Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2004, Page 57

Frjáls verslun - 01.10.2004, Page 57
þar sem hinn atkvæðamikli Henry Kissinger utanríkisráðherra var einn af hans nánustu sam- starfsmönnum. Þríeyki Bush er Cheney, Rice og Karl Rove. Rove er gjaman talinn skapari og heili Bush - en þá er óhætt að segja að Rice sé rödd hans. Sem þjóðaröryggisráðgjafi hefur Rice eytt dijúgum tíma með Bush. Hún gefur honum yfirlit á morgnana, fundar með honum yfir daginn, er oft ein með honum og er fastur gestur á opinbera sveitasetrinu Camp David og á búgarði Bushhjónanna í Texas. Um hvað skyldu þau eigin- lega tala? spyrja margir í Washington. New York Times segir í forystugrein að svo virðist sem Rice segi forsetanum „það sem hann vill heyra um ákvarðanir sem hann hefur þegar tekið, frekar en það sem hann hefur þörf á að vita til að draga traustar ályktanir". Jack Straw hafði trú á að Rice tæki við En hvers er þá að vænta af Rice sem utanríkisráðherra? Stuðningsmenn hennar segja að hún hafi þegar plægt vel sambönd við starfsbræður sína víða um lönd. Hér í Englandi er til þess tekið að Jack Straw utanríkisráðherra hafi ræktað vel sambandið við Rice undanfarin misseri í þeirri trú að hún tæki við af Powell. Styrkur hennar út á við liggur í nánu sambandi við forsetann - þegar hún talar efast enginn um að hún tali fyrir munn hans. Sjálf hefur hún sagt að hann hafi haft mikil áhrif á sig og að þau séu sammála um granngildi og frelsi - og þau hafa sýnt sig vera samtaka um nauðsyn þess að nýta yfirburðahemaðar- styrk Bandaríkjanna til að ýta undir framgang frelsis í heim- inum. Sumir taka þessa trú þeirra þó sem dæmi um einfeldni þeirra. Framvindan í írak sýni að þó harðstjóm sé sópað burtu þá fýllist tómarúmið ekki endilega af einlægum lýðræðis- sinnum í anda landsfeðra eins og Thomas Jeffersons. Hún er ógift, býr í lítilli íbúð í Watergate- byggingunni og lifir öguðu lífi, að sögn vina hennar. Hún fer í háttinn kl. 22, vaknar kl. 5, hleypur á hlaupabandi heima fyrir, er mætt í vinnuna fyrir ld. 7 og tekur iðulega með sér matarpakka að heiman. Það er af nógu að taka þegar kemur að vantrú á Rice, eins og Herbert rekur í áður- nefndri grein. Richard Armit- age, vinur og næstráðandi við hlið Powells, segir í bók Bob Woodwards, „Plan of Attack" - um aðdraganda Írakstríðsins - að utanríkisstefnukerfið, sem Rice átti að stýra sem þjóðaröryggisfulltrúi, hafi verið óvirkt. Þegar fyrir ári síðan var Bush orðinn áhyggjufullur yfir ástandinu í írak og setti Rice yfir nefnd, sem átti að draga úr spennu og styrkja uppbygginguna þar. „Nýlegar blaðafyrirsagnir vitna um hversu vel það hefur tekist,“ segir Herbert. „Ég leita lil æðri föður" Annar leiðbeinandi, sem Rice nefnir gjarnan, er Brent Scowcroft, sem var þjóðaröryggis- fulltrúi Bush eldri og tilnefndi Rice í Þjóðaröryggisráðið 1989. Scowcroft marglýsti yfir vantrú sinni á innrásinni í írak og gleypti aldrei við kenningu Hvíta hússins um tengsl Saddams Husseins við hryðjuverkamenn A1 Kaída og árás- ina 11. sept., því hagsmunir Husseins og A1 Kaída hafi alls ekki farið saman. Það hefur truflað marga að Bush skuli hafa reitt sig á nýgræðinga eins og Rice en skellt skollaeyrum við reyndum mönnum eins og Scowcroft og föður sínum, sem virtist sama sinnis og Scowcroft. Þegar Woodward spurði Bush yngri hvort hann hefði ekki ráðfært sig við föður sinn svaraði Bush: „Ég leita til æðri föður.“ Eftir kosningamar hefur Tony Blair, forsætisráðherra Breta, sagt Evrópuþjóðunum, sem voru ósáttar við árásina í írak, að þær verði að horfast í augu við staðreyndir. Það kemur í hlut Rice að ýta þeim í þá átt. Þar muna þó kannski enn einhveijir að í fyrravor sagði hún að Bandaríkin þyrftu að „refsa Frakklandi, leiða Þýskaland hjá sér og fyrirgefa Rússlandi". Allt bendir til að Frakkar séu að minnsta kosti enn trúaðir á eigin óskeikulleika - í nýafstaðinni Eng- landsheimsókn sinni hélt Jacques Chirac Frakklandsforseti ótrauður fram efasemdum sínum um Iraksinnrásina. Andlit Bandaríhjanna út á við Það kemur í hlut Riœ að vera andlit Bandaríkjanna út á við og sendiherra þeirra á alþjóðavettvangi, en grunnboðskapurinn er enn ekki orðinn skýr. Spurningin er hvort Bush ætlar að nota seinna kjörtíma- bilið til að draga úr ófriði og beita sér í Mið-Austurlöndum, þar sem menn vita að Rice er eindreginn stuðningsmaður ísraels - eða hvort hann stefnir á að lækka rostann í Iran og Norður-Kóreu, hugsanlega með vopnavaldi. Margir telja að síðarnefnda stefnan sé ósennileg því þó Bandaríkin séu máttug hvað herstyrk varðar þá séu þau þó ekki almáttug. En þar sem hæstráðandi Hvíta hússins og heimsins hlustar frekar á alföður en föðurinn þá hlýtur hann einhvem tíma að hafa rekist á orð hins vísa Salómons þar sem segir að drambsemi sé undanfari tortímingar og að oflæti viti á fall. En hvernig hin klóka Rice túlkar boðskapinn og mótar á enn eftir að koma í ljós.H3 Nafnið Condoleezza er dregið af tónlistarhugtakinu „con dolcetta", „með blíðu“, sem menn deilir á um hvort sé réttnefni. 57
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.