Frjáls verslun - 01.08.2003, Blaðsíða 44
300
STÆRSTU
HELSTU NIÐURSTÖÐUR
ÞRJÚ ERU LANGSTÆRST
SIF, SH og Baugur eru langstærstu fyrirtæki landsins eins
og áður. Þau eru risarnir þrir. SÍF heldur fyrsta sætinu.
Yelta fyrirtækisins nam rúmum 61 milljarði á síðasta ári, en
Baugur jók langmest við veltu sína af þessum þremur fyrir-
tækjum og nam velta hans um 52 milljörðum og stafar aukn-
ingin af auknum umsvifum erlendis. Flugleiðir eru í ijórða
sæti. Kaupþing banki og Búnaðarbankinn sameinuðust um
mitt þetta ár, en sameiginleg velta þessara tveggja banka var
40,6 milljarðar á síðasta ári. HQ
Gunnar Örn
Kristjánsson,
forstjóri SÍF.
Gunnar
Svavarsson,
forstjóri SH.
Jón Ásgeir
Jóhannesson,
forstjóri Baugs.
FLESTIR VINNA
HJÁ PHARMACO
Það vekur athygli að verðmætasta fyrirtæki landsins,
Pharmaco, sem metið er á 85 milljarða er í 12. sæti á list-
anum með veltu upp á um 18 milljarða. Pharmaco er hins
vegar með flesta starfsmenn, eða um 5.600 talsins, og starfa
flestir þeirra erlendis, m.a. í Búlgaríu þar sem fyrirtækið er
með umfangsmikla starfsemi. Pharmaco og Delta samein-
uðust á síðasta ári og skýrir það verulega veltuaukningu hjá
Pharmaco. Landspítali Háskólasjúkrahús er með næstflesta
starfsmenn, eða um 3.800 og Baugur um 3.600 talsins. HH
STÆRSTU VINNUUEITENDUR
Fjöldi ársverka:
Pharmaco
Landspítali Hásk.
Baugur
Flugleiðir
Eimskip
Bakkauör Group
(1) BAUGUR
Mestur hluti hagnaðar Baugs á síðast ári
varð til vegna fjárfestinga í Bretlandi og
fyrst og fremst vegna sölunnar á hlutnum í
Arcadia.
(2) ÍSLANDSBANKI
Minni veltutölur íslandsbanka og Lands-
banka, sem og annarra fjármálastofnana,
má rekja til þess að tekjur vegna verðlags-
hækkana útlána drógust saman. Verðbólga
lækkaði umtalsvert í prósentum miðað við
árið á undan þannig að tekjur lækkuðu í takt
við það.
(3) EIMSKIPAFÉLAGIÐ
Á árinu 2002 keypti Eimskipafélagið meiri-
hluta í þremur sjávarútvegsfélögum, þ.e. Út-
gerðarfélagi Akureyringa (í mars), Skag-
SKÝRINGAR
strendingi (í maQ og Haraldi Böðvarssyni (í
okt). Þau eru inni í samstæðureikningi Eim-
skipafélagsins frá þessum tímapunktum.
(4) KAUPÞING BÚNAÐARBANKI
Kaupþing banki og Búnaðarbanki samein-
uðust um mitt þetta ár og urðu við það
stærsti banki landsins.Tölur um bankana
fyrir síðasta ár eru því eðlilega hvorar í sínu
lagi. Sameiginleg velta þessara tveggja
banka á síðasta ári hefði orðið um 40,6
milljarðar króna.
(5) BAKKAVÖR GROUP
Bakkavör Group keypti Katsouris Fresh
Foods á haustmánuðum 2001 og kom
rekstur fyrirtækisins að fullu inn á síðasta
ári og skýrir hina miklu veltuaukningu.
(6) PHARMACO
Pharmaco og Delta voru sameinuð um mitt
síðasta ár. Pharmaco er með flesta starfs-
menn á listanum. Það skýrist af miklum
fjölda starfsmanna erlendis, m.a. í Búlgaríu.
(7) OPIN KERFI GROUP
Sænska tölvufyrirtækið Data Point kom að
fullu inn í tölur Opinna kerfa Group á síðasta
ári og skýrir það mikla veltuaukningu.
(8) SR-MJÖL
Þess má geta að SR-mjöl fór inn í sam-
stæðureikning Síldarvinnslunnar fyrr á
þessu ári.
(9) OG VODAFONE
Íslandssími sameinaðist Halló ogTali á
sfðasta ári. Halló m.v. 30/6 2002 og Tali m.v.
44