Morgunn


Morgunn - 01.12.1981, Side 66

Morgunn - 01.12.1981, Side 66
160 MORGUNN Þessi stutta grein vakti mikla athygli og örvaði mjög bollaleggingar og vísindalegar rannsóknir í þessum efnum. Við gefum þeim félögum orðið: Engar kenningar eru enn á boðstólum, sem gera mönn- um kleift að meta á áreiðanlegan hátt líkindin á eftirtöld- um meginatburðum tilveru okkar: í fyrsta lagi á myndun reikistjörnu eða hnattar á borð við hnetti sólkerfis okkar, í öðru lagi uppruna lífs og í þriðja lagi á þróun samfélaga sem búa yfir háþróaðri vísindalegri þekkingu. Þótt fullan skilning skorti á þessum undirstöðum mann- legrar tilvistar má þó ætla, að stjörnur (þ.e.a.s. sólir) svip- aðrar gerðar og okkar eigin ágæta sól fari ekki einar sam- an ef svo mætti segja: hnattkrili sveima umhverfis slíka sól. Sumir þessara hnatta eru þannig gerðir og settir i sól- kerfi sínu, að lífinu tekst að hreiðra um sig. Líkt og á okkar jörð endur fyrir löngu, kviknar líf í faðmi dauðrar náttúru. Áramilljónir líða og þá kemur að því líkt og á okkar jörð ekki alls fyrir löngu að vitverur verða til. Skynjun og skilningur eykst smám saman, en að vísu ekki þrautalaust. Stundum nær blindan og misskilningurinn undirtökunum, þessi vitiborna vera fellur í gamla farið og vitleysan ræður rikjum. Þess í milli rofar til og veran tekur sprett fram á leið í leit að sannleikanum. Við menn, vitsmunaverurnar í þessu sólkerfi, vitum margt en ekki enn, hversu lengi slík „þjóðfélög" gætu verið við lýði. Ekki er þó út í bláinn að ætla, að sums stað- ar séu til samfélög margfalt eldri en okkar, jafnvel svo gömul að aldurinn jafnist á við jarðsögutímabil, tugi og hundruð milljóna ára. Það má því búast við að í þessum stöðum langt, langt úti í geimnum í grennd við einhverja sól sem minnir á okkar sól sé ,,menning“ með vísindalegan áhuga og tæknikunnáttu á miklu hærra stigi en hér tíðkast. Forskot þessara fjarlægu meðbræðra í lífsins leik er vísast mun meira en okkar yfirburðir gagnvart kettinum okkar, hundi og hesti og öðrum dýrum í kringum okkur.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.