Morgunn - 01.12.1981, Síða 11
SÉRA ÓSKAR J. ÞORLÁKSSON:
SÉRA JÖN AUÐUNS
fyrrv. dómprófastur
MINNING
(Mbl. 19.7. 1981)
Séra Jón Auðuns, fyrrverandi dómprófastur, lést í Land-
spítalanum í Reykjavík 10. júlí sl. og verður á morgun
(mánudag) kvaddur hinstu kveðju frá Dómkirkjunni þar,
sem hann starfaði sem prestur í nærri þrjá áratugi og
lengst af þeim tíma sem prófastur í Reykjavíkurprófasts-
dæmi, fjölmennasta prófastsdæmi landsins. Áhrifa hans
sem dómprófasts gætti mjög í kirkjulífi Reykjavíkur um
hans daga. Á þessum árum hefur, eins og kunnugt er, orðið
mikil fólksfjölgun í Reykjavík, og margvislegar breytingar
á kirkjumálum Reykjavíkur.
Séra Jón var fæddur á Isafirði 5. febrúar 1905, sonur
hjónanna Jóns Auðuns, framkvæmdastjóra og alþingis-
manns, frá Garðsstöðum í ögurþingum, og Margrétar Guð-
rúnar Jónsdóttur, prests á Stað á Reykjanesi, Jónssonar.
Séra Jón ólst upp hjá foreldrum sínum á Isafirði, en þau
voru kunnir borgarar á Isafirði á sinni tíð og höfðu mikil
umsvif þar vestra um áratugi. Hefur séra Jón lýst æsku-
heimili sínu á Isafirði og dvöl sinni í Ögri við Isafjarðar-
djúp mjög skemmtilega í bók sinni ,,Líf og lífsviðhorf".
Hann lauk stúdentsprófi í Reykjavík 1924, og er það í
minnum haft, hve margir af þessum stúdentaárgangi hófu