Frjáls verslun - 01.08.2003, Blaðsíða 46
300
STÆRSTU
GREIDDU
HÆSTU LflUNIN
(Meðallaun starfsmanns á mánuði)
Huginn, Ifestm.............................. 783 þús.
ísleifur, Vestm............................. 710 þús.
Bergur-Huginn, Vestm........................ 696 þús.
Garðar Guðm., Ólafsf........................ 678 þús.
Stálskip, Hafnarf........................... 591 þús.
Útg. Frigg (Freyjal, Ruík................... 590 þús.
Framtak fjárfb. (EFfl) ..................... 564 þús.
Skagstrendingur ............................ 563 þús.
Fasteignafél. Stoðir ....................... 562 þús.
Þormóður rammi - Sæberg..................... 552 þús.
Grandi ..................................... 532 þús.
Utgerðir í Eyjum greiða há laun. Þau þrjú fyrirtæki sem
greiða hæstu launin eru í Vestmannaeyjum. Þetta eru
Huginn, Isleifur og Bergur-Huginn og hafa öll sést áður á
topp tíu listanum yfir hæstu meðallaunin. Sex efstu fyrir-
tækin á þessum lista eru í útgerð. Framtak Fjárfestingar-
banki (áður EFA) er í sjöunda sæti og Fasteignafélagið Stoðir
kemur í níunda sæti. SIi
VELTA YFIR
ÞÚSUND MILLJÖRDUM
Samanlögð velta 300 stærstu fyrirtækjanna nemur 1.050
milljörðum króna. Það er um 3,7% aukning frá árinu
áður. SH
MEÐALLAUN
292 ÞÚS. Á MÁNUÐI
Meðallaun í 300 stærstu fyrirtækjunum voru að jafnaði
um 3,5 milljónir króna á starfsmann yfir allt árið í fyrra.
Það þýðir að launin í þessum 300 fyrirtækjum voru um 292
þús. krónur að jafnaði á mánuði borið saman við um 271
þús. árið áður. Athugið að skoðuð eru laun í sömu fyrirtækj-
unum bæði árin. S3
HAGNAÐUR JÚKST UM
66 MILLJARÐA
Hagnaður 300 stærstu fyrirtækja landsins jókst ótrúlega í
fyrra og nam yfir 78 milljörðum króna fyrir skatta. Þetta er
ótrúleg breyting frá árinu áður þegar hagnaðurinn nam 12
milljörðum. Það er ekki oft sem það gerist að hagnaður 300
íslenskra fyrirtækja aukist um 66 milljarða á milli ára.
Stærstu fyrirtækin hafa hins vegar stækkað mikið. Þau
hagnast mest, en þau skulda líka mestBH
(19) HÉÐINN HF.
Samdráttur í veltu stafar af því aö velta
dótturfélags í Noregl er ekki lengur inni í
samstæðunni, þ.e. í veltutölum Héðins.
(20) LÍFTRYGGINGAFÉLAG
ÍSLANDS
Lækkun hagnaðar stafar af því að á árinu
2001 var mikill hagnaður af sölu fjárfest-
inga, eða rúmur 1 milljarður. Enginn hagn-
aður var af sölu fjárfestlnga á síðasta ári.
(21) BLÁA LÓNIÐ
Bláa lónið er flokkað undir hótel- og veit-
ingarekstur. Það er með tekjur af bað-, ráð-
stefnu- og veitingaþjónustu, en einnig af
framleiðslu bað- og snyrtivara.
(22) LANDSTEINAR OG HUGVIT
Go Pro Landsteinar Group er ekki lengur
tll. Það var regnhlíf nokkurra félaga þar
sem Hugvlt, Landsteinar íslands og fyrir-
tæki í Svíþjóð og Danmörku voru fremst í
flokki. Búið að skipta fyrirtækinu hér heima
upp í tvö sjálfstæð félög, þ.e. Hugvit og
Landsteina íslands.
(23) MJÖLL
Efnaverksmiðjurnar Mjöll og Sámur sam-
einuðust í byrjun ársins 2001 undir heitinu
Mjöll. Fyrr á þessu ári, 2003, sameinuðust
svo Mjöll og Frigg.
(24) ÍSLENSK VERÐBRÉF
Aukin velta íslenskra verðbréfa á Akureyri
skýrist m.a. af umfangsmeiri eignastýringu
fyrir stóra viðskiptavini.
(25) PFAFF-BORGARLJOS
Um mitt ár í fyrra keypti Pfaff hf. rekstur
Borgarljósa og einnig saumavéladeild
Völusteins síðar á sama ári.
(26) KEA SVF.
Kea var áður kaupfélag með fjölbreyttan
rekstur. Hlnn 1. janúar á síðasta ári varð
Kea svf. eignarhaldsfélag.
(27) SJÖFN HF.
Sjöfn hf. hefur breyst úr efnaverksmiðju í
fjárfestingafélag.
46