Morgunn - 01.12.1981, Blaðsíða 48
142
MORGTJNN
andi, sem hann annars hefði orðið að vera, ef um sálfarir
hefði verið að ræða. Svarið er því annað.
S. Er þetta ekki eitt af því sem við eigum aldrei að
fá að vita?
Þ. Þetta er vanþekking, sem ég vil svara á þessa leið:
„Heimurinn er skapaður fyrir manninn, honum er ætlað
að vitkast og þroskast svo ekkert verði honum hulið. Að-
eins á þann hátt getur mannkynið lifað í friði, að vitneskj-
an segi honum að ófriður, afbrot og glæpahneigð er van-
þroski. Því segi ég þann mann vanþroskaðan, sem ætlar
það að takmörk sé fyrir því hvað maðurinn eigi að vita.“
En ef þú vilt athuga þetta nánar verðum við einnig að
fylgjast með því, að hverju vísindamenn hafa komist í
þessum málum í dag. Þeir vita að hugsanaflutningur er
í fullu samræmi við eðli náttúrunnar. Þar að auki álíta
sumir þeirra líklegt að tilfinningaflutningur eigi sér stað,
samanber eineggja tvíbura, sem taka þátt í veikindum
hins, þótt aðeins annar þeirra sé raunverulega veikur.
Svipað er að segja um aðra, sem slíkt samband hafa feng-
ið, og menn oft á tíðum kalla móðursýki. Einnig hafa
tékkneskir vísindamenn í Prag fundið ögn, sem þeir nefna
„mention“ og fer hraðar en ljósið. Hefur hún þá eiginleika
að geta farið í gegnum hvaða efni sem er, líkt og engin
fyrirstaða væri til. Prófessor Frantisek Kahuda telur að
þessi ögn geti verið undirstaða þeirra fyrirbæra, sem hafa
verið kölluð sálræn fyrirbæri. Amerískir vísindamenn telja,
eftir ítrekaðar tilraunir, líklegt að sofandi mann geti
dreymt það sem annar maður hugsar. Samkvæmt tilraun-
um reyndist það vera of oft sem það skeði til að geta verið
tilviljun. Er þá ekki eins líklegt að sjónflutningur geti átt
sér stað? Við höfum mörg dæmi um skyggna menn, sem
sjá eða lifa upp atburði í órafjarlægð frá þeim stað sem
þeir sjálfir eru staddir á, og lýsa honum eins og þeir væru
þar nærstaddir. Oft þegar þeir sjá þessar sýnir, þá er sama
hvort augun eru opin eða lokuð. Það er engu líkara en
þeir séu í draumheimi, sem kalla má vökudrauma. Við