Morgunn - 01.06.1971, Side 62
56
MORGUNN
Sögnin segir, að meginlandið Atlantis hafi sokkið í sæ vegna
þess, að þar hafi þessi þekking verið misnotuð svo greipilega,
að jafnvægi náttúruaflanna gekk úr skorðum. Hvort sem sú
sögn hefur við rök að styðjast eða ekki, er hún íhugunarverð á
okkar timum, því að nú virðist þekking hagnýtt hugsunarlítið
í fjáröflunar- eða valdbeitingarskyni án þess að tillit sé tekið
til jafnvægisröskunar að því er varðar lögmál lífsins á þess-
um hnetti.
Sefjun var gróflega misbeitt vísvitandi i Nasismaveldi Hit-
lers. Enn er sefjun misnotuð vestan hafs og austan sem skefja-
laus áróður í bjónustu afla, sem víla ekki fyrir sér að svipta
einstaklinginn sinni helgustu eign, sem er hinn frjálsi vilji.
Auk þess hefur vaxandi þekking á lögmálum sefjunarinnar
leitt til þess, að erlendis hneigjast margir til þess að iðka svart-
an galdur. Svartur galdur er vísvitandi misbeiting þeirra sefj-
unarafla, sem í sálinni levnast.
Það má segja, að efnishyggjan hafi verið vörn gegn þessum
hættum. Menn hneigjast siður til þess, sem flokkar undir hind-
urvitni og hjátrú, en hins, sem talið er forvitniiegur veruleiki.
Menn eru löngu farnir að spyrja, hvort ekki verði að krefjast
siðferðisþroska og þekkingar á lögmálum lífsins af þeim, sem
breyta andliti Jarðar með tæknilegum framkvæmdum.
Sú spurning á áreiðanlega eftir að vefjast mjög fyrir okkur,
hvort þekkingin á orkulögmálum mannshugans eigi að vera
öðrum aðgengileg en þeim, sem treystandi er til að misbeita
henni ekki.
Flestum virðist svo sem hinar fornu reglur, sem varðveitt
hafa mikla þekkingu á öflum, sem með manninum leynast, hafi
legið of fast á þekkingu sinni, en það er ekki til umræðu hér.
Hitt er staðreynd, að þetta, sem við nefnum nútímavísindi er
að fikra sig áfram til æ ljósari vitundar um veruleika, sem hin
sömu visindi héldu fram, að væri alls ekki til fyrir svo sem
fimmtíu árum.
Það er austurriskur læknir, Friedrich Anton Mesmer, sem
venjulega er talinn upphafsmaður dáleiðslu í þágu læknisvís-
inda nútímans. Löngu fyrir hans tíma voru þó dáleiðsluaðferðir