Frjáls verslun - 01.08.2003, Blaðsíða 149
NÆRMYND JÓN SIGURÐSSON
hann að ákveða hvaða stefnu hann tæki. Hann hafði áhuga á
klassískum og húmanískum fræðum, var dúx í latínu og flutti
þakkarorðin á latínu þegar við urðum stúdentar. Svo hafði hann
afskaplega mikinn áhuga á íslensku. Við vorum í máladeild,
gengumst upp i því að vera húmanistar og sletta á latínu. Jón
hefði getað orðið lögfræðingur og svo hefði hann lika getað
lagt fyrir sig stjórnun - hann var þannig sinnaður. Hann prófaði
allt mögulegt, var t.d. róttækur og dró mig einu sinni á fund hjá
Fylkingunni. Þegar hann tók sér eitthvað fyrir hendur gerði
hann mikið af því, hann átti t.d. mikið af vinum og sinnti þeim
mikið og skemmti sér mikið þegar hann á annað borð skemmti
sér. Þegar biskupinn kom eitt sinn í heimsókn þá kom í ljós að
Jón velti trúmálum mikið fyrir sér. Hann hafði áhuga á trú-
málum, listum, húmanískum fræðum, stjórnmálum - en
kannski ekki íþróttum. Það þótti ekki sérstaklega merkilegt á
þessum árum. Við húmanistarnir vorum ekki mikið að hugsa
um íjjróttir," segir Þorsteinn Helgason, æskufélagi Jóns úr MR
og dósentvið Kennaraháskóla Islands.
Stálheiðarlegur ákafamaður Jón er sagður nákvæmur stjórn-
andi sem vill hafa yfirsýn yfir alla hluti, stóra og smáa, gríðar-
legur prinsippmaður og sterkur siðferðilega séð. Runólfur
Agústsson, rektor á Bifröst, sem byijaði að starfa með honum
sem ungur kennari fyrir tíu árum og tók síðan við af honum
sem rektor, segir að hann sé stálheiðarlegur ákafamaður með
hjarta úr gulli. Hann sé ráðagóður skapmaður sem leggi sig
allan í allt sem hann taki sér fyrir hendur, sjái möguleika og færi
sem aðrir sjái ekki og framkvæmi hugmyndir sem hann trúi á.
Þar nefnir Runólfur sem dæmi uppbygginguna á Bifröst þar
sem framhaldsskóla hefur verið breytt í háskóla. ,Jón er góður
stjórnandi, að sumu leyti harður en samt sanngjarn. Hann gerir
miklar kröfur, er heiil og hreinskiptinn og menn fara ekki í graf-
götur með skoðanir hans. Á stundum finnst sumum hann
kannski full hreinskiptinn því að menn geta ekki alltaf tekið því
þegar hann segir skoðun sína umbúðalaust. Jón felur aldrei eitt
eða neitt, hann er gegnheiðarlegur og maður veit nákvæmlega
hvar maður hefúr hann. Mér þykir ákaflega vænt um Jón. Hann
er þannig maður að annaðhvort þykir fólki vænt um hann eða
mönnum er frekar í nöp við hann. Það er engin hálfvelgja.“
Laginn að Stjórna fundum Jón hefur sem stjórnarformaður
Byggðastofnunar unnið undanfarin misseri með forstjóranum
Aðalsteini Þorsteinssyni að endurskipulagningu stofnunar-
innar. Aðalsteinn segir að Jón sé framúrskarandi skipulagður,
skemmtilegur og afkastamikill. Hans þekking og reynsla á
sviði peningamála og efnahagsmála hafi oft komið sér vel,
hann sé fljótur að setja sig inn í mál og fastur fyrir., Jóni er ákaf-
lega lagið að stjórna, það er kannski hans sterkasta hlið hvað
hann er laginn að stjórna fundum og leiða menn til sameigin-
legrar niðurstöðu. Hann hefur góða nærveru og gefur af sér
sjarma og þægilegheit. Hann hefur skýra skoðun og talar þá
fyrir henni og tekst oft að vinna menn á sitt band. Stjórnlist
hans felst í því að vita ekki afl sitt eða styrk og láta ekki á það
reyna. Svo hefur hann óskaplega ríka réttlætiskennd," segir
Aðalsteinn.
Enginn er gallalaus maður og það er Jón Sigurðsson ekki
heldur. Jón er talinn eiga það til að vera fljótfær, bráður og
klaufskur en þó er það ekki sterkt einkenni á hans persónu-
leika. Hann hefur komið víða við og grúskað i mörgu, ekki
viljað sérhæfa sig of mikið og skipt nokkuð reglulega um feril
ef svo mætti segja. Hann er afskaplega fastur fyrir og sumum
kann að þykja hann svolítið ósveigjanlegur. H3
Jón Sigurðsson
Fæddur: í Kollafirði á Kjalarnesi 23. ágúst
1946.
Fjölskylda: Kvæntur Sigrúnu Jóhannes-
dóttur menntunarráðgjafa. Þau eiga tvo syni,
Ola Jón, starfsmann hjá KOM, og Snorra, eig-
anda Vatikansins, og svo átti Sigrún áður
dótturina Kristínu, Ijármálastjóra hjá Penn-
anum. Barnabörnin eru fjögur.
Foreldrar: Sigurður Ólason, fyrsti ríkislög-
niaðurinn, - hann er látinn - og Unnur
Kolbeinsdóttir kennari.
Menntun: BA í sagnfræði og íslenskum
fræðum (HÍ 1969), MA í fræðslustjórnun,
nienntunarfræðum (Bandaríkjunum 1988),
PhD í fræðslustjórnun, menntunarfræðum
(Bandaríkjunum 1990) og MBA í rekstrar-
hagfræði og stjórnun (Bandaríkjunum
1993).
Ferill: Seðlabankastjóri frá 1. október
2003. Áður verkefnisstjóri hjá Samtökum
atvinnulífsins, Verslunarráði og sjálfstæður
rekstrar- og skipulagsráðgjafi, fram-
kvæmdastjóri Vinnumálasambands-
ins (1997-1999). Áður háskólakenn-
ari og rektor Samvinnuháskólans,
áður Samvinnuskólans. Einnig fv.
ritstjóri Tímans.
Áhugamál: Hagfræði og þjóð-
mál, sagnfræði, trúmál, listir,
skáldskapur og grúsk af ýmsu
tagi, lestur, kórsöngur, göngur
og útivera. Þau hjónin eiga
sumarbústað við Bifröst. m
149