Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2004, Page 114

Frjáls verslun - 01.10.2004, Page 114
Agúst Valfells, var lengi Helga Valfells hefur búið meiri hluta ævinnar erlendis, en faðir hennar, vel búsettur í Bandaríkjunum og starfaði þar sem kjarnorkuverkfræðingur. FV-mynd: Geir Olafsson Helga Valfells hjá Útflutningsráði Textí: ísak Öm Sigurðsson. W Utflutningsráð er í raun og veru þjónusta við afla útflytjendur, hvort sem útflutningur þeirra er hafinn eða í undirbúningi. Hjá Utflutningsráði má segja að séu fimm meginsvið, fræðsla, sýningar, ráðgjöf, upplýsingar og könnun nýrra markaða með fyriitækjum," segir Helga Valfells, forstöðu- maður Ráðgjafasviðs Útflutn- ingsráðs. „Eg veiti ráðgjafasviði Útflutningsráðs forstöðu, en við erum að vinna á því sviði með innlendum og erlendum ráðgjöfum, bæði fast- og laus- ráðnum. Ráðgjafar okkar erlendis eru ijórtán talsins, ef ég tel viðskiptafulltrúa í sendiráðunum með. Ráð- gjafar okkar hér heima eru sjálfstætt starfandi og allt í aflt um þijátíu talsins, þó að sjaldnast séu meira en tíu í einu starfandi í verkefnum á okkar vegum. Eg hóf störf hjá Útflutningsráði árið 1999. Mér finnst mjög gaman að fylgjast með því hvemig fyrirtæki, sem vom að stíga sín fyrstu skref hjá Útflutningsráði þegar ég byrjaði, em mörg búin að ná mjög góðum árangri á alþjóðavísu. Þar má nefna sem dæmi Latabæ, CCP, sem hefur sérhæft sig með góðum árangri í tölvuleikjum á Net- inu, og fyrirtækið Tær sem hefur náð góðum árangri með snyrtivörur sínar, sérstaklega í Bretlandi. Arangur þeirra minnir einnig á að það tekur töluverðan tíma að ná árangri á þessum vettvangi.“ Helga Valfells hefur búið meiri hluta ævinnar erlendis, en faðir hennar, Agúst Valfells, var lengi vel búsettur í Banda- ríkjunum og starfaði þar sem kjamorkuverkfræðingur „Skólaganga min á yngri ámm var á Islandi, ég tók stúd- entspróf frá Menntaskólanum í Hamrahlið en fór síðan til náms við Harvardháskóla í Bandaríkjunum þar sem ég nam hagfræði. Að loknu námi þar kom ég til Islands 1988, var um árs skeið hjá Ijóð- hagsstolhun en fór síðan að vinna hjá Verðbréfamiðlun Islandsbanka á byijunarámm verðbréfamarkaðarins hér á landi. Það var gaman að taka þátt i upphafsárum hans. Eg var um þriggja ára skeið hjá VBI en fór síðan til hjálpar- starfa fyrir Rauða krossinn í Afriku sem sendifulltrúi. Það starf breytti algjörlega lífssýn minni og var mikið ævintýri. Að lokinni dvölinni í Afríku fór ég í MBA-nám í London Business School þar sem ég kynntist eiginmanni mínum, Connor Byme. Við hjónin eigum saman tvo drengi, Kára 4 ára og Kjartan 7 ára. Að loknu MBA-námi í Bret- landi vann ég í firnm ár þar- lendis, fyrst eitt ár hjá Estée Lauder snyrtivörufyrirtækinu við markaðsmál og síðan hjá Merrill & Lynch í sammna og yfirtökum næstu 4 árin. Síðan fluttum við hjónin tfl Islands árið 1999 þar sem ég hóf störf hjá Útflutningsráði." Fjölskyldan er aðaláhuga- mál Helgu Valfells og fer mikill tími hennar í að sinna henni. „Við höfum gert mikið af því að ferðast eftir að við fluttum til Islands og að vonum hefur Connor mikinn áhuga á því að kynnast Islandi. Segja má að við höfum kynnst stómm hluta landsins á ferðalögum okkar. Af öðmm áhugamálum mínum mætti nefna að ég hef alltaf haft mikinn áhuga á ljós- myndun og geri mikið af því að lesa góðar bækur,“ segir Helga.H!i 114
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.