Morgunn - 01.12.1981, Blaðsíða 39
ARTHUR KOSTLER
133
Kenning um kenndir
Fyrir 2500 árum hófu Grikkir vísindaævintýri, sem m.a.
hefur gert manninum kleift að komast til tunglsins nú á
tímum. En um sama leyti og Grikkir hófu iðkun vísinda
komu fram á sjónarsviðið kenningar Lao Tse, Konfusiusar
og Búdda. Á tuttugustu öldinni höfum við hins vegar eign-
ast Hitler, Stalín og Mao og það er erfitt að koma auga á,
að á þessum tíma hafi siðferði tekið sýnilegum framför-
um meðal manna.
Á þessum grunni byggir Arthur Köstler hugmyndir sín-
ar. Hann reynir síðan að finna líffræðilega orsök þess, að
maðurinn er eins og hann er. Hann styðst þar við heila-
sérfræðing að nafni Paul D. Maclean, sem eftir 30 ára
rannsóknir lagði fram hinar svokölluðu Papez-MacLean
kenningu. um kenndir.
Kenning þessi fjallar um þann grundvallarmun, sem er
á þeim hluta af heila mannsins, sem á sér hliðstæðu í heila
skriðdýra og lægri spendýra, annars vegar, og hins sérstaka
ný-heila mannsins, sem þróast hefur ofan á hinum fyrri,
hins vegar, án þess að hlutarnir hæfi hver öðrum. Þetta
eru kölluð ,,mistök“ þróunarinnar, en af þeim leiðir að
sambúð verður óróleg milli gamla heilans, sem annast um
eðlishvatir og tilfinningar, annars vegar, og nýja heilans
hins vegar, sem annast um rökhyggju, tungumálið og sam-
tengingu hugmynda.
MacLean lýsir þessu myndrænt á eftii’farandi hátt:
„Náttúran hefur útbúið manninn með þrjá heila, sem
verða að starfa saman og skiptast á upplýsingum. Elsti
heilinn er að mestu skriðdýrsheili, annar er fenginn að
arfi frá lægra spendýri og hinn þriðji er nýtilkominn í þró-
uninni, og hann hefur gert manninn að því, sem hann er.
Þegar sálfræðingur biður sjúkling sinn að leggjast á við-
talsbekkinn, þá getum við ímyndað okkur, að hann liggi
þar við hliðina á hesti og krókódíl.
Á nútímamáli má kalla þessa heila lifandi tölvur, hvern