Morgunn - 01.12.1981, Side 28
122
MORGUNN
hlýða á KRISHNAMURTI. Hann hélt fyrirlestra laugar-
dag og sunnudag, og hlýddum við á þá báða. Síðari daginn
sat ég rétt fyrir framan hann, meðan á fyrirlestrinum
stóð, og gat virt fyrir mér þennan 86 ára gamla heimspek-
ing, sem hinn kunni skyggnimiðill, LEBBITER, uppgötv-
aði, er Krishnamurti var 14 ára gamall. Sá hann þar á
ferðinni afar skært ljós.
Krishnamurti er lágvaxinn og grannholda, teinréttur og
liðlega vaxinn. Þó er auðséð, að líkamsþróttur hans fer
þverrandi. En hugsun hans er skýr, og hann mælir af vör-
um fram hnitmiðaðar setningar. Hann talaði á hvorum
fyrirlestrinum í eina klukkustund og 15 minútur, og hélt
óskiptri athygli þeirra 2000 manna, er á hann hlýddu.
Nokkrir Islendingar aðrir voru þarna viðstaddir.
Ég hef geymt það þar til nú siðast að geta um frekari
þátt íslands á ráðstefnu sálarrannsóknamanna, en ÖRN
GUÐMUNDSSON, varaforseti SRFl, flutti erindi og sýndi
litskuggamyndir af áru og bliki mannsins, sem eiginkona
hans, ERLA STEFÁNSDÓTTIR, hefur teiknað, eins og
það kemur henni fyrir sjónir. Teikningarnar eru reyndar
ófullkomnar miðað við það, sem Erla sér. Það þarf ekki að
draga dul á það, að teikningarnar vöktu verðskuldaða at-
hygli á ráðstefnunni. Erla er tónlistarkennari og spilaði
einmitt undir á píanó, er við sungum síðasta kvöldið á
ráðstefnunni.
Að lokum: Næsta alþjóðlega ráðstefna sálarrannsókna-
manna verður væntanlega haldin eftir 3 ár í Gautaborg.
Gildi slíkrar ráðstefnu getur verið margþætt.
Ýmiskonar fræðsla er flutt af lærðum og leikum.
Skýrt er frá vísindalegri og persónulegri reynslu.
Eins gefst kostur á að kynnast hæfileikafólki á þessum
sviðum, og persónuleg kynni og samskipti myndast meðal
þessa áhugafólks á „þýðingarmesta málefni í heimi“ eins
og Einar H. Kvaran orðaði það.