Morgunn - 01.12.1981, Side 17
MINNING
111
Johannessen, átti við hann sjötugan, lýsir séra Jón því,
hve djúp áhrif séra Haraldur Níelsson hafði á hann. Um
hann segir séra Jón m. a.: „Hann leiddi mig inn í hinn
auðuga heim trúarbragðanna, opnaði augu mín fyrir því,
hve ótal margt er sameiginlegt í öllum æðri trúarbrögðum.
Þetta varð auðvitað til þess, að ég hef síðan ekki getað
samsinnt því, að kristindómurinn sé hin eina lausnarvon
mannkynsinns. Maður getur t. a. m. ekki hugsað sér að
lélegir kristnir menn eigi í krafti trúar sinnar að erfa
himnaríki, en ekki menn eins og Tagore.“
Að því er virðist gengur slík víðsýni guðlasti næst um
þessar mundir, að áliti presta kirkjunnar íslensku; að ekki
sé nú talað um hinn skelfilega spíritisma!
Það þurfti hugrekki til þess að fylgja einhuga og opin-
berlega að málum hinum djörfu brautryðjendum spírit-
ismans á 2. tug þessarar aldar, þeim Einari H. Kvaran og
Haraldi Níelssyni. Og það stóð ekki á séra Jóni Auðuns.
Og hann er enn ómyrkur í máli árið 1975: „Séra Haraldur
Níelsson hafði þau áhrif á mig í sambandi við spíritismann
— og það er enn niðurstaða min, þótt ég hafi á löngum
tíma breytt um skoðanir á ýmsum efnum í sálarrannsókn-
um — að sá kjarni sannfæringar hans og boðskapur sé
réttur, að eigi boðun kristins dóms framtíð, þá verði að
leiða að því einhver skynsamleg rök, að mannssálin lifi
líkamsdauðann. Til þess nægir engin bók, jafnvel ekki
Biblían.“
Nú er svo komið, að slíkar skoðanir eru taldar af illum
toga spunnar og í þeirra stað boðaðar ofsóknir á hendur
frjálsri hugsun í trúmálum og jafnvel blátt áfram bann
lagt við beitingu vitsmuna í þeim efnum. En vitanlega er
það allt unnið fyrir gýg, því ofstæki vekur jafnan hlátur
hjá Islendingum.
Séra Jón Auðuns hefur á löngum starfsferli og farsælum
verið mikill áhrifamaður sökum málsnilldar og mælsku
og verið jafnvígur á ræðustóli sem ritvelli. Hann er ann-
álaður prédikari. Það er engum vafa undir orpið, að hin