Morgunn - 01.12.1981, Page 84
FRÉTTIR FRÁ FÉLÖGUNUM
(Bls. 178-181)
Fréttir frá Sálarrannsóknafélagi íslands,
Reykjavík
Stjórn félagsins er skipuð sem hér segir:
Forseti: Guðmundur Einarsson
Varaforseti: Erla Tryggvadóttir
Ritari: Helga Einarsdóttir
Gjaldkeri: Aðalheiður Friðþjófsdóttir
Meðstjórnandi: örn Guðmundsson.
Varastjórn skipa: Edda Gunnarsdóttir, Geir Tómasson,
Þór Jakobsson, Þóra Hallgrímsson og Þorgrímur Þor-
grímsson.
Félagið er til húsa í Garðastræti 8, Reykjavík. Þar eru
fundaherbergi og bókasafn. Á síðasta aðalfundi var Stein-
dóri Marteinssyni falið að hafa umsjón með safninu.
1 næsta hefti verður sagt frá fræðslu- og umræðufund-
um á árinu (1981), en önnur starfsemi var í megindrátt-
um á þessa leið:
Bresku miðlarnir Robin Stevens og Coral Polge störf-
uðu dagana 16.—23. maí 1980. Voru þau með skyggnilýs-
ingar og teikningar, bæði af ,,auru“ og látnu fólki. Héldu
þau. þrjá fjöldafundi í Félagsheimili Seltjarnarness og
ennfremur einkafundi.