Frjáls verslun - 01.08.2003, Blaðsíða 151
Hér má kannski segja að bíllinn hæfi vel auglýsingunni auk þess að vera
skemmtilega öðruvísi.
„Ef markmiðið er að brjótast út úr vananum og
ná athygli fólks með því, er ekki nóg að taka
dagblaðsauglýsingu og setja hana á skilti á bfl.“
Boðið til veislu Bílar með auglýsinga-
skilti eru þekktir um alla Evrópu og í
Bandaríkjunum. Fyrirbærið er hins vegar
tiltölulega nýtt hér á landi ennþá en virðist
aetia að festast í sessi. Þannig má sjá fjöl-
marga bíla á mótum Vesturlandsvegar og
Suðurlandsvegar um helgar og eru það
gjarnan íýrirtækjabílar sem á eru máluð
merki fyrirtækjanna.
„Það er með þetta eins og annað, til
þess að það virki þarf það að vera vel gert
og má ekki vera sjoppulegt útlits," segir
Magnús. „Þegar maður býður til veislu,
vill maður jú gjarnan tjalda því besta og
það sama gildir um auglýsingar. Það er
ekki hægt að jafna saman auglýsingu sem
Palli á bolnum í næsta húsi klastraði sam-
an og málaði á bílinn og einhverju sem
gert er af fagmennsku og hugsun, ekki
frekar en hægt er að jafna saman fínni
riijasteik og matarafgöngum. Þetta er
spurning um hugarfar.
Hugmyndin með umhverfisauglýsingum er að vekja
athygli á einhverju og til þess að skilaboðin komist til skila
þarf að vinna heimavinnuna, ekki bara setja eitthvað utan á
bíl eða annað tæki, oft jafnvel aflóga eða óhreina bíla, og
stilla þessu upp. Því hver eru skilaboðin til neytandans þá?
Að fyrirtækið eigi bara gamla bíla eða leggi ekki meiri
metnað í kynninguna?"
stolið með leyfj Auðvitað vakna spurningar þegar 5-10
bílar eru farnir að vera við vegkantinn á gatna-
mótum allar helgar. Valda þeir truflun á umferð?
Hvað segja borgaryfirvöld? Er þetta leyfi-
legt? Skilar þetta árangri?
,Ef markmiðið er að brjótast
út úr vananum og ná
athygli fólks með því, er ekki nóg að taka dagblaðsauglýsingu
og setja hana á skilti á bíl. Við erum löngu orðin vön því að sjá
bíla með alls konar textum og myndum akandi um bæinn og
lagt hér og þar. Það þarf meira til að vekja verulega athygli.
Ef auglýsa á pylsu með þessum hætti, má þá ekki eins búa til
risastóra pylsu og láta bílinn aka með hana um bæinn í stað
þess að mála mynd af pylsu? Það er miklu skemmtilegra og
vekur talsvert meiri athygli en hitt sem jafnvel fer framhjá
þeim sem eiga að sjá, einfaldlega vegna þess að þetta er of líkt
öllu öðru. Stundum skortir kjark og stundum fé til að gera
eitthvað frumlegt og skemmtilegt en þó eru mýmörg dæmi
um frábærar hugmyndir.
Það er t.d. hægt að líta til Richard Branson og hugmynda-
auðgi hans varðandi flugfélagið Virgin Airlines. Hann gerir
sér fyllilega grein fyrir þörfinni fyrir þvi að vera öðruvísi. Eitt
dæmið eru salt- og piparstaukar sem farþegar á lúxusfarrými
fá á matarbökkum sínum. Þeir eru í formi pínulítilla flugvéla
og ef þær eru skoðaðar, sést áletrun sem segir: „This item
was pinched from Virgin Airlines", því gert er ráð fyrir að far-
þegar taki þetta með sér heim. Með þessu er ekki bara verið
að ná athygli farþegans og minna hann á ferðina, heldur er
líklegt að hann stilli baukunum upp þar sem gestir hans sjá
þá og í hvert skipti sem einhver skoðar staukana, blasir nafn
Virgin við og er þannig langtímaauglýsing."
Auglýsingin hæfi fyrirtækinu Magnús segir sum vörumerki
leyfa það og jafnvel sé ætlast til þess að umgjörðin líti út fyrir
að vera ódýr. Dæmi um slíkt er Bónus vörumerkið. Það er
engu að síður vel heppnað vörumerki og passað upp á það
eins og dæmi sanna. „En auglýsingin eða kynningin verður
að vera í takt við það sem í boði er og þann anda sem viðkom-
andi fyrirtæki vill láta viðskiptavini sína finna. Ef þess er ekki
gætt verður auglýsingin ótrúverðug og skilar væntanlega
ekki þeim árangri sem til er ætlast." B!1
151