Morgunn - 01.06.1988, Blaðsíða 7
morgunn
RITSTJÓRARABB
uninni. Henni er alls ekki beint til fólks með dulræna hæfi-
leika eingöngu, þarna er t.d. verið að kanna líka viðhorf fólks
almennt til dulrænna málefna.
Ljóst er að býsna margt fólk á íslandi, ekki síður en í
öðrum löndum á jarðarkringlunni, býr yfir margvíslegum
dulrænum hæfileikum. Rannsóknanefnd Sálarrannsókna-
félagsins hefur mikinn hug á að komast í samband við þetta
fólk og væri því mikill akkur í ef það, eða aðrir, létu berast til
skrifstofu félagsins eða einhvers nefndarmanna nöfn sín og
þeirra sem yfir slíkum hæfileikum búa. Það skal tekið fram
að með þessar upplýsingar verður farið sem trúnaðarmál og
þær aðeins hafðar til afnota fyrir stjórn félagsins og rann-
sóknanefnd. Okkur er það ljóst að sumt af því fólki sem býr
yfir dulrænum hæfileikum er ekki mikið fyrir, ýmissa hluta
vegna, að láta aðra vita af því og vilji svo til að upplýsingar
berist okkur um fólk sem ekki hefur gefið samþykki sitt fyrir
þeim, þá munum við að sjálfsögðu taka fullt tillit til þess og
afrná þær upplýsingar. Tekið er á móti upplýsingum á skrif-
stofu félagsins í síma 18130, auk þess sem fólk getur haft
samband beint við eftirtalda nefndarmenn, Guðjón Bald-
vinsson í síma 36557, Sigurður Rúnar ívarsson í síma 37362
°g Ævar Jóhannesson í síma 42770.
Mikil gróska virðist nú vera í allri starfsemi er lýtur að
dulrænum málefnum. Fólk er farið í auknum mæli að leita
inn á við og reyna að finna eigin svör varðandi tilgang lífsins
°g tilveru sinnar. Hafa ýmsir líka spáð því að nú sé mann-
kynið að hefja göngu á tímaskeiði andlegrar mögnunar. Vart
er þó að efa að hér spilar einnig inn í aukinn frítími fólks og
færri búksorgir. Hinn guðlegi neisti hefur alla tíð búið með
nnanninum, þó hann hafi sorglega sjaldan náð að skína í
gegn, svo sem honum er ætlað.
En þessi mál þarf öll að umgangast af hæfilegri alvöru og
nauðsynlegt er að fólk gæti þess að ofkeyra sig ekki í leitinni
að sannleikanum og andlegum möguleikum sínum. Eins og
fram kemur í einni grein þessa tölublaðs af Morgni, þar sem
segir frá fyrirlestri og svörum leiðbeinandans Tutu, þá er alls
5