Morgunn - 01.06.1988, Blaðsíða 30
SKÝRSI.A FORSETA . . .
MORGUNN
eftir mikil fundahöld. Þannig aö ekki þarf að undrast þótt
fullur skriður sé ekki enn kominn á starf hinna ýmsu
nefnda.
Félagsfundir:
Svo farið sé stuttlega yfir það markverðasta, þá skal þess
getið að félagsfundir voru 8 talsins, að meðtöldum jóla-
fundi og nú aðalfundi. Fundir voru fyrst haldnir að Hall-
veigarstöðum, síðan í risinu að Hverfisgötu 105, en eftir að
Hótel Lind við Rauðarárstíg tók til starfa eftir áramótin
hafa félagsfundir og skyggnilýsingafundir verið haldnir þar.
Fyrsti fimmtudagur hvers mánaðar hefur verið notaður til
félagsfunda. Það er nokkurt áhyggjuefni stjórnarinnar
hversu fundarsókn hefur verið treg, að því er viðkemur fé-
lagsfundum. Þetta er því miður engin nýlunda, því fyrri fé-
lagsstjórn kvartaði yfir því sama. Sjálfsagt liggja margar
orsakir til þessarar fundarþreytu félaganna, svo sem t. d.
útvarp, sjónvarp, félagsstörf, tímaskortur o. s. frv., eða
þá það að efni sem boðið er upp á, sé ekki nægilega áhuga-
vert.
Nú kem ég að einstökum félagsfundum. Á félagsfundi 2.
apríl 1987 minntist forseti félagsins Einars heitins Jónssonar
miðils frá Einarsstöðum, Sveinn Ólafsson lék á flygil frum-
samið lag og frú Guðlaug E. Kristinsdóttir flutti minningar-
erindi um Einar Jónsson lækningamiðil. Fundarstaður:
Hallveigarstaðir.
1. október 1987 kynnti forseti félagsins, Geir R. Tómas-
son, ýmis nýmæli í stjórnun og starfsemi félagsins og ræddi
vetrarstarfið. Varaforseti félagsins Guðmundur Einarsson,
Erla Tryggvadóttir og Guðmundur Mýrdal skýrðu frá þingi
alþjóðasamtaka spíritista, sem haldið var um sumarið í
Englandi. Fundarstaður: Hverfisgata 105.
5. nóvember hélt Gunnar Gunnarsson sálfræðingur fróð-
legt erindi, er hann nefndi „Lífefli“, Fundarstaður: Hverfis-
gata 105.
3. desember var jólafundurinn haldinn í Langholtskirkju
og var fjölsóttur. Forseti félagsins setti samkomuna og flutti
28