Morgunn - 01.12.1981, Page 43
VIÐTAT, VIÐ GERTRUDE SCHMEIDI ,ER
137
tilraunahópum eru gefnar í samræmi við viss persónuein-
kenni hjá hvorum hópum fyrir sig.* Svo ég útskýri þetta
aðeins nánar, þá er þarna um að ræða mjög víðtækt rann-
sóknarsvið innan dulsálarfræðinnar, þ. e. persónueinkenni
þeirra, sem búa yfir yfirskilvitlegri skynjun, hafa „gáfur“,
eins og stundum er sagt.
Snemma eftir að rannsóknir á yfirskilvitlegum hæfileik-
um hófust með nútímasniði, kom í ljós að persónuein-
kenni gegna veigamiklu hlutverki í þessu samhengi og
rannsóknir á því, með hverjum hætti þau geri það, hafa
verið aðalviðfangsefni mitt á þessu sviði.
Einnig virðist skipta miklu máli, þegar tilraunir eru
framkvæmdar, hvort þeir, sem taka þátt í þeim, eru trú-
aðir á jákvæðan árangur. Þar koma fyrrgreindar nafn-
giftir til sögunnar. ,,Sauðir“ eru þeir kallaðir, sem trúaðir
eru á yfirskilvitlega skynjun og mátt hennar, en „hafrarnir"
eru hinir vantrúuðu.“
,.Margir leyndardómar, sem á eftir að afhjúpa“.
„Það eru margir leyndardómar, sem á eftir að afhjúpa
í dulsálarfræðinni. En hvað varðar persónueinkenni þeirra,
sem rannsóknir hafa verið framkvæmdar á, er aug-
Ijóst að þau eru þáttur, sem gefa verður gaum að og at-
huganir á þeim eiga eftir að hjálpa okkur áleiðis í áttina
til aukins skilnings," segir dr. Schmeidler. „Þeir þátttak-
endur, sem ná bestum árangri við tilraunir, eru yfirleitt
opinskátt fólk og jákvætt í lífsviðhorfum sínum almennt.
Fólk, sem er innhverft og upptekið af sjálfu sér, sýnir
aftur á móti slakari árangur.
Spil eru sígilt rannsóknartæki til að kanna yfirskilvit-
lega skynjun. Ef fólk getur rétt til um hvaða spil það
muni draga oftar en fimmta hvert skipti, teljum við að um
annað en tilviljun geti verið að ræða.
Sbr. samlíkinguna i Matt. 25, 32-33. Ritstj.