Morgunn


Morgunn - 01.06.1988, Blaðsíða 46

Morgunn - 01.06.1988, Blaðsíða 46
UM BÓKINA „VERAN Á 29 MEGARIÐUM" MORGUNN O’Neil næði tökum á þessu ástandi sínu og verum, sem tóku æ oftar að ráðskast með hann og konu hans. Nótt eina í Febrúar 1974 fékk Meek skyndilega upp- hringingu. Var í símanum sameiginlegur vinur þeirra Meeks og O’Neil hjónanna og sagði hann sínar farir ekki sléttar. Hann hafði fengið upphringingu frá O’Neil, sem í örvænt- ingu hafði beðið hann að hjálpa sér, því kona hans væri fallin í trans og hann væri sjálfur ýmist að falla í trans eða að vakna af slíkum. Meek taldi strax að þau væru að verða það sem kallað er andsetin. Einn kunningja hans, var maður að nafni Henry Mandel, sem, þegar hann varð 64 ára gamall, upp- götvaði að hann hafði afburða heilunarhæfileika og fór hann að stunda slíkt með aðstoð leiðbeinanda síns að handan, sem var eins og fleiri slíkir, rauðskinni, og kallaði hann sig Háu eik. Meek ákvað þegar að leita til hans með hjálp varðandi þetta alvarlega tilfelli. Áður en það varð hringdi O’NeiI sjálfur í Meek og varð það sérstætt símtal, því ýmist var það O’Neil sjálfur sem talaði eða sá sem hafði yfirtekið líkama hans og var sá heldur ógeðfelldur náungi, orðljótur og gróf- raddaður. Kona O’Neils var einnig í trans eins og áður sagði, og í gegn um hana talaði lítil stúlka, sem kallaði sig Lornu. Var hún sú sem fyrst hafði gert vart við sig á þennan máta hjá þeim hjónum. Var hún í sífellu að spyrja eftir móður sinni. Mandel hófst þegar handa með aðstoð leiðbeinanda síns, indíánans Háu eikar, við að fjarlægja þessar friðlausu verur frá þeim hjónum. Gekk það nokkuð auðveldlega með stúlkuna Lornu, sem yfirtekið hafði Alice, konu O’Neils, en sá er nefndi sig Phil og yfirtekið hafði líkama O’Neils sjálfs, var öllu illskeyttari viðfangs. Það hafðist þó að lokum að fjarlægja hann, en nánast um leið var önnur vera komin í sambandið lítt betri og kallaði sú sig Richard. Hann stóð þó stutt við því Mandel og hans hjálpendum tókst að fjarlægja hann einnig. ÖIIu þessu fjarstýrði svo Mandel í gegn um símann til þeirra hjóna. En þegar allt virtist yfirstaðið kom enn ein veran af svipuðu þroskastigi í gegn hjá O’NeiI. Einnig hana tókst Mandel að fá burt. Hann hófst nú handa við að byggja upp n.k. verndarhjúp um þau hjónin í því skyni 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.