Morgunn - 01.06.1988, Blaðsíða 6
RITSTJÓRARABB
MORGUNN
mönnum Sálarrannsóknafélagsins, því ekki er að efa að þeir
búa margir yfir ýmsu fróðlegu, sem þeir hafa upplifað í gegn
um tíðina og tengist þeim málum sem starfsemi félagsins
lýtur að. Vil ég nota tækifærið og hvetja ykkur lesendur góðir
til að senda Morgni frásagnir, sem þið teljið að eigi heima í
ritinu. Jafnframt vil ég hvetja ykkur til að benda þeim, sem
e.t.v. ekki eru þegar áskrifendur, en hafa áhuga á dulrænum
málefnum, á ritið og hvar hægt séaðgerast áskrifandi að því.
Undirbúningur þessa tölublaðs var einkar skammur, en
reynt hefur þó verið að hafa efni þess sem fjölbreytilegast.
I greininni sem fjallar um bókina „Veran á 29 mega-
riðum,“ er komið inn á það nýjasta, sem er að ske í rann-
sóknum varðandi möguleika á enn frekari sönnunum fyrir
lífinu fyrir handan. Með birtingu hennareru einnigm.a. höfð
í huga orð Einars H. Kvaran varðandi æskileg efnistök tíma-
ritsins Morguns. Pessar rannsóknir, sem bókin fjallar um og
sagt er frá í greininni, eru afar markverðar, þó þær séu
reyndar þess eðlis að mörgum kunni að þykja erfitt að trúa
því, að það sem þær stefni að geti nokkurn tíma reynst
mögulegt. En maður skyldi aldrei segja aldrei er stundum
sagt, og svörin fást ekki nema að eftir þeim sé leitað.
í vetur hefur starfað á vegum Sálarrannsóknafélagsins
sérstök rannsóknanefnd, skipuð fjórum mönnum. Sú nefnd
hefur einmitt haft þetta að leiðarljósi og gengið með opnum
huga að verkefnum sínum. Hefur nefndin enda haft í nógu að
snúast, en þetta fyrsta starfsár hennar hefur að mörgu leyti
verið undirbúningur að frekara starfi.
Eitt það fyrsta sem hún tók sér fyrir hendur var að gera
ítarlega könnun á meðal félagsmanna Sálarrannsókna-
félagsins, um viðhorf þeirra, reynslu og trú varðandi dulræn
málefni. Er ekki að efa að niðurstöður þessarar könnunar
geta orðið félaginu til mikils gagns og upplýsingar. Viljum
við því eindregið hvetja þá sem enn kunna að eiga eftir að
senda inn svöruðum spurningalistum, að gera svo sem fyrst.
Rétt er að ítreka að þó fólk hafi sjálft ekki upplifað eitthvað
dulræns eðlis þá geta svör þess verið til mikils gagns í könn-
4