Frjáls verslun - 01.10.2004, Page 44
Davíð Oddsson segir í bókinni í
hlutverki leiðtogans að hann leggi
mikið upp úr því að samstarfsmenn
sínir séu fljótir að greina meginatriði
hvers máls og ekki þurfi að stafa ofan
í þá hvem hlut. Að þeir hafi innbyggða
þá íjöður sem segi þeim hvað megi og
hvað ekki. Húmor sé einnig mikilvægur,
ef hann sé mönnum sem lokuð bók verði allt svo þungt og
erfitt.
Davíð Oddsson hefur haft fjóra aðstoðarmenn frá því hann
varð forsætisráðherra vorið 1991. Sá fjórði, Illugi Gunnarsson,
fylgdi honum á dögum yfir í utanríkisráðuneytið. Fyrsta ráðu-
neyti Davíðs tók við völdum 30. apríl 1991. Mánuði síðar
hafði nýi forsætisráðherrann valið sér aðstoðarmann. Sá var
Hreinn Loftsson sem áður hafði mikið starfað innan Sjálf-
stæðisflokksins.
Hreinn var meðal annars varaformaður SUS 1987 til 1989
og aðstoðarmaður Matthíasar A. Mathiesen í tíð hans sem
viðskipta-, utanríkis- og loks samgönguráðherra. Jafnframt
átti Hreinn trúnað margra forystumanna flokksins og hafði
lengi verið einn af helstu talsmönnum einkavæðingar og
minni ríkisafskipta.
Löng hefð er fyrir starfi aðstoðarmanns ráðherra. Engar
formlegar starfslýsingar eru til, né heldur hæfniskröfur
gerðar, nema þær að viðkomandi þarf að hafa fyllsta traust
ráðherrans til ýmiss konar verkefna sem hann felur aðstoðar-
manni sínum. Þau verkefni geta verið breytileg frá einum
ráðherra til annars. I störf aðstoðarmanna hefur gjaman valist
ungt fólk, jafnvel nýskriðið úr skóla, sem hefur jafnframt
verið að gera sig gildandi í starfi stjómmálaflokka, svo sem
innan ungliðahreyfinga þeirra. Viðkoma um einhvem tíma
í starfi aðstoðarmanns þykir góður bakgmnnur sé fólk á
framabraut.
Pólitísk tækifæri Strax var tekið tíl óspilltra mála þegar
Viðeyjarstjóm þeirra Davíðs og Jóns Baldvins tók við stjómar-
taumum. Vinnubrögðum í forsætisráðuneytinu var breytt,
en á hinu pólitíska svið vom einkavæðing og niðurskurður á
öllum sviðum boðorðin sem fylgt skyldi, enda hallinn rekstri
ríkissjóðs mikill. „Fortíðarvandi“ var mikið notað hugtak á
þessum tíma.
„Að sjálfsögðu em takmörk fyrir því sem markaðurinn
getur annast, en það em einnig takmörk fyrir því sem skatt-
kerfið tekur við. Astandið í ríkisfjármálum og á fjármagns-
markaði sýnir að við Islendingar em komnir á endastöð.
Með núverandi stjómarsamstarfi er komið pólitískt tæki-
„Á meðan þeir gera engar bommertur fá
þeir að vinna að sínum málum án þess að
hann andi ofan í hálsmál þeirra," sagði
Hreinn við DV.
færi til þess að hrinda hug-
myndum um einkavæðingu
í framkvæmd," segir Hreinn
Loftsson í viðtali við Morgun-
blaðið í ágúst 1991.
Að raungera þessar hug-
myndir kom í hlut Hreins
sjálfs, því 1992 var hann
valinn til formennsku í einkavæðingamefnd sem hann gegndi
næsta áratuginn.
Eyjólfur 09 Síðan Orri Hreinn Loftsson vék af velli sem
aðstoðarmaður forsætísráðherra í septemberbyrjun 1992
og stóllinn var auður til vors. Þá tók við Eyjólfur Sveinsson,
iðnaðar- og rekstrarverkfræðingur, sem þá hafði starfað
meðal annars við rekstrarráðgjöf, en í félagsmálum átti hann
bakgmnn sem formaður Vöku og Stúdentaráðs Háskóla
Islands. Eyjólfur staldraði við í forsætisráðuneytinu fram til
ársloka 1995, þegar hann fór tíl starfa hjá föður sínum, Sveini
R. Eyjólfssyni, og tók við sem framkvæmdastjóri Frjálsrar fjöl-
miðlunar og DV. A ámnum sem í hönd fóm áttí Eyjólfur eftír
að verða einn umsvifamestí kaupsýslumaður landsins, allt þar
til spilaborg viðskiptaveldis hans hmndi.
Davíð Oddsson var án aðstoðarmanns fram á mitt sumar
1997, eða þar til Orri Hauksson véla- og iðnaðarverkfræð-
ingur kom til starfa. Hann hafði þá áður starfað um tveggja
ára skeið hjá utanlandsdeild Eimskipafélagsins, en jafnframt
haft viðkomu í stúdentapólitík og Heimdalli. Starfinu gegndi
Orri fram til ársins 2000.
,Að öðmm ólöstuðum er Davíð sá stjómmálamaður sem
helst hefur þokað okkur í átt tíl mannúðlegs markaðssam-
félags. Það má auðvitað spyija sig hvort hann hefði getað gert
eitthvað betur eða hraðar, en það þarf ekki annað en að líta á
stöðu efnahagsmála miðað við það hvemig þau stóðu þegar
hann tók við stjómartaumum," sagði Orri í viðtali við Morgun-
blaðið þegar hann tók við starfinu.
Þar sagði hann ennfremur að sér þættí ósennilegt að
hann myndi sinna stjómmálum sem aðalstarfi í framtíðinni.
Hugur sinn stæði tíl þess að vinna í einkafyrirtæki og úti á
markaðnum, sem hefur líka gengið eftír; frá því snemma á
árinu 2003 hefur Orri verið framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Símans og gegnir nú, í krafti þess, stjómarformennsku í
Islenska sjónvarpsfélaginu sem rekur Skjá einn.
Ódeigur lllugi Orri lét sem fyrr segir af störfum á árinu 2000
og það var undir lok þess árs sem Illugi Gunnarsson tók við og
fylgdi Davíð yfir í utanríkisráðuneytið nú í haust Illugi er hag-
Eyjólfur staldraði við í forsætísráðuneytinu fram
til ársloka 1995, þegar hann fór til starfa hjá
föður sínum, Sveini R. Eyjólfssyni, og tók við sem
framkvæmdastjóri Frjálsrar tjölmiðlunar og DV.
Davíð sjálfur kveðst leggja mikið upp
úr því að samstarfsmenn sínir séu
fljótir að greina meginatriði hvers máls
og ekki þurfi að stafa ofan í þá hvem
hlut. Að þeir hafi innbyggða þá fjöður
sem segi þeim hvað megi og hvað ekki.
44