Morgunn - 01.06.1988, Blaðsíða 9
Skráð og þýtt af
Guðjóni Baldvinssyni:
AF FUNDIMEÐ TUTU
Efni frá transmiðilsfundi, sem haldinn var að
Garðastrœti 8, 4/5 1987, þar sem leiðbeinandi mið-
ilsins Gladysar Fieldhouse rœddi við stjórn Sálar-
rannsóknafélags íslands.
Ég heilsa ykkur öllum. Kveðjur mínar til ykkar allra. Sem
stendur er krafturinn ekki nægur, en verður óðum sterkari,
vegna þess að þið öll hafið svo mikinn skilning, svo mikinn
kraft að gefa.
Við höfum ekki hist og talað saman áður, en ég hef vitað
mjög vel af ykkur öllum og mér finnst að ég þekki ykkur öll
sem einstaklinga, sem þið og reyndar eruð. En ég veit svo-
lítið um vandamál sérhvers ykkar, þó ég vilji ekki tala um
þessi vandamál við ykkur. Hugsanir mínar og kærleikur
berast til sérhvers ykkar og það megið þið vita að ykkar eigin
hjálpendur og ástvinir vita mjög vel um sérhvert það vanda-
mál sem hrjáir ykkur. Vegna þess að þið hafið þessa vitn-
eskju, þá er ykkur ljóst að þið eruð ekki ein á ferð. Það sem
einhvern tíma og einhvers staðar fer úrskeiðis í lífi ykkar,
hvort sem það er fyrir ykkar eigin mistök eða annarra, þá er
ykkur hjálpað. Og frá hinu svartasta myrkri getur borist ljós.
Ljós þekkingar og skilnings. Sérhver reynsla og andstreymi
sem þið gangið í gegn um, hjálpar í gegn um þá raun, til að
veita ykkur meiri skilning á öðrum. Ekki ein einasta sál, sem
gengur veg ljóss og skilnings, mun nokkurn tíma falla út fyrir
vegarbrúnina. Því styrkurinn og hugrekkið mun alltaf vera til
staðar, til þess að reisa ykkur við, hrista upp í ykkur og hjálpa
áfram eftir þessari braut, stöðugri á fótum en áður, vegna
fallsins. Sterkari innra með ykkur vegna reynslunnar. Svo
7