Morgunn - 01.06.1988, Blaðsíða 16
AFFUNDI MFÐ TUTU
MORGUNN
Ef þið farið inn í andlega heiminn, þá getið þið ekki snúið
aftur til jarðlíkamans. Pessi breyting sem þið kallið dauða, er
þannig í því fólgin að þið farið inn í andlega heiminn.
Sp.: Er hin svo kallaða paradís og sumarland sami staður-
inn?
Sv.: Petta eru orð sem fólk margra þjóða hefur búið til í
aldanna rás, til þess að lýsa fegurð andlega heimsins, sem það
hefur rétt séð í svip og þó mjög óljóst. Paradís er heiti sem
notað er í austurlöndum, vesturlönd vísa til himnaríkis.
Spíritistar hafa notað orðið sumarland, vegna gleðinnar,
fegurðarinnar og ljóssins sem frá því geislar. Það skiptir ekki
máli hvaða orð þið notið, heldur hvað þið vitið og finnið
innra með ykkur. Hjálpar þetta svar? — Já, svolítið. — A —
svolítið, ó já, það er mjög skiljanlegt að fólk á jörðinni skuli
vera afskaplega forvitið. Og vel munum við eftir eiginmanni
miðilsins, sem spurði spurninga. Og vel man ég eftir að ég
sagði við hann: Hvað viltu fá að vita? Hann svaraði: ,,Ég vil
fá að vita allt.“ Og ég varð að segja honum að hann myndi fá
sálræna meltingartruflun af því. Vegna þess að það er með
þetta eins og fæðuna, þú getur aðeins innbyrt það magn og
þær tegundir matar sem meltingarfæri þín eru hæf til að fást
við. Ég er viss um að öll eruð þið ólík og ef ég spyrði ykkur,
hvert fyrir sig, þá myndi eitt segja: ,,ég get ekki borðað
þetta, annað: já, ég get vel borðað þetta en ég get ekki
borðað hitt, því það veldur mér brjóstsviða og meltingar-
truflunum. Og þannig er því varið með þekkingu andans.
Hæfileg inntaka smám saman, allt eftir hæfileikanum til að
meðtaka. Pó ykkur sé það ekki ljóst, þá hafið þið öll hérna
miklu meiri þekkingu og skilning en þið gerið ykkur grein
fyrir. Þekking ykkar er mikii, ef borið er saman við hina fyrir
utan, fólkið á götum borgar ykkar, sem er minnislaust og sér
ómeðvitað um nokkuð fyrir handan. Ekki aðeins þetta líf,
heldur og daginn í dag, líðandi augnablik, því sumir lifa
aðeins fyrir líðandi stund og hugsa ekkert til framtíðarinnar.
Sp.: Geturðu útskýrt eitthvað tímann í þinni vídd?
Sv.: Tími er ekki til. En samt verðum við að nota það orð
þegar viðtölum viðfólk á jörðinni. Ef til vill veist þúeitthvað
14