Morgunn


Morgunn - 01.12.1981, Page 71

Morgunn - 01.12.1981, Page 71
165 „ÚR HEIMI VÍSINDANNA“ Að þeirri stökkbreytingu í framþróun náttúruvísindanna, sem uppgötvun þessi var, stóðu tveir jöfrar andans, Eng- lendingurinn Isaac Newton og þýski heimspekingurinn Gottfried Wilhelm von Leibniz. Á myndum sjáum við þá í fínu fötunum. Þykkir lokkar hárkollunnar príða höfuð og herðar á miðaldavísu og friðsælt yfirbragðið ber vitni um sjálfstraust þess sem hefur farið með sigur af hólmi og hafinn er yfir smámunina. Enginn getur greint í þessum tígulega svip, að hver hefur sinn djöful að draga þrátt fyrir allt: sjálfan sig. Þrátt fyrir frægð og frama í lifanda lífi áttu þeir sin svörtu skeið, þessir leiðtogar okkar í leit að sannleikanum, smá- ræði vex þeim í augum, hégómlegar hvatir raska ró þeirra, tíminn og dýrmætir vinnnudagar riðlast í áhyggjum, gremju og lamandi þunglyndi. Þessa í milli rofar til og leyndardómar náttúrunnar eru afhjúpaðir einn af öðrum: snilligáfan er að verki — og skilningur mannkynsins á um- hverfinu verður ekki hinn sami eftir, heldur sannari og dýpri. Newton eöa Leibniz? Newton og Leibniz eru báðir upphafsmenn diffur- og tegur-reikningsins, en hvor var á undan? Um það var deilt árum og jafnvel áratugum saman á sínum tíma og skiptust menn í hatrammar fylkingar, annars vegar fylgjendur Newtons og hins vegar þeir, sem aðhylltust Leibniz. Voru þeir síðarnefndu aðallega á meginlandinu. Síðasta áratuginn hafa komið út tvær athyglisverðar bækur, sem f jalla um þessar sögufrægu deilur. Þær styðjast við nýkannaðan efnivið frá þessu timabili og hafa þær vakið mikið umtal hjá áhugamönnum um sögu vísindanna. Fram til þessa hefur almennt verið álitið, að höfuðpersón- ur leiksins, þeir Newton og Leibniz, hafi í rauninni verið hálfgerðir statistar á sviðinu — ef ekki, þá hafi þeir kannski frekar reynt að skakka leikinn og latt hirðmenn sína gífur-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.