Morgunn - 01.12.1981, Síða 5
ÞÓR JAKOBSSON:
INNGANGUR
Séra Jón Auðuns, fyrrverandi dómprófastur, lést á síðastliðnu
sumri. Við minnumst hans í þessu hefti með kveðju frá stjórn Sálar-
rannsóknafél. Islands og með minningarorðum Sr. Óskars J. Þorláks-
sonar, fyrrverandi dómprófasts og samherja Sr. Jóns við dómkirkj-
una. Sr. Jón Auðuns var forystumaður sálarrannsókna á Islandi um
árabil, forseti Sálarrannsóknafélags Islands og ritstjóri Morguns.
Forystu hans, óslökkvandi áhuga á framgangi sálarrannsókna sann-
leikanum samkvæmt og atorku hans á ritvelli og ræðustóli verður
lengi minnst.
Oft hefur staðið styr um sálarrannsóknir á Islandi, hvað sem síðar
verður. Tii vitnis um hið mikilvæga starf Sr. Jóns Auðuns til styrktar
málefninu, er endurprentuð lítil grein sem Ævar R. Kvaran skrifaði
i Morgni árið 1975 i tilefni af sjötugsafmæli Sr. Jóns.
Um annað efni í heftinu er þetta að segja í stuttu máli: Það hefst
á ljóði eftir Yngva Jóhannesson, ort til minningar um bróður hans,
skáldið og sálarrannsóknamanninn Jakob Jóh. Smára.
Guðlaug Elisa Kristinsdóttir segir frá sálarrannsóknaþingi i Eng-
landi sl. sumar. Ævar R. Kvaran, fyrrverandi ritstjóri Morguns, lýsir
í grein sinni vanda miðilsstarfsins. Matthías Eggertsson, ritstjóri
búnaðarblaðsins Freys, greinir frá athyglisverðri kenningu um þróun
mannsheilans. Þá kemur síðasta viðtal Hildar Helgu Sigurðardóttur
við kunna dulsálarfræðinga á alþjóðlegu þingi í Reykjavík 1980.
Þorbjörn Ásgeirsson skrifar m.a. um drauma frá sjónarmiði Nýal-
sinna.
Að lokum er greinasyrpa „úr heimi vísindanna" eftir ritstjóra,
ritstjórarabb og fréttir frá sálarrannsóknafélögum.