Morgunn


Morgunn - 01.12.1981, Side 16

Morgunn - 01.12.1981, Side 16
ÆVAR R. KVARAN: SÉRA JÓN AUÐUNS SJÖTUGUR (Úr sumarhefti Morguns 1975). Eins og sjá má á öðrum greinum hér í tímaritinu, eru ský tekin að hrannast upp á himni frjálslyndis í íslenskri kirkju. Er ekki annað að sjá, en að kirkjan hafi snúið við á þróunarferli sínum og framfara, og stefni nú beint afturábak til hugsunarháttar miðalda. Harma víðsýnir velunnarar kirkjunnar mjög þessa öfugþróun, sem greini- lega birtist í furðulegri samþykkt prestastefnu í Skálholti í júnímánuði s.l. og gerð er að umtalsefni í öðrum greinum hér i tímaritinu. Víðsýnustu og vinsælustu prestar Islendinga eru nú teknir að reskjast margir hverjir. Dr. teol. Jakob Jónsson og séra Jón Thorarensen eru komnir á áttræðisaldur og séra Benjamín Kristjánsson er gamall maður. Og þann 5. febrúar á þessu ári varð séra Jón Auðuns, fyrrv. dóm- prófastur sjötugur. Séra Jón var eðlilegur arftaki Einars H. Kvarans sem forystumaður Sálarrannsóknafélags Is- lands, þegar skáldið skildi við. Séra Jón var forseti félags- ins 1939—1957 og ritstjóri Morguns frá 1940—1963. Fyrir frábær störf í þágu félagsins og þess málefnis sem það berst fyrir, var séra Jón kjörinn heiðursfélagi SRFl árið 1972. 1 efnisskrá Morguns, sem nær fram til ársins 1969 fyllir upptalning á greinum séra Jóns 13 blaðsíður, auk alls annars sem hann hefur ritað, rætt og þýtt. Í viðtalsþáttum, sem ritstjóri Morgunblaðsins, Matthías

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.