Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2004, Page 33

Frjáls verslun - 01.10.2004, Page 33
Aftrnpostenguiden.no - din handfeguide pá nettt ‘ 0KONOMI Venter kamp om BNbank ! Islandshanki vil fcjope f Norgcs fjcak storsic I Ibrretningshank j BNhank for 3. J millianJer kroncr. Ixá Borscn spckulcrcs dct i budkric. nicn dc MotMc hankcnc Jwldcr fingrcnc av fateL cmmuH k. HAmost.N •Oettt er et «ort steg for ois, »iex BJ aml Arcianmaon. konsemtje rt UUr.tlsUarJa I lopft av helyeti har b- lenttojene og derrs rid£1- wt wtt hinil om n*r 30 proient av atajene t llNbank. I>e har forhlnds- ataept pi >íterl«ere 16. Med rtt ittff har Armanns- *on batt en beleinnc det «3» bli vamktlle for ar.drc banker i trenje tfOennom. of nakrUi lor Bírtjank i '—w nv- Pi Uorvn er •* *naage tom »at- ics $ / .æ'/ Tilboð íslandsbanka í öll hlutabréf BN-banka vakti verulega athygli í norskum fjölmiðlum. Og klukkan verður fimm mínútur yfir þrjú og síðan tíu mínútur yfir þijú - og þá hringir síminn. Skilaboðin eru skýr: Komið heim með fyrstu ferð. Það er stjómarfimdur á sunnudag! Viðskiptum í Kauphöllinni í Osló er þá rétt lokið. Viðskiptum lýkur alltaf klukkan 16.10 að Oslóartíma. Ovænt hefur verið lagt inn tilboð í allt hlutafé bankans eftir lokun kauphallarinnar og stjóm og bankastjóri verða að bregðast snögglega en þó stiliilega við. Bankasljórinn og stjómarformaðurmn ná heim á stjómarfimdinn og heyra þá að það er Islandsbanki sem vill kaupa þá. Varúð - fiskur! íslandsbanki - er það ekki fiskur? Jú, Islandsbanki er á kafi í fiski en í BN-banka má ekki nefna fisk. Og þegar ég spyr sérstaklega um lán til fiskeldis hristir Gunnar bankastjóri höfuðið með sýnilegum hryllingi. Honum er ekki skemmt og mér verður ljóst að honum þykir vænt um bankann sinn þótt hann sé þar aðeins starfsmaður. „Sjáðu tilsegir hann þegar við byrjum að tala um áhættuna af lánum til fiskeldis og útgerðar. „Staða okkar er allt önnur en til dæmis Kreditbankans í Álasundi, sem Islandsbanki hefur keypt. Það er banki sem starfar á liku sviði og Islandsbanki og rekstur þessara banka virðist falla vel saman. Við em á allt öðm sviði. BN-banki er eiginlega ekki almennur viðskiptabanki þótt hann sé skráður sem slíkur.“ Gunnar segir frá því að fram til ársins 1992 hafi BN-banki aðeins verið lítið þekktur fjárfestingasjóður. En árið 1992 var stjóm bankans neydd til að breyta sjóðum í almennan banka. Gunnar talar beinlínis um „neyð“ í þessu sambandi. Þá höfðu flestir bankar Noregs lent í alvarlegri kreppu. Útlán vom orðin of mikil, veð ekki traust og töp - meðal annars vegna lána til fiskeldis - kostuðu alla stærri einkabankana sjálfstæði sitt. Þetta er það sem flestir Norðmenn muna enn sem „bank- krisen" og hófst árið 1989. Hlutfé bankanna varð verðlaust og ríkið tók við rekstrinum. Hægrimenn tala um að bankamir hafi verið þjóðnýttir en vinstrimenn segja að ríkið hafi bjargað ijármagnseigendum þegar þeir komust í þrot. Feiminn banki En þessi saga á ekki við um BN-bankann. „Bankakrísan“ fór þar hljóðlega hjá dyrum enda öll útlán tryggð með veðum í steinsteypu í stærstu bæjum Noregs. Þó hafði kreppan sín áhrif hjá BN-bankanum. Sparifláreigendur vildu eiga þess kost að leggja fé sitt inn í traustan banka sem lánaði ekki peninga til ævintýramanna. Ríkið benti á BN-banka sem var skyldaður til að bæta við þjónustu sína og opna innláns- reikninga fyrir almenning. „Svona gerðist það að BN-bankinn var neyddur til að taka upp almenna þjónustu og er þess vegna skráður sem almennur banki,“ segir Gunnar. „En reksturinn ber þess merki að við emm ekki í samkeppni við aðra banka nema á fáum sviðum. Þeir sem eiga peninga inni á reikningum hjá okkur em yfirleitt eldra fólk sem leggur tiltölulega mikið inn og hreyfir peningana lítið.“ Gunnar segir að bankinn láni einstakiingum til kaupa á ömggu íbúðarhúsnæði og endurfjármagni húsnæðislán almenn- ings en samt sé það svo að 70 prósent af lánunum sé með veðum í atvinnuhúsnæði, í hótelum og skrifstofubyggingum. Og þetta skýrir það að merki fjórða stærsta banka Noregs er aðeins 33
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.