Morgunn - 01.12.1981, Blaðsíða 16
ÆVAR R. KVARAN:
SÉRA JÓN AUÐUNS SJÖTUGUR
(Úr sumarhefti Morguns 1975).
Eins og sjá má á öðrum greinum hér í tímaritinu, eru
ský tekin að hrannast upp á himni frjálslyndis í íslenskri
kirkju. Er ekki annað að sjá, en að kirkjan hafi snúið við
á þróunarferli sínum og framfara, og stefni nú beint
afturábak til hugsunarháttar miðalda. Harma víðsýnir
velunnarar kirkjunnar mjög þessa öfugþróun, sem greini-
lega birtist í furðulegri samþykkt prestastefnu í Skálholti
í júnímánuði s.l. og gerð er að umtalsefni í öðrum greinum
hér i tímaritinu.
Víðsýnustu og vinsælustu prestar Islendinga eru nú
teknir að reskjast margir hverjir. Dr. teol. Jakob Jónsson
og séra Jón Thorarensen eru komnir á áttræðisaldur og
séra Benjamín Kristjánsson er gamall maður. Og þann 5.
febrúar á þessu ári varð séra Jón Auðuns, fyrrv. dóm-
prófastur sjötugur. Séra Jón var eðlilegur arftaki Einars
H. Kvarans sem forystumaður Sálarrannsóknafélags Is-
lands, þegar skáldið skildi við. Séra Jón var forseti félags-
ins 1939—1957 og ritstjóri Morguns frá 1940—1963. Fyrir
frábær störf í þágu félagsins og þess málefnis sem það
berst fyrir, var séra Jón kjörinn heiðursfélagi SRFl árið
1972. 1 efnisskrá Morguns, sem nær fram til ársins 1969
fyllir upptalning á greinum séra Jóns 13 blaðsíður, auk
alls annars sem hann hefur ritað, rætt og þýtt.
Í viðtalsþáttum, sem ritstjóri Morgunblaðsins, Matthías