Morgunn


Morgunn - 01.12.1981, Side 55

Morgunn - 01.12.1981, Side 55
149 „ÚR HEIMI VÍSINDANNA11 þegar vel liggur á mönnum, en jafnframt svo geigvænleg, að menn hafa í rauninni ekki skynjað hana til fulls, til- einkað sér hana og fellt hana inn í heimsmynd sina. 1 augum flestra er þetta ankanaleg spariþekking, sem kemur ekkert bensínverði við né einu né neinu í dagsins önn. En hvort sem þér sjálfum finnst þörf á að átta þig eða ekki og huga að afstöðu þinni eða annarra, afstöðu lífsins og jarðarinnar til þessa alheims, þá er hann þarna samt í öllu veldi sínu, furðulegri en nokkurn speking fyrri tíða óraði fyrir. Þú staldrar þó kannski við, þegar þú ert á þetta minnt- ur og tuldrar: ,,en skrítið“ og einstaka hrifnæmur stjörnu- glópur finnst sem hann sé á Kjarvalsstöðum að dást að málverki, sem vel má þó gleymast strax og út er komið. Vissulega er það vel dregið stjörnumálverkið á himin- hvolfinu, en spurningin er: kemur það nokkrum við nema stjörnufræðingum? Ekki veit ég öruggt svar við þessu frekar en aðrir, en mér segir samt svo hugur um, að mannkynið og skepnan öll eigi þrátt fyrir strjálbýlið í himingeimnum meiri þegn- skaparrétt á bænum þeim en okkur er ljóst enn sem komið er. Tignarleg heimsskoðun stjörnuspekinnar hefur beðið skipbrot, en við trúum því að náttúran sé söm við sig og í samræmi hvar sem við dræpum fæti nær eða fjær í fjar- lægum vetrarbrautum. Þannig værum við altént í órjúf- anlegum tengslum við alheiminn þrátt fyrir allt, háð lög- málum hans, þótt á annan veg væri en forfeður okkar ætluðu. „Ætt þín er rakin aftur — í Ijós og mold.“ Við furðum okkur á vegalengdunum, en þar með reynd- ar á bakhlið rúmsins, tímanum, og öllum breytingum, sem hafa átt sér stað um milljónir ára: jarðsögunni og þróun lífsins fram á okkar dag.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.