Morgunn - 01.06.1988, Blaðsíða 50
UM BÓKINA „VERAN Á 29 MEGARIÐUM"
MORGUNN
Já, svaraði Bill. En þú lætur þetta hljóma eins og — hamingj-
an sanna — eins og vélmenni í sjónvarpi. Svar Doc Nicks var
sundurlaust en skiljanlegt: Já, við munum alltaf... þegar við
. . . munum við . . . það eina . . . heyrirðu þetta Bill?
Heyrirðu?
Þegar þessar samræður voru Ieiknar af bandi af höfundi
bókarinnar, þá heyrðist honum rödd Bills titra og hann
virtist vera að reyna að ná stjórn á sér: Já, allt í lagi. Ah — þú
verður að afsaka — en ah — ég veit að þetta er — þú verður
að viðurkenna að þetta er hálf skelfileg reynsla. Svar Doc
Nicks var ógreinanlegt. O’Neil greip inn í: Þessu slær öllu
saman. Ég get ekki skilið það sem þú ert að segja. En svo
tókst honum að heyra svarið: „Ég sagði: af hverju ertu . . .
Pegar O’Neil teygði sig í takkana til þess að reyna að stilla
tækið betur, þá hélt röddin áfram: Láttu þá vera, láttu þá
vera. Heyrirðu til mín Bill? Heyrirðu hvað ég er að segja?
Svona hélt samtalið áfram um stund en rofnaði svo jafn
skjótt og það hafði hafist og ekkert heyrðist nema bak-
grunnshávaðinn í tækinu.
Meek varð auðvitað jafn hrifinn og O’Neil og var þegar
farinn að hugsa um möguleika á sambandi við verur á hærri
sviðum en þeir Doc Nick og Mueller væru á. En nú hætti Doc
Nick skyndilega að hafa samband og fannst engin skýring á
því. Nú þegar Mueller var einn eftir hinum megin gekk
verkið hægar þar sem hann virtist ekki hafa jafn mikinn
áhuga á Spirocom, einnig vegna þess að O’Neil var, að því er
Meek segir, óskipulegur í vinnu, frekar latur, hafði ekkert vit
eða neina stjórn á peningamálum sínum og vildi bara helst
búa einn og ótruflaður í óhrjálegu húsi sínu. 13. nóvember
1975 verða þeir svo fyrir því að það kviknar í húsi O’Neils og
mikið af tækjunum eyðilagðist. En áfram var haldið.
Annar mikilvægur áfangi í starfi þeirra næst svo 22. sept-
ember 1980, þegar O’Neil nær sambandi við Mueller, þegar
hann var að stilla tæki sín á tíðnisviðunum á milli 29 og 31
megahertz. Það hafði ekki minni áhrif á O’Neil en það fyrra
sinnið er Doc Nick heyrðist fyrst í tækjum hans. Nú voru
samtölin skýrari og enginn vafi á að báðir heyrðu til hins og
48