess Landsbankann og
félagana í Samson út úr Fjárfestingafélaginu Straumi. Öll þessi
viðskipti gera sig á yfir 40 milljarða króna og þar komu hæfi-
leikaríkir menn af „Excel-kynslóðinni" innan bankanna mjög
við sögu. Þessi dagur sýnir svart á hvítu að bankarnir eru
orðnir helsta hreyfiaflið í íslensku viðskiptalífi og hið ráðandi
afl í flestum af stærstu fyrirtækjum landsins. Það fer raunar
íyrir bijóstið á mörgum sem finnst að bankarnir eigi lyrst og
fremst að þjóna fyrirtækjum í stað þess að eiga þau. Þeir hinir
sömu óttast líka að drifkraftur einstaklinga - sem fá hugmyndir
og vilja hrinda þeim í framkvæmd - muni dvína við þessa breyt-
ingu. Hvað ef einhver fær góða hugmynd, sem
vinnur gegn fyrirtæki í eigu banka, þarf að leita
til bankans eftir áhættuijármagni til að sjá draum-
inn rætast? Engin ástæða til að mála skrattann
upp á vegg. Peningar eru og verða hreyfiafl, en
það eru dugnaður og framtakssemi einstaklinga
líka!
Elsta
kynslóð stjórnenda, sú sem er á aldrinum 65 til 70
ára og þaðan af eldri, ólst upp við hrikalega póli-
tíska afskiptasemi af viðskiptalífinu þar sem lánveitingar banka
voru oftar en ekki eyrnamerktar flokksgæðingum. Þessi kyn-
slóð er engu að síður mjög framleiðsluþenkjandi. Hún ólst upp
við skort og á þeim tímum þegar að kveldi dags var spurt í hve
margar tunnur hefði verið saltað frekar en „hvað græddum við
mikið í dag?“. Stjórnendur, sem eru á aldrinum 45 til 60 ára, ein-
blína mjög á það „að reka fyrirtækin" af skynsemi (atvinnu-
stjórnendur), og eru býsna uppteknir af þvi að starfsmenn og
viðskiptavinir séu ánægðir. „Excel-kynslóðin" einkennist hins
vegar af matador-spili á verðbréfamarkaði þar sem lítið mál er
að „pakka inn dílum" fyrir meira en 40 milljarða á einum degi.
Hún er hugrökk, áköf í að hagnast og eldklár við að hrinda hug-
myndum í framkvæmd. Hún hefur sem betur fer ekki sömu
minnimáttarkenndina gagnvart útlendingum og eldri kyn-
slóðir. Hún setur í excelinn 10% launalækkun og fær út góðan
hagnað fyrirtækis. Eða að þetta fyrirtæki hentí ekki lengur í
þessu bæjarfélagi og það þurfi að flytja það. „Cut and paste“.
Fínt Excelinn segir henni líka að það séu fjársjóðir í hverju
horni sem aðrir hafa verið svo vitlausir að sjá ekki.
Eg kann engu að síður vel við „excel-kynslóðina" þótt hún
markist af verðmætasköpun peninga. Hún keyrir atvinnulífið
áfram af dugnaði og dirfsku þótt mörgum, sem gránað hafa í
vöngum og kunna ekki eins vel á excelinn, finnist hún aka
býsna hratt. B3
Jón G. Hauksson
Stofiiuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál - 65. ár
Sjöfn Guðrún Helga Geir Ólafsson Hallgrtmur
Sigurgeirsdóttir Sigurðardóttir Ijósmyndari Egilsson
auglýsingastjóri blaðamaður útlitshönnuður
RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir
BLAÐAMAÐUR: Guðrún Helga Sigurðardóttir
UÓSMYNDARI: Geir Ólafsson
ÚIUTSHÖNNUN: Hallgrímur Egilsson
ÚTGEFANDI: Heimur hf.
V heimur
RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA:
Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 512 7575, táx: 561 8646, netfang: tv@heimur.is
ÁSKRIFTARVERÐ: kr 7.700.-10% afsláttur ef greitt er með kreditkorti.
LAUSASÖLUVERÐ Á BÓKINNI 300 STÆRSTU ER: 1.995 kr.
DREIFING: Heimur hf., sími 512 7575
PRENTVINNSLA: Gutenberghf.
UÓSMYNDIR: © Heimur hf - Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
ISSN 1017-3544
10